lýst er eftir heilsu og hreysti

óþolandi, óþolandi, óþolandi. aftur veik!! hvað er í gangi, hélt ég væri búin með minn skammt! svo gerir samviskubitið yfir því að vera ekki í vinnunni illt verra. kom heim úr vinnunni í gær um hálfsexleytið og stökk beint upp í rúm, óóó, vaknaði svo bara ekkert fyrr en í morgun, chilla á kómatæst ástandinu!
náði að vaka nokkra klukkutíma í dag og það var náttúrulega ekkert í sjónvarpinu, að undanskilinni hinni nýklassísku mynd "baywatch, hawaiian wedding", þ.s. pam og david fóru með aðalhlutverkin. heilsan hreinlega leyfði ekki slíkt áhorf. horfði loksins á mynd sem ég er búin að vera með í láni í marga mánuði en ekki horft á.
the road home, eða wo de fu qin mu qin. kínversk mynd sem ég fékk lánaða frá stínu og binna (stína, ég játa mig seka, er með hana undir höndum). góð mynd með fallegustu konu á jarðríki,
ziyi zhang úr memoirs of a geisha, í aðalhlutverki.
því hefur veirð haldið fram að tilvonandi eiginmaður minn, jakey poo, hafi verið að gera hosur sínar grænar fyrir henni en þ.s. hún talar litla ensku og hann enga kínversku hafi það ekki gengið. greyið litla, hann er ekki enn búinn að átta sig á því að við erum meant 2 b!! hann er þó nokkuð nálægt, því ziyi á afmæli 9. febrúar og er fædd sama ár og ég, hann færist því stöðugt nær!
svo gerðist ég jafn léleg og pabbi minn og gleymdi afmælinu hans, hringdi samt daginn eftir. hann og arna voru í amsterdam. ég var þó ekki ein því þórdís gleymdi því líka og hringdi einnig daginn eftir, gott að yngsta barnið var sú sem mundi það!
ég horfði á
just like heaven um helgina. fyrir þá sem ekki vita kemur
draugur þar við sögu. það er eitt sem böggar mig alltaf þegar draugar koma við sögu í myndum. þeir geta alltaf farið í gegnum hluti eins og hurðar, borð og bíla, en af hverju fara þeir ekki í gegnum gólf. þeir geta til dæmis labbað í gegnum alla veggi en síðan standa þeir á sömu steinsteypu á 15. hæð án þess að fara í gegnum gólfið. af hverju fara þeir bara í gegnum veggi en ekki gólf. í just like heaven fer reese í gegnum bílhurðina en getur svo setið í bílsætinu eins og ekkert sé. þetta fer óendanlega mikið í taugarnar á mér...
am i alone here??
roadtripping

allt erfist nú! eftir að hafa unnið á laugardegi hófst chill með völu litlu, litlu systur. við fórum í hagkaup og keyptum bland í poka fyrir 1400 kr.,eða rúmar 700 kr. ef t.t.t 50% laugardagsafsláttar! vala er sko alveg jafn mikill nammigrís og ég, og þið vitið að ég er enginn viðvaningur. síðan pöntuðum við devit's pizzu í kvöldmatinn, en nammi og devito's var líka morgunmaturinn daginn eftir (bara afgangar sko, við keyptum ekki meira), mmmm. þ.s. ektakona föður míns (fekk, pabbi átti afmæli í dag og ég gleymdi að hringja...en ef hann er í útlöndum telst það þá með??) á svo góðan díl að vera á 2 fyrir 1 á james böndum ákvað ég að nýta mér það í 4 fyrir 2. náði að horfa á 4 dvd myndir á rúmum 12 tímum, nokkuð gott!! þ.s. ég tek svo sjaldan video núna finnst mér skyndilega svo mikið sem ég á eftir að sjá á leigunum og á því erfitt með val.
ein myndanná sem ég tók var
elizabethtown. hafði heyrt af fólki sem fannst ekkert sérlega mikið til hennar koma, en mér fannst hún æði. mér finnst cameron crowe frábær leikstjóri sem nær alltaf að gera mannlegar (ok.veit það hljómar klént) og skemmtilegar myndir með frábærri tónlist sem spilar stóra rullu í þeim. ekki spillir svo fyrir að orlandi bloom leikur í henni, svo hefur kirsten dunst e-n x-factor við sig sem gerir hana ómótstæðilega (þó hún hafi reynt að stela jakey poo frá mér!).
í myndinni fer mitch í road trip sem varð til þess að endurvekja road trip löngun mína, því spyr ég:
er e-r til í road trip um usa í haust, get ekki verið lengi, bara svona 2-3 vikur...það væri göðveikt!!
baby shower

á dauða mínum átti ég von en að ég yrði lélegur bloggari!! ástæðan er einföld, það er klikkun í vinnunni og ég er dauðuppgefin þegar ég kem heim. ég er allt í einu farin að skilja enn betur hvernig það er mögulegt að vakna einn daginn og vera orðin fimmtug og átta sig engan veginn á því í hvað síðastliðin 20 ár fóru.
ég er algert grænmeti, kem ógéðslega þreytt heim úr vinnunni, næ hvorki að elda mat, þvo eða þrífa, hvað þá að tala við nokkurn mann. hangi fyrir framan sjónvarpið og er svo komin upp í rúm fyrir miðnætti og sef síðan of lengi svo að ég kem of seint í vinnuna...en er alltaf þreytt!! rosalega spennand líf maður!
fór loksins í klippingu í gær, fór síðast í september, og það eina sem ég gat horft á í speglinum voru neonbláu, bólgnu baugarnir mínir sem öskruðu á mig!! eeeeewwwww!
fékk nú samt nettan púka og var að fara að peppa í djamm í kvöld þegar ég var beðin um að vinna á morgun, allt brjálað að gera.
svo get ég ei djammaði annað kvöld þ.s. ég er löngu búin að lofa að eyða kvöldinu með minni ástkæru litlu, litlu systur.
er e-ð að?? (syngist à la anna hera). er nýorðin 27 ára og geri ekki annað en að passa! kemst ekki á djammið því ég er að annast börn fólks sem er að djamma...er meira að segja bókuð næstu helgi líka...og dílemman er að mig langar mjög mikið að eyða tíma mínum með þessum litlu einstaklingum, ég verð bara að fórna tíma með stærri einstaklingum í staðinn!!
fyrr má nú rigna en að hellirigna börnum!
fór til hörpu mr-vinkonu í vikunni að sjá hennar afkvæmi, lilla pétursson, afar lekker. svo eru 2 alveg að fara að eiga úr þessum 7 manna hópi...was ist los!?
og frakklands arndís er ólétt!
the babies are taking over!
ég er með innri púka sem þarf að rækta, hann þarf á ykkar hjálp að halda!
p.s. í barnaregningu sem stendur um þessar mundir fæddist lítil stelpa malmquist sem á beriti sem föðursystur...ef þú ert að lesa elsku berit, innilega til hamingju:)
the bank formerly known as islandsbanki

já, þá er búið að breyta um nafn á litla bankanum, í svona hundraðasta skiptið. leitaði að myndum í yahoo undir "glitnir" og fann bara myndir af hestum, læt þá fyrstu fylgja hér. kannski í takt við nafnið. ætla nú ekki að vera að tjá mig mikið um það hér en fólk virðist almennt lítt hrifið. það var nú samt ljóst að nafninu þurfti að breyta, útlendingarnir lásu þetta sem "islandbank" eða "eyjabanki" og svo var þessu iðulega ruglað saman við landsbankann, sem ku vera "the national bank of iceland" á ensku. en ég var nú reyndar alveg viss um að isb-bank yrði fyrir valinu og hið nýja nafn hvarflaði aldrei að mér.
en ég tók samt þátt í því að fagna hinu nýja nafni og naut vel, fullvel, af endalaust opna barnum á nasa. hefði kannski mátt sleppa 2-3-4 síðustu fríkeypis glösunum. þá hefði ég kannski munað að ég hitti stelpurnar ekki fyrir tilviljun inni á thorvaldsen heldur römbuðu þær á mig eina hangandi fyrir utan póstbarinn, alls óviss um hvað ég var að gera þar...
fór svo víst í skamma stund á thorvaldsen, en þökk sé engri sjálfstjórn og opnum bar var ég komin heim metsnemma, eða klukkan 3...
annars er ég í RÓLEGU kvöldi heima sem felst í því að vera heilalaus og horfa á sjónvarpið...vildi nú bara láta vita að ég næði enn andanum...
meira seinna...
eat me

þakka frábærar matarhugmyndir. okkur fannst við búnar að covera flest þetta klassíska, en farið var á mcdonald's í dag. á morgun er síðan pizza og svo koma foreldrarnir heim og við erum frjálsar sem fuglinn að nýju. það er ágætt, ég er ekki tilbúin undir þessa frelsissviptingu, þó að gríslingarnir séu algert æði!
mcdonald's matur er annars alger viðbjóður (ok.hver vissi það ekki). ams2 borðaði 3 ostborgara (hann er 5 ára) og var enn svangur að þeim loknum og þurfti að fá skyr. reyndar var enginn saddur að matnum loknum en samt var ákveðin viðbjóðstilfinning sem fylgdi í kjölfarið, og er ekkert að fara!!
við heldri stöllur á heimilinu stefnum fast að því marki að slá íslandsmet í nammi og súkkulaðiáti á meðan á þessari vikusamvist okkar stendur, eeeeewwwwwwwww...ég finn fitulag magans taka reglulega vaxtarkippi. lindberg segir þetta allt mér að kenna, en mér finnst það nú frekar ódýr átylla, enda er ég annáluð fyrir heilsusamlegt líferni og sjálfsaga. og ég er sko EKKI búin að kaupa allt nammið.
annars bjargaði anna maría mey deginum, hún hélt að við værum bara svona 22-23 ára!!! þegar ég sagði henni að ég væri 27 og spaní væri að verða hið sama kom stórt .....wwwwwwóóóóóówwwwwwww...ég delete-a því samt og hugsa bara um að ég sé 22!! ekki að ég sé með neina aldurskomplexa!!
minni þá sem ætla í byen på lördag að melda sig, hlakka til að sjá spaní í "operation getting a husband", enda mikil kappsmanneskja á ferð.
flensa á suðurvígstöðvum

jæja, er ekki flensulíus mættur á suðurvígstöðvarnar. eiginkona mín, lindberg, er smituð af flensu. sækja þurfti ams2 í skólann í dag sökum slappleika og vigga er búin að vera vígreif af pirringi. vona svo sannarlega að heimilismeðlimir sæki í sig veðrið og að ég sleppi (þar sem ég sat nú af mér heila 3 daga í síðustu viku!). sóttvarnarlæknir hélt því fram að flensan myndi ná hámarki í þessari viku!
annars gengur "operation singles (og svikari) babysitt" bara ágætlega. við erum helst til andlausar hvað skal gefa börnunum að snæða. búnar með kjötbollur, pítu, grjónagraut og fiskibollur. hugmyndir að mat handa 3-5 ára vel þegnar (það er ekki pizza fyrr en á föstudaginn).
er aðgerðinni lýkur á laugardaginn mun ég halda beint á vinnustaðaskemmtun mikla og veglega. þeir sem hyggjast einnig láta illa mega gjarnan vera í sambandi við undirritaða! nú er eins gott að verða flensa ekki að bráð!
2 með öllu

bletzy, bletzy. ég hef gríðargóða afsökun fyrir bloggleysi. við skötuhjúin (blindi and I) höfum verið að gæta gríslinganna hennar þóreyjar síðan á lördag. mama mia, frábær getnaðarvörn. fór í dag og keypti skírlífsbelti, setti það á mig og ók síðan beinustu leið niður að sjó þangað sem ég kastaði lyklinum eins langt og ég gat!
þau eru náttúrulega algerar dúllur, en ég er bara ekki ready sjáiði til, fyrr en í fyrsta lagi eftir svona 10 ár!! við gistum hérna í næsta húsi við sveitasetrið, við hjúin. ég skal seg'ykkur það að það gefst nú ekki mikill tími fyrir rómans eftir að ungað hefur verið út, marr er bara alveg uppgefinn! svo er ekki hægt að panta svefntíma! á sunnudagsmorguninn vaknaði allt hollið fyrir sólarupprás en svo þurfti að draga það framúr á mánudagsmorgninum! ég grét næstum því í vinnunni í morgun vegna þreytu. fyrstu nóttina vorum við nefninlega með viggu víking upp í hjá okkur og hún gat með engu móti verið kyrr, gaf frá sér undarleg hljóð (à la aní, sjaldan fellur eplið...) og við báðar á olnbogunum yfir henni að samræma aðgerðir eftir hverja byltu hennar. með alls 2 pela, 3 snuddur og bleyju á kantinum. lindinn meira að segja með 1 pela stöðugt í hendinni sem reynt var að troða upp í greyið við minnsta tilefni. heildarsvefn okkar þá nóttina var því hálftími. reyndar vöknuðum við, fórum framúr með skarann og gáfum að borða, en þá var anna maría mey vöknuð (ég veit það er margrét) og við sögðumst "aðeins ætla að leggjast upp í rúm". að 20 sekúndnum liðnum var ég komin undir sæng með eina barnasæng vafða sem túrban um höfuð mér til þess að hljóðeinangra..."aðeins" 2 klst síðar rumskuðum við og stukkum framúr vegna samviskubits. síðan skunduðum við hjúin ásamt 2 yngstu ams á þingvelli og heimsóttum spaní. löbbuðum almannagjá og lekkerheit. núna var vigga víkingur loks að sofna, e-ð ósátt og búin að orga "smá" (lesist 2 klst). en hún er náttúrulega alveg sætust (sérstaklega þegar hún er sofandi, grín!).
jæja, nú er klukkan að verða 22, best að fara að koma sér í háttinn!!
p.s. smellti einni mynd af okkur við gott tækifæri í gær, hún fylgir hér með! hvað er betra en samstæðir bolir handa hele familien?
je suis malade :(

ég er búin að vera með gubbupest og er alein heima og enginn til þess að stjana við mig og vorkenna mér. þakka samt linda fyrir að koma með veigar til mín í gær, og þakka henni jafnframt fyrir að éta allt súkkulaðið sjálf svo að ég myndi ekki borða það;)
þetta var herfilegt, upp-og niðurkomur án pásu í heila nótt, og biðlund bununnar engin!
fyrir þá sem ekki vita er ég komin með nýja vinnu, mjög vinsælt að vera veikur eftir 3 daga, gott að mæta sterkur til leiks.
er búin að horfa gríðarlega mikið á sjónvarpið. vissu þið af spænsku sápuóperunni á stöð 2 um hádegisbilið? var að horfa á gray´s anatomy núna, þetta eru virkilega skemmtilegir þættir. horfði síðan á legally blond í fyrsta skipti í dag og er á því að þetta sé vanmetin mynd, fannst hún bara góð og fílaði "ef þú smælar framan í heiminn..." attítúd elle woods í tætlur. svo var nýr gelgjuþáttur á rúv í kvöld, mjög skemmtilegur. einn vinurinn þorði ekki að vera með "feitu gellunni" sem leikin var af kelly osborne því hann skammaðist sín svo fyrir það. ok, það er atriði út af fyrir sig, en svo er það að kelly greyið er heldur ekki með smetti upp á marga aura, því skondið að setja fitulögin sem einu fyrirstöðuna en hunsa algerlega miður laglegt andlitslag hennar. ætli það hefði líka verið gert ef pabbi hennar væri ekki frægur rokkari?
og er ég kannski búin að horfa of mikið á sjónvarp?
ahaha...er núna að horfa á heimildarmynd um fræbblana, pönkhljómsveit sem rokkaði í reykjavík. ég fór einu sinni á bekkjarskemmtun til völu litlu, litlu systur þegar hún var í svona 7-8 ára bekk. þar var viðstaddur maður sem mér fannst ég kannast svo ógurlega við, er ég var búin að velta því fyrir mér fram og til baka hvaðan ég kannaðist við hann labbaði ég upp að honum og spurði "ekki getur verið að þú eigir bróður sem heitir knútur hafsteinsson og er íslenskukennari í mr". ég var ekkert að grínast, hann var eins og snýttur úr nös knúts (-ar?? sorry) kennara. hann brást hins vegar ekkert sérlega glaðlegur við og ég fékk einungis mjög þurrlegt "ég hef aldrei heyrt þann mann nefndan" til baka. maðurinn var s.s. pabbi bekkjarsystur völu. svona ári síðar sá ég hann síðan í fyrsta skipti í popppunkti og er hann einmitt meðlimur fyrrnefndra fræbbla. fannst þurrlegt viðmót hans kannski getað skýrst af því að hann hafi þarna verið að vonast eftir sjaldgæfri viðurkenningu á "frægð" sinni en þess í stað var samlíking hans við forláta íslenskukennara eina sem vakti á honum athygli.
ég vil þakka ÁSDÍSI YNDINU mínu fyrir að vera jafn yndisleg og hún er. allir sem hafa svo mikið sem einu sinni hitt hana verða ástfangnir af henni og var ég svo heppin að fá að búa með henni einu sinni, í næsta herbergi við hana, með hurð á milli sem ekki var hægt að loka.
póstkortið sem hún sendi mér frá parís gat ekki borist á betri tíma en í gær þegar ég var ein heima lasin. þegar ég heimsótti hana í nóvember urðu allar áætluðu safnferðirnar óvart að h&m ferðum að einni undanskilinni. við fórum á yndislega ljósmyndasýningu með myndum
willy ronis. ein frægasta mynd hans er einmitt myndin hér við hlið og kallast "lovers at the bastille". mig langaði svo í myndina en fann hvergi. síðan hefur ásdís nú rekist á hana og sent mér hana sem póstkort. fólk er orðið alltof latt við að senda póstkort, og er ég þar ekki undanskilin, mun taka mig á.
takk æðilsega fyrir ásdís mín og ég öfunda stínu óendanlega mikið fyrir að vera að fara til parísar um næstu helgi. og ég veit jafnframt að ace og co verður í grínum þar sem ég hef heyrt af e-u sameiginlegu djammi. gerið skandala fyrir mig og deilið!!