27.2.06

Hætta skal leik þá hæst hann stendur

Nú er komin drykkjarpása. Líkt og máltækið gamla segir þá skal hætta drykkju er gleðin stendur sem hæst. Reyndar er í mínu tilviki aðeins farið að halla undan fæti, og því leik hætt hið snarasta.
Líkt og þarsíðasta laugardagskvöld var viðburðarríkt var þetta viðburðarlítið. Byrjað var á því að fara í útskriftarveilsu til nýslegins hagfræðings, þar sem ég var nánast boðflenna, er yfirleitt illa við að koma mér í þær aðstæður og því ef til vill ekkert sérlega vel stemmd til að byrja með. Veislan var hin fínasta og síðan var farið á hinn agalega stað ólíver. Þetta mun vonandi vera eitt af mínum hinstu skiptum á þessum stað því ég er ekki að fíl’ann. Við bryndís komumst inn með þeirri aðferð að ég samdi ferskeytlu á staðnum fyrir hinn nýlega “made over” dyravörð. Það var alltof mikið af fólki þarna inni og mér fannst ég aftur vera orðin 18 ára og komin á hvebbann sem ég aldrei fílaði og var skapið eftir því. Dansaði nú e-ð og hitti e-ð af fólki.
Nánast samferða okkur inn á staðinn var skemmtilega ólíklegt tríó, þar voru samankomnir í einum hópi gilzeneiger, ásgeir kolbeins (þarf ég að segja meira um staðinn) og logi bergmann. Nýjasta gengið í bænum?
Ölvun var nokkur (þó ekkert í líkingu við þarsíðustu helgi), en ég man sterklega eftir því að hafa séð fyrrverandi manninn hennar ragnheiðar guðfinnu (x-bjútídrottning) á dansgólfinu. Þar voru einnig á sama tíma “ragga” sjálf og geiri kol. Gott ef ekki hafi verið e-r drama þarna, segjum það allavega, svona til að krydda þetta aðeins.
Ég endaði kvöldið síðan með því að ganga ein upp laugaveginn og að hringja stanslaust í mína 16 ára systur til þess að komast inn til pabba. Hún sá sér hins vegar ekki fært að svara mér, en það gerðu vinir mínir á devito’s í staðinn. Þeir svöruðu kallinu með einni glóðheitri pizzu. Ég get svo svarið fyrir það að þeir voru að hlæja að mér er ég sat ein með 16 tommuna að éta þarna. Hypjaði mig því á brott í leigubíl ein heim. Þar var gúffað því sem nemur ¾ hlutum 16” pizzu í sig áður en “sofnað” var í foreldrarúmi með málningu og linsur.
Það var því afar hressandi að vakna daginn eftir með málningu niður á kinnar, skrælnaðar linsur í augum og ómelta ¾ hluta 16” pizzu í maganum. Líkaminn sagði stop og upp kom devito’s ómelt og fín.
Gott að kasta upp á sunnudegi 2 helgar í röð í fyrsta skipti í lífinu 27 ára gömul, ég held ég sé búin að finna beinu brautina!!

LINDI BLINDI, Á HVAÐA MYNDIR EIGUM VIÐ AÐ FARA NÆSTU HELGI??

Ekkert sér hinn litli lindi
Því er sem sólin augun blindi
Ekkert bús og engir strákar
Engin reið og engir fákar

Þessi vísa selst á 7,98 aura.

26.2.06

búin að vera

og nú er ég hætt að drekka

24.2.06

hvað skal gjöra

um helgina?

1.vera stillt eftir ofurölvun síðustu helga og fara kannski í bíó?
2.vera óþekk og djamma á laugardaginn?

til þess að meta aðstæður frekar má geta þess að nú er klukkan að verða 12 að miðnætti á föstudegi og ég er ein heima, búin að horfa á idol-ið og listhlaup kvenna á skautum á óló!!

20.2.06

RUGLUM BULL

Eru einmitt orðin sem fá lýst síðastliðnu laugardagskveldi. Í enn eitt skiptið slaufaði ég fjölskylduboði með börnum hans gunna til þess að drekka til að gleyma með vinum og drykkjufélögum. Það er ekki einu sinni það að ég drekki þaaaaað oft, heldur virðist það fyrir einskæra tilviljun alltaf rekast á þau skipti sem þau eru í besög...í alvöru!!
Missti reyndar af Silvíu á leiðinni til löfunnar, en náði siguratriðinu. Mætti galvösk og tilbúin undir góða drykkju. Það sama átti nú hins vegar ekki við um alla single meðlimi sem voru með makalimi meðferðis og fóru síðan bara heim að limast saman fyrir miðnætti. Smánárblettur á fyrrum djammveldinu! Það voru hins vegar mjög traustir félagar til staðar er stóðu sig sko aldeilis í stykkinu og gerðu kvöldið að einu hinu skemmtilegasta í lengri tíma. Þá er ég reyndar ekki að tala um single meðpjásuna sem fannst ég ekki skemmtilegri en það hjá löfunni að mér var tilkynnt að héldi ég áfram með sama hætti (fannst ég nú bara í góðu stuði) myndi ég brátt bara sitja þarna eftir ein. Lét þetta að sjálfsögðu sem vind um eyru þjóta og hækkaði róminn enn meira. Glaumur og gleði gott fólk!

Er útséð var með liðhlaup single-lima var ákveðið að kalla til atvinnumennina, fólkið sem lætur hvorki börn né fingurjárn aftra sér frá gleðinni. Mættu þar ingunn hin yndisfríða og írís íðilfagra. Tása og hennar limur fá þó prik fyrir að þrauka framyfir miðnætti (djísus, eru allar kröfur horfnar sem dögg fyrir sólu!?), en er leið á kveldið var ljóst á augnaráði og fingrasetningu tásunnar að lóðarísæði var senn að taka völdin og lá leiðin beint heim, því aðgát skal höfð í nærveru einhleypinga.
Þá tók ruglið völdin. Af öllum partýum, hjá öllum einstaklingum á öllu íslandi enduðum við í partýi hjá VALI Í BUTTERCUP!! Hversu kaldhæðnislegt er það í ljósi áralangrar “aðdáunar” okkar á þessum ágæta manni. Detti mér allar dauðar, hefur sjaldan átt betur við. Til að toppa þetta sat enginn annar en “gummi úr sálinni” að glamra á gítar er við komum inn. Ef við værum algerar andstæður við það sem við erum hefðum við líklegast verið í sjöunda himni, en sem betur fer vorum við frekar svona að pissa í buxurnar af hlátri. Held að “gumma” hafi verið aðdáunarleysi okkar nokkuð ljóst þar sem við vorum ekki að kikkna í hnjánum eða að veita þeim neina sérstaka athygli, var nú e-ð um prímadonnustæla sem var til þess að gleðja okkur enn frekar. Toppinum var síðan náð er lindinn bar kennsl á einn partýgestanna sem manninn er kynnti single meðlimi fyrir hjálpartækjum ástarlífsins á árshátíðinni hér um árið. Náðist síðan mynd af honum með opna buxnaklauf, klassíker!
Eftir partýið var haldið á ólíver (þar sem maður var hvort eð er kominn í skítinn) og þar kemur e-r smá móða. Man eftir að hafa verið á barnum á dansgólfinu, síðan var e-r útlendingur að kaupa fullt af tequila staupum, síðan var ég að drekka tequila staup ásamt mínum tvöfalda vodka í tonic. Síðan held ég hafi kysst e-n. Síðan var ég allt í einu kominn á ölstofuna í munnvatnsskipti við annan herramann og síðan allt í einu fyrir utan kaffibarinn sem búið var að loka var kominn sá þriðji....CHILLA Á ÞVÍ AÐ TAKA RYKSUGUNA 27 ÁRA!!!....já, bara svona 10 árum eftir á.
Kaffibarsskandallinn var reyndar gamall skandall, svo jafnan lítur nokkurn veginn svona út:
RYKSUGAN = ólíverskandall + ölstofuskandall + (gamall skandall) í 2.veld

Mér finnst sérstaklega skemmtilegt að á meðan ég var að safna munnvatnssýnum í vísindalegum tilgangi á ölstofunni hafi lindi blindi átt í alvarlegum samræðum um kynhneigð við Megas. Talandi um að fara úr öskunni í eldinn. Byrjaði hjá vali í buttercup og endaði kvöldið hjá megasi, þetta er e-r jákvæðasta og hraðasta þróun sem ég hef vitað til. Samkvæmt samræðunum hélt megas því fram að “bi” væri ekki málið, hann væri búinn að prófa sinn skerf og hann væri fyrir konur. Er maðurinn ekki “flayming”?? Kannski var hann bara að fá linda í bólið, eða kannski misminnir linda e-ð, hvað veit maður?

Ég var allavega komin einsömul heim korter yfir 6, átta mig ekki alveg á tímaröðinni og af hverju ég fór ekki til lindans, kannski vegna þess að mér var hent öfugri út síðast þegar ég endaði þar.
Sem er nú kannski eins gott því gubbimann og þynnkumaður dauðans neituðu að yfirgefa líkama minn í gær þrátt fyrir ýmsar særingar. Það verður kannski aðeins skiljanlegra ef litið er yfir það sem drukkið var þetta ágæta kvöld:

2 hvítvínsflöskur
2-3 rauðvínsglös
1 frozen strawberry dequiry (með dash af kókaíni)
½ frozen kiwi banana ógéð
1-2 glös af engiferjaöli með vodka (eða skv. ólöfu: aðallega vodki með smá gosi)
2 tvöfaldir vodka tonic
1 tequila staupa, allavega
kannski eitt hvítvínsglas eða meira vodka tonic

AF HVERJU STÓÐ ÉG Í LAPPIRNAR?

ERGO: gott og skemmtilegt kvöld, en skelfilegur þynnkudagur!

15.2.06

fjörið er rétt að byrja

Kæru lesendur undir fimmtugu, ef sá grunur hefur læðst að ykkur að djamminu kunni að ljúka eftir þrítugt, fertugt, fimmtugt...þá get ég hér með sannfært ykkur að svo er nú alls, alls ekki!
Á laugardagskveldið hélt ég ásamt rúnu rokk og gunna í teiti til kristínar, yngri dóttur gunnu mömmuvinkonu, a.k.a. patsy. Gárungar kunna að muna eftir þeim stöllum, rúnu rokk og patsy, síðan þær gerðu garðinn frægan í svaðilför sinni til mílanóborgar hér um árið. Ítalíubúar eru víst enn að jafna sig, svo og þær stöllur á annars glæstum húsakynnum þeim er ég bauð upp á.
Tilefni teitisins var innflutningur kristína og hennar unnusta í eigin hýbýli. Boðsgestir samanstóðu af fjölskyldu kærastans, fjölskyldu kristínar og vinkonur patsyar, móður kristínar.
Veitingar voru allar hinar glæsilegustu, alls kyns hrátt kjötmeti, ferskur parmesan og allt það sem hugur manns girnist. Svo ekki sé talað um áfengu veitingarnar. Allar tegundir léttvíns, bjór, sterkt vín og ég veit ekki hvað annað. Sem sagt fullkomnar veitingar. Þar sem maður kann nú ekki við að vera ókurteis og vanþakklátur gerði ég að sjálfsögðu mitt allra besta til þess að sýna þakklæti mitt á þessari miklu gestrisni. Í stuttu máli sagt þá var meira fjör en í nokkru því teiti er ég hef farið í svo lengi sem ég man eftir. 30 manns tættust og trylltust á dansgólfinu. Lögregland kom klukkan hálftvö, sem leiddi til þess eins að hækkað var enn frekar í hljómflutningstækjunum. “örlítið” bólaði á hífun af minni hálfu er ég gekk að gunnari hinum taktlausa og ætlaði að fá hann mér til mikillar skemmtunar út á “dansgólfið”. Ekki var áhugi hans meiri en svo að hann sneri samstundis við mér bakinu á bekk þeim er hann sat með þeim voveiflegu afleiðingum að ég skall beint á bak/rass/allan afturendann á gólfið og braut glas. Gott múv í fjölskyldupartýinu. Fannst ákveðnum lágpunkti náð er ég lá flöt á gólfinu með lappirnar sundurglenntar í flóðlýstri stofunni. Opnaðist þá fyrir flóðgáttir himnanna og barðist ég hvað mest ég mátti við tárin um leið og ég skreið á fjórum fótum á gólfinu að þrífa upp glerbrotin. Ekki var aftur snúið er gullfoss allra tárastrauma var virkjaður. Lagði ég leið mína á salernið, en ekkert fékk virkjanaframkvæmdir þær er heilinn var kominn í stöðvað. Reyndu rúna rokk og patsy báðar að taka að sér hlutverk “stopp”-hópsins en árangurslaust. Ef ég er ekki draumapartýgesturinn veit ég ekki hver hann ætti að vera!
Til að bæta gráu ofan á svart endaði ég með hinni dóttur patsy, kærustu hennar og fyrrverandi eiginmanni (náðu þið þessu?) á players! Einhverjar súrustu aðstæður lífs míns. Þetta var án nokkurs vafa mitt fyrsta og síðasta skipti inn á þessum afleita stað. Var fljót að láta mig hverfa, og í fyrsta skipti í lífinu var styttra að fara heim að sveitasetrinu en að gista e-s annars staðar.
Mínir nýju 3 cm hælaskór fengu því ekki að njóta sín (entist góðar 5 mínútúr á þeim í partýinu), ég týndi 3 armböndum og grenjaði, mér algerlega óaðvitandi, úr mér annarri nýju mánaðarlinsunni minni!

Hvað segiði, djamm um helgina??

11.2.06

viltu koma út að leika?


hæææææjjjjjjjjjjjjjjjjjj, er víst voðalega out skv. fréttablaðinu í dag. maður á að segja "sæl" en ekki langt hæjjj. hvaða steik er það sem semur þessa dálka, alveg hallærislegt.

en að öðru uppbyggilegra, HVER ÆTLAR AÐ DJAMMA FRÁ SÉR ALLT VIT Í KVÖLD?? JÁ, EKKI ALLIR Í EINU! ok, ég átta mig á því að hugsanlegir djammfélagar mínir hérlendis eru í bráðri útrýmingarhættu, en ef það er e-r geirfugl þarna á sveimi, vinsamlegast látið náttúrufræðistofnun = mig vita. er að fara í partý hjá dóttur vinkonu mömmu, með rúnu rokk og gunna í farteskinu, getur ekki klikkað. var að vinna síðustu helgi og var vakin klukkan 5 aðfaranótt sunnudags, rúna rokk og gunni að banka á glugga. voru að koma af árshátíð, fóru síðan í EFTIRPARTÝ og gleymdu lyklum...
ég blikna svo skammarlega í samanburði við þessa ofurdjammara að ég á mér ekki viðreisnar von!
síðan er reyndar e-r hagfræðipungahittingur, en þar sem ég á eigi pung væri gaman að hitta e-r pjötlur. og já, síðustu fréttir herma að lerti latínó sé enn á lífi!

þið vitið djammnúmerið ef þið ætlið að láta illa!

luv

9.2.06

sante þórdís


öll vitum við hvað það eru margir sem eiga um sárt að binda víðs vegar um heim, en einhverra hluta vegna gerum við fæst eitthvað til að bæta ástandið. því gladdi það mitt litla hjarta mikið að fá enn frekari staðfestingu á því hversu góðhjörtuð stóra litla systir mín er. hún er 16 ára og hefur nú "tekið að sér" barn í gegnum abc-barnahjálp. þórdís borgar 2000 krónur á mánuði, úr eigin fjármunum (þar sem móðir hennar sagði víst "þetta fer allt í herinn") til þess að aðstoða santo litla til að eiga aukna möguleika á sómasamlegu lífi.
santo er 10 ára strákur sem býr í 12.000 manna flóttamannabúðum í úganda, einungis 100 km frá landamærum súdan (þar sem darfúr héraðið er einmitt). flestir í flóttamannabúðunum búa í kofum með stráþaki en margir hverjir þora ekki að gista í þeim þar sem uppreisnarmenn stunda það að kveikja í kofunum að nóttu til.
peningarnir hjálpa santo að sækja skóla og fær hann læknishjálp þar sem hann hefur þjáðst af malaraíu og er með orma í meltingarfærum. því miður er alnæmi enn að aukast á þessu svæði og vonum við að santo litli komist hjá því að smitast af þeim illræmda kvilla.
annars hafa þórdísi þegar borist 2 myndir af santo er hanga á ísskápnum á laugaveginum. hefur þórdís hafist hand við að skrifa bréf til þess að komast að áhugamál hans svo hægt sé að senda honum gjöf. hún er annars á því að santo eigi að koma til íslands í háskólanám þar sem henni virðist hann af myndunum að dæma vera svolítið "tölvutýpan". vonandi fær hann þó meiri mat þar sem hann er enn með bíafra-bumbu. í því samhengi kom kaldhæðnismeistari íslands, a.k.a. my father, með þá athugasemd að ekki væri úr vegi að senda santo litla uppskriftarbók að danska kúrnum til að vinna bug á bumbunni, það verður þó ekki gert!

ætla ég mér að taka litlu systur mína til fyrirmyndar og "taka einnig" að mér barn. ef dóra og pétur, eða e-r vel að sér í þessum málum, eru að lesa, eru e-r ein samtök betri en önnur? og eru börnin ekki örugglega að fá peninginn?
ég ætla meira að segja að reyna að fá líka e-n úr rockocka, eða hvað flóttamannabúðirnar hans santos litla heita nú. þá getum við systur fylgst spenntar með gangi mála í úganda, jafnvel litið í heimsókn við tækifæri, kaffi, brauð og bakkelsi, haldiði að santo sé ekki game??

ég held nefninlega að margir íslendingar hefðu gott að því að sleppa því bara að kaupa sér 5 bjóra og fróa sér síðan fyrir utan amalieborg og styrkja litlu börnin sem eru að deyja úr hungri!
(fyrir áhugasama er nafn- og myndbirting af kynóða drottningarsinnanum í dv í dag!).

p.s. þetta er þórdís sæta systir á myndinni, hún er 16 ára og á lausu, eins og sönnum laugavegskvennsniftum sæmir;)

6.2.06

fastur á klakanum


bletzy, bletzy. hef nákvæmlega ekkert að segja á þessum annars frábæra mánudegi. var að vakna svona um þrjúleytið, enda gjörsamlega búin á því eftir að hafa þurft að lyfta litla fingri, og jafnvelg baugaranum líka, um helgina! var á lagersölu hjá þóreyju þar sem fólk reif út dót eins og það ætti lífið að leysa!

ég er hins vegar ekki að komast yfir öll þessi læti hjá þessum öfgafullu múslimum út í heimi og birti hér með mynd sem poppaði upp á yahoo er ég leitaði að myndum undir orðinu "love"...nei, ég er ekki ástfangin og/eða gengin af göflunum, ætlaði bara að tékka. þessi var svona númer 4 á listanum, á eftir eftir e-i lessumynd sem undir stóð "love juice"....ekki lekkert!
nafnið á þessari mynd fannst mér helvíti flott "make love not war"....ahahah
og hún er svooooo greinilega ekki photoshoppuð;)

ef þið heyrið ekkert í mér á næstunni þá er ég líklega í felum með lögregluvernd þar sem öfgafullir íslamstrúar menn vilja mig feiga fyrir það að notfæra mér þann rétt sem stjórnarskrá þessa land segir til um!

endilega komið með skandala og með því litlu molar!

3.2.06

steik í haus

af því að ég er latari en andskotinn fór ég rétt í þessu út í banka með sjálfskuldaábyrgð sem rann út fyrir viku síðan, en ég fékk bréf dagsett þann 20.desember síðastliðinn þess efnis að hún myndi renna út á fyrrgreindri dagsetningu. það tók mig því 1,5 mánuð að koma þessu í verk, hafandi nákvæmlega ekkert betra að gera allan daginn. þvílík framtakssemi!!
til að bæta gráu ofan á svart þá er ég með viðskipti við útibúið á kirkjusandi, en sökum fyrrnefndrar ótakmarkaðrar leti sá ég mér engan veginn fært að fara þangað og drattaðist þess í stað rétt fyrir fjögur á föstudegi "alla leið" út á garðatorg til þess að biðja þær um að "senda ábyrgðina í innanhúspósti" niður á kirkjusand.
ekki nóg með það, þá hef ég undanfarið verið í töluverðum e-mail skrifum við minn nýja þjónustufulltrúa sökum hroðalegrar fjárhagsstöðu. mætti ég því í vitlaust útibú áðan, viku of seint og bað um að senda ábyrgðina á þórdísi bjartmarz niður á kirkjusandi, kvaðst ekki alveg vera viss með nafnið en nokkuð viss um að það væri þórdís.

ákvað svo að dobble tékka þegar heim var komið hvort nafnið væri ekki rétt og komst þá að því, mér til lítillar ánægju að því að svo var nú aldeilis ekki! þjónustufulltrúinn heitir alls ekki þórdís bjartmarz heldur berglind þormar.
2 kvennmannsnöfn og eftirnafn voru mér greinilega ofviða!
(háskólanemar kannast kannski við þórdísar nafnið því hún starfar víst hjá aisec og hefur verið dugleg að senda mail á allan háskólann undanfarið. þar sem við erum því orðnar gríðarnánar er engin furða að ég hafi ruglast á nafni hennar og þjónustufulltrúa míns!).

en til þess að viðhalda letinni nennti ég náttúrulega ekki að hringja niður í banka, og klukkan þar að auki orðin 4 og neyddist ég því til að senda eftirfarandi mail á e-n þjónustufulltrúa í garðabæ þar sem ég man að sjálfsögðu ekki hvað konan sem ég talaði við heitir:

Sæl,
ASNI* heiti ég og var í útibúinu hjá ykkur rétt áðan. Ég rétti þjónustufulltrúa þeim er situr í miðjunni í röð þriggja þjónustufulltrúa, fjær innganginum, sjálfskuldaábyrgð á mínu nafni og bað um að senda hana niður á Kirkjusand, í útibúi 515.
Eitthvað var ég ekki skýr í kollinum þegar ég sagði að þjónustufulltrúinn sem ætti að fá bréfið héti Þórdís Bjartmarz, því það er alls ekki rétt nafn. Þjónustufulltrúinn sem á að fá fyrrnefnda ábyrgð heitir BERGLIND THORMAR.
Ég hef verið i samskiptum við þessa Þórdísi en á allt öðrum vettvangi og kemur hún hvergi nærri bankanum.

Það væri vel þegið ef hægt væri að leiðrétta þennan misskilning og koma bréfinu á réttan móttakanda.

Afsakið ónæðið,
Kærar kveðjur,
FÁVITI**

*og**, nöfnum breytt til að falla betur að frásögn.

nú var ég síðan að fá villumeldingu um að mailið hafi ekki komist til skila, haldið þið að guð vilji að ég lendi í fjárhagsvandræðum??

ég held að mér sé ei viðbjargandi!!

og ég var að byrja á túúúúúúúr:,(

"hvað á ég að gera þegar ég verð stór"-krísa


það var þá aldrei að sá dagur liði án þess að "hvað á ég að gera þegar ég verð stór"-krísan léti ekki á sér bera. hún birtist í ýmsum myndum, stundum sem hugsun er sveimar jafn fljótt úr huganum og inn í hann, en oftar en ekki sem nístandi stingur sem étur smá úr manni, sérstaklega þegar krísan slæst í lið með "lífið er ekki endalaust"-hugsununum.
þetta á sérdeilis vel við ástandið sem ríkir hjá undirritaðri um þessar mundir, engin vinna, enginn skóli, engar skuldbindingar...
mér finnst ég hafa gefið íslandi ótrúlega mikinn sjéns en ekki fengið neitt til baka...
á ég kannski bara að skella mér til útlanda núna og láta hlutina ráðast?
því spyr ég:
HVAÐ Á ÉG AÐ GERA ÞEGAR ÉG VERÐ STÓR???
er e-ð sem ykkur finnst að ég hafi átt að leggja fyrir mig en aldrei þorað að segja það?
(hér kemur kata með strippara brandara!!)
nú er tíminn, hit me!!!

1.2.06

fullnæging í formi



jæja, jæja, þá kemur loks það sem allir kærastar óttast og allar stúlkur elska, uppskriftin að frönsku súkkulaðikökunni hennar stínu sem garanterar fullnægingu við fyrstu snertingu kökunnar við tungu!
af prinsipástæðum vil ég þó taka það fram að þetta er og verður aldrei neinn helv. uppskriftasíða, heldur er þetta hugsað sem hjálpartæki ástarlífsins;)
njótið:

Frönsk súkkulaðiðkaka

Botn :
2 dl sykur
200 g smjör
200 g suðusúkkulaði
1 dl hveiti
4 stk egg

Súkkulaðibráð:
150 g suðusúkkulaði
70 g smjör
2 msk síróp


Botn:
Þeytið eggin og sykurinn vel saman. Bræðið smjörið og súkkulaðið saman við vægan hita í potti. Blandið hveitinu saman við eggin og sykurinn. Bætið bráðnu súkkulaðinu og smjörinu að lokum varlega út í deigið. Bakið í vel smurðu tertuformi (ath. ekki lau
sbotna) við 170°C í 30 mínútur.

Súkkulaðibráð :
Látið allt saman í pott og bræðið saman við vægan hita. Kælið bráðina svolítið og berið hana síðan á kökuna.

Ath: Kakan á að vera blaut í miðjunni. Bragðast einstaklega vel með rjóma eða ís og jafnvel niðursneiddum ávöxtum eða berjum.

hér má sjá ungar stúlkur í röð fá fullnægingu er kakan er smökkuð = raðfullnæging!