að drekka eða ekki drekka...það er spurningin
var að lesa síðu hjá ungri stelpu sem drekkur ekki og er að gera svo mikið og margt sniðugt. fór svo að heimfæra þetta yfir á mig, og ég er svo ófrumleg að ég veit eiginlega ekki hvaða uppbyggilegu athæfi ég ætti að nýta þynnkutímann í. mér finnst líka leiðinlegt að fara edrú á skemmtistaði, því þar eru allir svo fullir.
held kannski að þetta væri betri hugmynd af ég byggi í bænum, þá gæti maður verið svo social, kíkt út á kaffihús og fengið sér snarl og verið svona á farti án þess að drekka og farið heim þegar allt stefnir í vitleysu.
annars er þetta bara hugmynd, sem fer nú kannski ekki strax í framkvæmd, kannski á nýju ári?
þetta er samt svona svart/hvítt dæmi, því það er hægt að koma með endalausar ástæður fyrir undantekningum, en að sama skapi kannski auðvelt að verða fanatískur...
og maður nennir því ekki...


7 Comments:
Að drekka....stundum! :o)
eða bara .."að skoða eða ekki skoða bloggsíður hjá fólki sem maður þekkir ekki neitt... og er örugglega dreeepleiðinlegt og á engar krassandi skandalasögur"
Nei ég veit ekki... maður er að heyra þetta
Pottþétt að drekka! engin spurning! annað er engin vitleysa!! og það er slæmt!
Nei!!! Alls ekki hætta að drekka, mar verður að hafa einhverja skandala!!! Múhahahaha
Kveðja, Dúddinn
P.S. Er ofurölvi að koma heim af djamminu!!!!
ég hef verið í sömu pælingum, hef komist að því að atburðinn "að drekka í hófi" ætla ég að tileinka mér (ekkert smell-kex-blekun í hvert einasta skipti sem áfengi er smakkað). Á nú samt enn eftir að sjá þetta gerast....hhhmm
er þetta annsi sem man ekki eftir síðasta laugardagskvöldi??...
ahahah
að drekka í hófi er lífstíðartakmark, það er ekki svo hlaupið að því sjáðu til ;-) en þú hættir í það minnsta ekki að drekka fyrir árshátíð mín kæra!
dorrit
Post a Comment
<< Home