31.1.06

lobsterfestival og fullnægingarkökur


ég vil byrja á því að þakka þeim pjötlum er komu í afmælið mitt kærlega fyrir veglegar og fallegar gjafir, sem og þeim er hringdu og sendu kveðjur, svo ég tali nú ekki um öll símskeytin!!
mojito-inn à la helga og lindi var göðveikur, lobsterinn heppnaðist held ég bara ágætlega og KÖKUNNI HENNAR STÍNU verður best lýst með því að hún framkallaði einu þögn kvöldsins er gestir sátu orðlausir og létu súkkulaðifullnægingarhrollinn leika um líkamann. stína, farið hefur verið fram á uppskriftaropinberun á vefnum!
síðan tók við stíf drykkja hjá flestum, enda metnaðarfullir drykkjumenn á ferð. e-a hluta vegna urðu ég og miss drunky drunkerson, a.k.a. lindi blindi, einar eftir heima án þess að átta okkur á því að leigubíll væri að bíða okkar fyrir utan og vorum sallarólegar að mála okkur. komst lindinn fljótt að því að hún þekkti leigarakauðann og önduðum við léttar þar sem pyngja okkar beggja var galtóm. óóó, nema hvað, þarf lindinn ekki aðeins að létta úr malla á leiðinni, eða svo hélt hún. þurftum að svína svakalega fyrir bíl til þess að ná að stoppa á miðri leiðinni á milli kópavogs og reykjavíkur, svo að lindinn gæti komist út. nema hvað, hún var ekki alveg með á hreinu hvað var að gerast og þurfti ég að hlaupa á eftir henni þar sem hún var skyndilega farin að húkka far á leið í bæinn með mig bíðandi í leigaranum á kantinum og bíla á 100 km hraða æðandi framhjá. náði henni aftur inn í bílinn og með nokkrum stoppum fórum við að lokum út hjá hallgrímskirkju, og leigara"vinurinn" gaf ekki neinn afslátt (ég meina; what are taxi-pals for?) og þrufti ég að reiða fram miklar 3000 krónur með gúmmíkreditkorti!
lindinn tók sinn tíma að labba einn hring í kringum kirkjuna áður en við fórum í killer röð dauðans á ólíver, e-ð sem ég mun ALDREI gera aftur. byrjaði aftast í röðinni og hálftíma seinna var ég enn aftast í röðinni og heilir 2 einstaklingar farnir inn. það ásamt sífelldum dónaöskrum dyravarðanna varð til þess að ég afskrifaði þennan hnakkabar endanlega. við helgan héldum því tvær á leið á ölstofuna, stóðum í skamman tíma í mjög yfirvegaðri röð þar áður en inn var komið. fannst nú reyndar hafa runnið mikið af mér í dauðaröðinni en e-a hluta vegna hafa þessi "örfáu" hvítvínsglös sem drukkin voru á ölstofunni leitt til verulegs minnistaps! það sem ég veit skv.öruggum heimildum að gerðist er eftirfarandi: er ölstofan lokaði hélt ég með helgunni heim á leið, ætlaði að sofa á laugaveginum þar sem ég átti ekki neinn pening í leigubíl, eftir að hafa sungið fyrir ingva í símann hennar helgu skildi ég við hana á skólavörðuholtinu um 5 leytið.
hér kemur síðan það skrítna: á e-n óskiljanlegan hátt sem ég get ekki gert grein fyrir var ég næst komin í eftirpartý með e-u fólki sem verið hafði á ölstofunni á stað sem ég man ekki alveg fullkomlega eftir. ágætis fólk, en hvernig ég komst í kynni við það á leiðinni frá hallgrímskirkju niður á laugaveg átta ég mig ekki alveg á. það væsti þó ekki um mig þar og var klukkan orðin hálfníu er ég vakti pabba til þess að hleypa "óskabarninu" inn.
og hvað varð ég aftur gömul??
bara alveg á sama stað og í menntaskóla!

ok.kannski gerðist e-ð sem ég er ekki að segja frá, en það er bara fyrir mig og minn bömmer;)

af öðrum meðlimum er það helst að frétta að einn þeirra losaði sig víst við allt sitt magainnihald á mitt gólfið uppi á ólíver, LEKKERT! nefni engin nöfn í þessu samhengi;)

held að "drykkjupása" sé lausnarorð vikunnar! lindi blindi grætur allavega af gleði yfir því að hún sé að vinna næstu helgi og því úr allri djammhættu. ekki frá því að annar í þynnkustemmningu hafi svifið yfir vötnum hjá mörgum í dag.

annars hjálpuðum við lindinn spaní að flytja í sveitabæinn sinn í dag. fyrst þurfti reyndar að koma góssinu af holstrup, rúmið endaði með því að vera ferjað með 30 metra háum krana yfir þakið á húsinu og látið síga niður hinum megin, enga meðalmennsku hér! mæli kannski ekkert sérstaklega með því að fólk haldi út á landsbyggðina í fyrsta skipti í myrkri, enda öðlaðist svarta myrkur nýja merkingu. hvet samt sem áður alla til að kíkja á spaní í dalsgarði, þetta er sveitastemmari beint í æð!

27.1.06

Halló Akureyri!


haldiði að maður hafi ekki skellt sér til akureyrar í gær. þar sem spússinn var að fara til akureyrar og þurfti að gista vissi ég ekki í hvorn fótinn átti að stíga og spurði "en, hvað á ég þá að gera"?? og uppskar hið innilega svar "hva, þú getur þá svosem kannski bara komið með". ég stökk hæð mín af gleði. fór því í eftirdragi með síðustu vél norður í gær. ég var "sörpræs" fyrir löfuna. nema hvað, það tekur ekki nema svona 5 mínútur að keyra á milli bæjarmarkanna, en e-a fáránlegra hluta vegna náði lafan að vera tæpan hálftíma á leiðinni. sörpræs-djókið sem fólst í því að ég faldi mig á bakvið risavaxinn bækling og stóð 5 metra frá lindanum fyrir utan flugstöðina var því orðið jafn kalt og fingurnir mínir þegar lafan loks mætt á grænu þrumunni og skutlaði okkur upp á hótel kea. þaðan fórum við síðan og fengum okkur að borða á nýja staðnum "strikinu" (en barinn við hliðina á heitir parken, strikið, parken...get it??). þar var gómsætur matur en að honum loknum kíktum við í 2 mínútur á hýbýli löfunnar, en hlupum því næst til dittu, fyrrverandi sambýlings linda fyrir norðan, að horfa á house. að því loknu var haldið á odd-vitann að hlusta á trúbator sem er "kærasti stelpu sem býr með dittu". að því loknu keyrði lafan okkur upp á hótel og leiðir skildu. nú getur lafan ekki sagt að ég hafi aldrei heimsótt hana á meðan eins og hálfs árs dvöl hennar fyrir norðan stóð, en hún flytur aftur í bæinn á þriðjudaginn!
nú áttum við lindinn að leggjast til rekkju þar sem klukkan var að verða eitt og við þurftum að vakna klukkan 6. en sú varð ekki raunin. við fundum þátt úr fyrstu syrpu hinnar stórkostlegu þáttaraðar "baywatch" á e-i stöðinni og pissuðum næstum á okkur úr hlátri. djöfull eru þetta skelfilega lélegir þættir. samansafn af verstu leikurum, verstu kvikmyndatökumönnum, klippurum og sviðshönnuðum koma þarna saman til þess að búa til e-a verstu þáttaröð sem framleidd hefur verið. og þessu beið maður eftir á hverju einasta laugardagskvelid, óskiljanlegt!!!
hver man ekki eftir miss unibrow, shauny, og litla kærastanum hennar? að ógleymdum konungi ape-cuttanna, mister david hasselhoff, sem rölti um á skýlunni og rauða jakkanum með bringuhárin í fullum skrúða hvert sem landið lá. hvað þá þegar strandverðirnir hlaupa alvarlega grettir með flotholtin sín og "stökkva" yfir öldurnar, stinga sér því næst til sunds þegar vatnið nær upp að ökkla á sama tíma og allir strandargestir í kring eru ofurchillaðir að njóta lífsins í frisbí. síðan synda þeir út í e-a sundlaug og þar hefjast stirðustu og fáránlegustu björgunaratriði sögunnar!
óborganlegt! við lindinn erum að spá í að redda okkur syrpunum og hafa sérstök "baywatch" kvöld!
en þarna var galsa komið af stað sem ekki varð stöðvaður. hótel kea var e-ð að misskilja sig og var benestemmning í loftinu, bókstaflega. það var svona 50 stiga hiti inni á herberginu. þrátt fyrir að slökka á öllum ofnum og opna gluggann var óbærilega heitt. hótelglugginn okkar var auk þess hér um bil á miðjum kirkjutröppunum og þar sem við neyddumst til þess að hafa gardínurnar frá og opinn glugga, til þess eins að halda lífi, gátu saklausir göngumenn notið fagurbrúns og stinns bossa lindans sem skartaði g-streng einum saman í beinni sjónlínu frá krikjutröppunum. í kaupbætið fengu þeir "notið" náhvíts sellóhúðaðs afturenda míns!
galsinn virtist óendanlegur og náði fullkomlega að endurskapa "við erum 10 ára að gista saman og getum ekki hætt að hlæja því allt sem við segjum er svo fyndið, en megum ekki hafa of hátt því þá vaknar mamma og kemur og skipar okkur að fara að sofa"-stemmninguna. þegar klukkutími var í vöknun skipaði lindberg ró!
e-r sviptivindar voru í loftinu yfir eyjafirði og hélt ég að þessi flugferð yrði mín síðasta og kreisti höndina á lindanum hvað ég gat þar til ég óttaðist að brjóta eina gelnögglina hennar. þetta ku víst vera fastir liðir eins og venjulega, en ég er nú ekki alveg sannfærð!
eftir heimkomu braust lindinn síðan inn á nirðinum þar sem hún var læst úti. hvernig hún fór að því að troða annarri löppinni og búknum samtímis inn um þennan litla glugga flokka ég sem eitt af undrum veraldar, fólk getur ekki svona!!

kæri lindi, takk kærlega fyrir frábærlega skemmtilega ferð og gera mér kleift að verða tíu ára aftur!!

p.s. djammarar íslands, rúna rokk og gunni voru víst í þættinum "sirkús reykjavík" áðan! þar voru þau svellköld á avion group ballinu, ekki partý nema ljónin séu á staðnum;)

p.p.s. hvert er málið með sviptingu herra íslands? í fyrsta lagi er þessi gaur örugglega fínn, en hann er bara ekkert sérlega fallegur og átti ekki að vera herra ísland í fyrsta lagi. nema það var e-r símakosning og keflvíkingar hafa tryllst af æsingi og kosið sinn mann. einn vinur dawsons, bróður löfunnar, var til dæmis á æðra fegurðastigi en þessi maður. í öðru lagi var hann með e-n þátt áður en keppnin byrjaði, sem keppnishaldarar hafa átt að vita um. og í þriðja lagi heyrði ég að hann ætti 16 ára kærustu, eeeeeeeeeewwwwwww!

26.1.06

lobsterfestival, femogtyve år...



jæja litlu sauðir, þá styttist í lobsterfestival 2006. þið sem missið af þessu, tja,þið megið samt gefa mér afmælisgjöf, tekið er við blómum, krönsum og gjöfum allan laugardaginn;)

fyrir þessar með viti þá verður dagskráin eftirfarandi:18:30, mæting að sveitasetrinu þar sem tekið verður á móti ykkur með einum velsterkum mojito. síðan verður snæddur eðal humar í hvítlaukssmjöri og hvítvín með. í eftirrétt er síðan frönsk súkkulaðikaka, a la stína! mmmmmmmmm.

þema kvöldsins er, yes u guessed it, sex and the city. verða leiknir drykkjuleikir þar sem þekking manna á efni þáttanna verður reynd til hins ítrasta. þar sem ég er laglaus með öllu verður líka singstar! það eina sem gestir þurfa að koma með er reiðinnar býsn af búsi til þess að fylla ykkur sjálfar að kvöldverði loknum!

lindberg er búinn að sitja sveittur yfir gríðarlegra vandaðri photoshop vinnu, eins og sjá má á meðfylgjandi mynd! ef þið áttuðuð ykkur ekki á því að þetta væri ekki ég er ég sármóðguð, þið vitið allar að ég er með miklu stærri sixpakk en þetta!!! aahahah...

25.1.06

pöþettikk

viljið þið vinsamlegast segja mér að þið hafið líka fengi sms frá dómínós í gærkveldi þar sem tilkynnt var um árshátíð starfsmanna og beðist velvirðingar á óþægindum!

24.1.06

kynlífssveltir í borginni


þá er nú aldeilis viðburðarrík helgi að baki. dauðadrukkin báða dagana og er enn að átta mig á hvar ég vaknaði eiginlega, eða ekki! eyddi helginni með grasekkjunni lindberg, horfði á 40 year old virgin, 10-15 sex and the city þætti, að ógleymdri endursýningu á the sex inspectors.
frábært fyrir grasekkju og kynlífsþurfaling!
til þess að toppa nunnustemmninguna gisti ég hjá lindberg alla helgina, við elduðum saman, kveiktum á 52 kertum, rosalega rómó, sérstaklega eftir að lindberg fór í dragið, mér finnst hún svo rosalega sexý í því, svo ég talið nú ekki um þegar hún er komin með svarta dildó-inn, eeewww.
á sunnudaginn fór ég síðan í hvergigerði til þess að passa litlu rassálfana mína. þeir eru náttúrulega sætastir, eins og sönnum rassálfum sæmir. hélt það yrði mitt síðasta er blinbylur skall á á miðri hellisheiðinni og ég sá ekki út úr bílnum, hvað þá þegar ég skautaði niður kambana, af hverju búa ekki bara allir í 101?;) sigfús frændi er orðinn sjötugur um aldur fram og talaði óspart um "þegar ég var lítill" og "í gamla daga", hann er þriggja ára. ýtir enn frekar undir aldursvangaveltur hjá mér, verðandi 25 í þriðja skiptir á laugardaginn!
já, talandi um það. þá erum við hjónakornin að spá í að hafa humar og huggulegheit í tilefni dagsins, áður en við drekkum frá okkur allt vit til þess að drepa alla kynlífsþörf, virkar það ekki örugglega þannig? allir velkomnir með, þ.e. "allir = þær 5 hræður sem eftir eru á klakanum".

20.1.06

someone is getting married


well, ok, mayb not me,but someone is.
á morgun er ég að fara að gera nokkuð sem ég hef aldrei gert áður, ég er að fara með helgu að máta BRÚÐARKJÓLA! þ.e. helga mátar kjóla og ég skoða, ekki máta. ákvað nú að veita henni stuðning, greyinu, þar sem hún þarf líklega á honum að halda á stundum sem þessum;)
spurning hvort þess gerist nokkuð þörf ef ég sýni henni þennan líka lekkera kjól sem ég fann á netinu og má sjá hér til hliðar, hvað segiði, ekki "ekta" helga?
annars hefur mér þegar verið boðið í 2 brúðkaup næsta sumar og hef ég strengt þess heit að mæta ekki ein! því er örvæntingarfull leit að date-um fyrir bryllupin á næsta leyti! helgu brúðkaup er eftir versló og get ég því sameinað 2 heiti. annars vegar áramótaheitið metnaðarfulla að fara á þjóðhátíð og þar get ég síðan fundið date-ið fyrir seinna bryllupið...
alveg eins og í sögu, ég er að segja ykkur það!

annars er smá krísa:
það er partý með skólafélögum á morgun sem ég sé mér ekki fært að mæta í þ.s. ég meika ekki að vera spurð 334 sinnum að því hvað ég er að gera og þurfa að segja 334 sinnum frá því að ég sé "í fríi" = prumpa undir sængina
er það ekki algerlega skiljanlegt?

19.1.06

nu skal vi alle sammen gå i biografen


já, ekkert lát virðist vera á frumsýningum mynda sem vert er að sjá þessa dagana. kominn tími til, verst að þeir koma með svo mikið af myndum á sama tíma að maður nær ekki að sjá þær allar.
næstu 2 daga hyggst ég sjá framhaldið af l'appartament espagnol og ekki má gleyma tilvonandi eiginmanni mínum, jakey poo, í brokeback montain. þar sem ég á engan pening mun ég ekki djamma um helgina.
neyðin er slík að ég hef þurft að grátbiðja rúnu rokk (a.k.a. mia madre) um pening svo að ég geti farið í bíó. já, ef þið eruð búin að gleyma því þá ER ÉG AÐ VERÐA 27 ÁRA EFTIR 9 DAGA! og þar sem allir vita að það er nú ekki góðs viti að betla peninga af foreldrum sínum þegar maður hefur náð "the big 27" er nú eins gott að nýta tímann núna!
(eða er ég kannski bara 10 árum á eftir?)

p.s. er william shatner að missa ´ða??

18.1.06

schnillingur?

ef ykkur leiðist og vantar e-ð til að stytta ykkur stundir, eða þið hafið mikið að gera en langar að lesa skemmtilega vitleysu (a.k.a. stytta ykkur stundir) mæli ég eindregið með afurðinni skemmtilegt afbrigði, sem finna má hér á vinstri kantinum og tilheyra mun flokkinum "framandi mjólkurkýr".
þar er á ferðinni allsendis ókunnugur ungur maður sem virðist sérdeilis léttur á bárunni, eða eins og fólk gerist best. í kjölfar þeirra stórtíðinda að íslendingar eignuðust sína þriðju alheimsfegurðardrottningu virðist unnur birna honum sérlega hugleikin!
til að komast á bragðið mæli ég með færslunni síðan 9.janúar 2006 er hann lýsir heimsókn sinni á elliheimilið grund!

ef e-r hefur upplýsingar um umdræddan einstakling, endilega deilið!
og sorry single, hann á víst sína "sjerstöku kærustu", ekki að það skipti miklu máli þar sem þið eruð flestar löngu búnar að finna ykkur ykkar eigin sængurhitara, svikarar!!

og ég er ekki bitur!!!
án gríns!!

Sjáiði hvað er gaman á Íslandi

já, þið þarna útlandanördar, sjáið þið bara hvað það er gaman á íslandi í friði og snjó:
(myndum stolið frá lindberg)
lindinn mundar súluna líkt og sannur atvinnumaður, enda skortir ekki æfinguna á þeim bænum eftir að single fékk kennslu frá þeim bóhem stúlkum á árshátíðinni fyrir þremur árum, sælla minninga! vil sérstaklega benda á hversu vel útfærð smáatriðin líkt og fingrasetningin eru.

gleði, gleði, gleði, gleði líf mitt er! fátt jafn hressandi og að skella ser út í fimmtán stiga gadd í janúar. já, kæru útlendingar, eat that;)

(nei ég var ekki lamin í framan, smá þrútin eftir að hafa sofið til klukkan 14, kemur fyrir á bestu bæjum)

please don't leave me!!!!

ég vil biðja vini og vandamen vinsamlegast að slaka aðeins á brottflutningnum. ÞAÐ VERÐUR BRÁTT ENGINN EFTIR!!!!!!
var að kveðja enn einn í kvöld, þetta er hætt að vera sniðugt! fljótt á litið lítur þetta í grófum dráttum svona út:

ása: parís
berit: århus
anna hera: köben
geiri sæm: köben
auður: köben
marie kate: glasgow
bryddarinn: madríd
jó-l: boston
anna sigga: álaborg
ásdís: parís
dóra: montreal

og þeir sem eftir eru;
ólöf: sveit
aníta: sveit
tinna+tinna: giftar
stína: gift+2 börn
anna+arndís: giftar og/eða börn
kata: gift og að gæla við beinu brautina í lífsvenjum
helga: gift
bibba: einhleyp en mjög metnaðarfullur námsmaður
berglind: grasekkja
...(ef þín er ekki getið hér þýðir það ekki að ég elski þig ekki;))

hvar hafa einhleypingsdagar lífs míns félögum sínum tapað???

fyrir utan það að 70% þeirra sem eftir eru verða líklegast fluttir út innan árs!
í kvöld var það eina sem ég hugsaði: ég verð að drífa mig líka svo ég verði ekki ein eftir!
núna mun ég því að leika við lindberg, berglindi og linda blinda!

óska bryddaranum samt frábærra stunda í madríd ásamt kristni r. ólafssyni!
mun reyna að koma hið fyrsta í besög, hef heyrt að vinir hans frans séu sérdeilis lekkerir;p

i'm all out of love
i'm so lost without u
i know u were right...

16.1.06

nú er sumar, gleðjist gumar, gaman er í dag...not


shit hvað það er mikið skítaveður hérna. chilla á frostinu, láréttu snjókomunni, 20 metrunum á sekúndu og 3 klst af sólarljósi á dag, öllu í einu! give us a chance here god!

ég er að íhuga lögsókn á hendur volkswagen verksmiðjunum. lásakerfi VW golf bíla þeirra hefur reynst mér hreinasta helvíti og blóðmjólkað budduna. í fyrsta lagi kostar 6000 krónur að fá nýjan lykil. svo hafa báðir lásarnir brotnað og hefur kostað 10.000 krónur að laga hvorn þeirra. reyndar skrifast annar þeirra á fyrrverandi hjásvæfu þar sem ég var í 5 km radíus frá heimili hennar og hefði hún verið með röntgenkíki út í glugga væru góðar 0,033% líkur á því að hún hefði náð að sjá mig. því var ég gríðarlega stressuð og braut lásinn:( hinn brotnað síðan í e-i óþolinmæði.
að ónefndri þeirri miklu skemmtun sem það var að láta nonna frænda draga mig upp í heklu er eina lyklinum var stolið með STOLNU TÖSKUNNI í október. ég vil hér með þakka túristunum sem ýttu mér þegar ég var stopp á barónsstígnum og nonni frændi líkt og eldhnöttur í framan að öskra á mig af bræði vegna lélegra aksturshæfileika.
nú ætlaði gunni að vera rosalega góður í gær og setja svona frostvara í lásinn....óóó, eins og ogguponsustundum þegar gunni ætlar að laga virðast hlutirnir ekki gera það sem þeim var ætlað. í stað þess að afþýðast hefur hurðaopnarinn farið í verkfall.
núna er ég því með tveggja dyra bíl þar sem bara er hægt að aflæsa bílstjóramegin og opna hurðina farðegamegin, en hvergi bæði í einu!
var því rosalega grand á mínum fjallabíl með SKÍÐAGRINDINA vinsælu í viðtali áðan, skríðandi inn og út úr bílnum, classy!!!

orange county


matarlystin komin aftur, hefði nú mátt halda sig fjarri aðeins lengur! viðeigandi meltingartruflanir í fullu fjöri núna.
er að hlusta á travis, the man who, sem minnir mig alltaf á að keyra skammlífa gólfinn minn yfir tjarnarbrúna með beriti, ásu og tásu í bílnum að syngja why does it always rain on me. nýflutt á laugaveginum og e-t mesta djammtímabil lífs míns, á íslandi, í blóma. gott ef það er ekki eina skiptið sem allur single hópurinn var í háskólanum á sama tíma, sem þýðist: slæparar allra landa sameinist, þið hafið engu að tapa nema vitneskju!

stórkostlegt framlag hjá skjá einum að endursýna alla sex þætti vikunnar á sunnudögum, maður öðlast svo miklu betri yfirsýn og mætir miklu betur undirbúin fyrir þætti komandi viku;)

myndinni "orange county" var að ljúka á stöð 2, sem ég horfði ekki á, lofa, búin að sjá hana, hún þykir vonandi seint merkilegur pappír, nema kannski fyrir það hversu margir góðir leikarar eru í þessari kjaftæðismynd.
the point: í lok myndarinnar er spilað upphafslagið í þáttunum "the o.c." California. ok kannski vissu þið þetta en, hljómsveitin sem spilar lagið heitir phantom planet og var m.a. stofnuð af trommuleikaranum Jason Schwartzmann þegar hann var 14 ára. sem væri ekki frásögu færandi nema Jason er líka leikari og systursonur Francis Ford Coppola, sem þýðir að hann og Sofia Coppola eru systkinabörn og er hann þá einnig frændi nicolas cage (fæddur coppola, en vildi ekki nota ættarnafnið sér til framdráttar).
hann er s.s. fæddur 1980, mamma hans er systir francis ford coppola og hefur sjálf verið tilnefnd til óskarsverðlauna, búinn að vera í hljómsveit sem er vinsæl síðan hann var 14 ára, lék í rushmore með bill murrey þegar hann var 18 ára...
ég skal sætta mig við bara eitt!

þetta viskubrot er í boði vogue, grínlaust!

svo verðið þið að kíkja á flickr explore, þar er endalaust mikið af endalaust flottum myndum...
eins og þessi af mínum tilvonandi surfara kærasta!
það er annars ein íslensk gella sem er göðveikt vinsæl þarna, en hún tekur aðallega myndir af sjálfri sér, ef þið hafið áhuga getið þið tékkað á henni hér.

notte

sturlun


held að fögur nýársheit hafi náð nýjum hæðum...
Lerti Latínó er búinn að missa það!!
Hann er búinn að greiða 25.000 kr. innborgun í utanlandsferð til NY og hefur hafist handa við að æfa fyrir MARAÞON...og ekki bara e-t maraþon, heldur New York maraþonið sem fer fram í nóvember næstkomandi. tók lertinn til að mynda 7 km. í snjó í elliðaárdalnum í dag. hann er þó ekki einn á leiðinni á klepp, heldur heill flokkur.
flokkurinn hefur opnað heimasíðu til að halda geðveikinni við, þeir sem vilja fræðast um hvernig sokka er best að klæðast við þessi tilefni, og allta hitt líka, geta kíkt hingað: maraþonosturlun.
linkurinn verður settur á kantinn svo að fólk geti fylgst með þróun mála!

lindi, okkur vantar svona e-ð!!!

15.1.06

boston legal


ohh, smá búnir að missa sjarmann sinn.
danny crane reyndar veðbjóðslega fyndinn og james spider góður, svo og gamla gellan úr the golden girls.
fæ samt alltaf á tilfinninguna að william shatner sé við það að springa. er þó enn að svekkja mig á því að hafa misst af honum syngjandi common people í jay leno hér um árið, hef samt náð því í útvarpi, schnilld.
hvað um það, tásan er án nokkurs vafa mesti william shatner aðdáandi frá upphafið...
join us again next week for more true stories on rescue 911...

14.1.06

sumir eru bara aðeins seinni en aðrir...
þetta er nú ætlað þeim er ég þekki sem ekkert hafa að gera, og einnig þeim sem umhugað er um mig til að sparka í rassinn á mér þegar hann hreyfist ekki neitt!...
sem er reyndar frekar algengt þessa dagana...

þegar koma dagar sem eins og:
vaknaði klukkan tvö og horfði á opruh
lagði mig síðan til 17 og horfði á nágranna
borðaði kvöldmat og lagði mig
vakti svo og horfði á sjónvarpið til klukkan 7

megið þið hlaða hagglarann og mæta með hann í sveitina, því þá er ég réttdræp!!!

annars er það stórkostlega í fréttum að ég er búin að vera með vinsælustu pest dagsins í dag, enga aðra en gubbupestina, always in fashion!
ég mun ekki geta borðað fajitas næstu árin, rétt eins og jóa fel brauð með pestói fór á bannlistann eftir eina pestina fyrir nokkrum árum. þegar maturinn kemur medium ómeltur upp úr manni aftur og maður finnur enn bragðið af honum, í bland við ælubragðið, líður yfirleitt að löngu áður en mann langar í hann aftur!

í kvöld er ég búin að vera að basla með þessa síðu. get ekki lagað fokkings "rjómann" hérna á kantinum, hann vill ekki vera þar sem hann á að vera!! ef e-r kann að laga látið vita.

setti líka inn nokkra linka sem mér finnst skemmtilegir, bara ef ykkur leiðist eða nennið ekki að gera það sem þið eigið að vera að gera.

jæja, best að slútta þessu áður en boston leagal byrjar. slaaaaka, ekki búin að horfa á neitt í sjónvarpinu í dag, þ.e. fyrir utan e-a klappstýrumynd á rúv í dag, algerlega lífsnauðsynleg! það er hins vegar bót á helsta vankanti sjónvarpsgláps míns á næstunni, nýr sófi, gamli blái bryddarans, verður prufukeyrður í stað bleika flikkisins, sem ber þann vafasama heiður að vera óþægilegasti sófi í heimi!!

vinsamlegast deilið sögum sem hafa orðið á vegi ykkar, sama hversu ómerkilegar ykkur kann að þykja þær þá eru þær allavega meira spennandi en mitt snauða líf!

ég mæli annars með:
almost famous
syngja tiny dancer þangað til lungun næstum springa, stundum betra í bíl
vanillu ilmkertum (eitt slíkt var einmitt í stolnu töskunni, passið ykkur, fólk er tjúllað í þau)
chet baker
low

p.s. þið verðið að kommenta annars nenni ég þessu ekki!

á presto
il onore