roadtripping

allt erfist nú! eftir að hafa unnið á laugardegi hófst chill með völu litlu, litlu systur. við fórum í hagkaup og keyptum bland í poka fyrir 1400 kr.,eða rúmar 700 kr. ef t.t.t 50% laugardagsafsláttar! vala er sko alveg jafn mikill nammigrís og ég, og þið vitið að ég er enginn viðvaningur. síðan pöntuðum við devit's pizzu í kvöldmatinn, en nammi og devito's var líka morgunmaturinn daginn eftir (bara afgangar sko, við keyptum ekki meira), mmmm. þ.s. ektakona föður míns (fekk, pabbi átti afmæli í dag og ég gleymdi að hringja...en ef hann er í útlöndum telst það þá með??) á svo góðan díl að vera á 2 fyrir 1 á james böndum ákvað ég að nýta mér það í 4 fyrir 2. náði að horfa á 4 dvd myndir á rúmum 12 tímum, nokkuð gott!! þ.s. ég tek svo sjaldan video núna finnst mér skyndilega svo mikið sem ég á eftir að sjá á leigunum og á því erfitt með val.
ein myndanná sem ég tók var elizabethtown. hafði heyrt af fólki sem fannst ekkert sérlega mikið til hennar koma, en mér fannst hún æði. mér finnst cameron crowe frábær leikstjóri sem nær alltaf að gera mannlegar (ok.veit það hljómar klént) og skemmtilegar myndir með frábærri tónlist sem spilar stóra rullu í þeim. ekki spillir svo fyrir að orlandi bloom leikur í henni, svo hefur kirsten dunst e-n x-factor við sig sem gerir hana ómótstæðilega (þó hún hafi reynt að stela jakey poo frá mér!).
í myndinni fer mitch í road trip sem varð til þess að endurvekja road trip löngun mína, því spyr ég: er e-r til í road trip um usa í haust, get ekki verið lengi, bara svona 2-3 vikur...
það væri göðveikt!!


4 Comments:
Iss er sko ekkert sátt við ms Dunst, fannst hún ganga allt of langt með að stela Jakey frá sjálfum X-pre...! Það eina sem gerir hana æði í mínum augum er að hún minnir mig pínu á hana Dóru okkar
Kemst ekki með í road trip en styð þessar hugmyndir þínar heilshugar ;) Þú verður bara að fara - mig hefur alltaf langað í svoleiðis :)
Hey Heiður, hann Kristian vinnufélagi minn er alveg sláandi líkur honum Jakey Poo þínum og hann er á lausu, svaka fínn gaur en ekki sá stabílasti í kvennamálum ef þú skilur... svo er hann með hommafóbíu og segist sko EKKI ætla að sjá tvífara sinn í Brokeback Mountain. Hvernig væri að kíkja við í Montréal á road trippi?
Og bæ ðe vei, ég held þú hafir klikkað eitthvað í hlutverki þínu sem slúðrari átklúbbsins ef það er rétt sem ég var að frétta um hana Arndísi í kommentakerfinu þínu!
ahaha...
ég fékk líflátshótanir og með því er ég frétti af arndísi löngu fyrir átó, og þar sem ég óttaðist um líf mitt þorði ég ekki annað en að þegja;)
já, það lítur út fyrir að ég hreinlega verði að koma við í montreal!!!
Post a Comment
<< Home