VAMOS A LA BARÞE
þá erum við stöllur farnar (eða förum eftir hádegi á morgun, fimmtudag). kem heim um miðnætti á mánudaginn. verð ekki með síma en helga verður með sinn ef það er e-ð svakalega merkilegt að gerast á djamminu!

og arndís, mér hefur orðið hugsað til barcedjammferðar okkar. nú set ég markið hátt; að æla EKKI á gólfið á sagrada familia, eða nokkurri annarri opinberri byggingur for that matter, og bara helst ekki neitt yfir höfuð, því ég hef jú þroskast svo mikið frá þessum tíma;)
AÐÍ...
Tra, la la la la la, viva Espania., tra, la la la la, viiiiiiiiva, Espania....
Ég elska helgu vinkonu, ég elska ingva manninn hennar*, ég elska frjálsa lýðræðisþjóð líkt og ísland er, þar sem hver og einn getur látið til sín taka. ég elska alþingi íslendinga og ég elska björn bjarnason. svo ég tali ekki um hugbúnaðarfyrirtækið hug**!!
Af hverju, af því að eftirfarandi atburðarrás er ólíkleg til þess að eiga sér stað:
Ingvi er varavaravaraþingmaður sjálfstæðisflokksins á alþingi
Allir geta farið í framboð til Alþingis.
Fólk hefur mikið og margt að gera og vara- og varavaraþingmennirnir fara í önnur störf.
Síðan fer Björn Bjarnason erlendis í embættisferð í 2 vikur og þar sem vara- og varavaraþingmennirnir eru vant viðlátnir er kallað á varavaravaraþingmanninn og honum skellt inn á þing.
5 dögum síðar var áætluð árshátíðarferð vinnu unnustu varavaravaraþingmannsins sem var löngu ákveðin og búið að greiða fyrir.
Ljóst er að þingmaðurinn kemst ekki í ferðina...
OG ÞVÍ BÍÐUR ELSKULEGA UNNUSTAN VINKONU SINNI Í STAÐINN!!!
ÉG ER AÐ FARA TIL BARCELONA Á FIMMTUDAGINN OG KEM HEIM Á MÁNUDAGINN ÞAR SEM ÉG GISTI HELT GRATIS Á 4 STJÖRNU HÓTELI RÉTT HJÁ RÖMBLUNNI...
Við helga málum bæinn rauðan!!!!!!!!!!
Tra, la la la la la....VIVA ESPANIA
ESPANIA POR FAVOR!!!
*þynnkubíllinn hér um árið sem sótti hverja single snótina á fætur annarri skraufþunna á helstu götuhornum borgarinnar og hélt síðan með þær að kjósa í valhöll hefur sko heldur betur skilað sér...allir í næsta prófkjör
** hér mun stína vinkona tryllast. binni, hennar ektamaður vinnur sko hjá hugi og er að fara í ferðina. en stína situr ein heima með sveitt ennið í próflestri í lagadeild með 2 lítil börn þeirra og mamma hennar búin að þurfa að taka frí í vinnunni til þess að passa, en ég held hún væri alveg til í að fara með og verður örugglega ógéðslega ánægð að lesa þetta;)
sumarfríið í ár

þrátt fyrir að sjá ekki fram á að komast á þessu ári réttu megin við núllið á yfirdrættinum mínum hef ég ákveðið að fara í sumarfrí í haust.
ég ætla að halda til lands tækifæranna, þar sem allir eru frjálsir, hamingjusamir og fullkomnir!
sjáiði bara..

þarna á ég greinilega heima!!
auk þess að kíkja til lands nýfasistans bush ætla ég að fara norður yfir landamærin til kanada, á slóðir vestur íslendinga, eða næstum því! í montreal ætla ég að heimsækja dóru og eiginstrákinn hennar pétur. dóra verður einmitt hætt í vinnunni þegar ég kem þ.s. hún er að fara að byrja í skóla og við getum því látið öllum illum látum saman!! hún segir montreal vera geðveika borg, alltaf e-ð að gerast þarna, eða "new york norðursins" eins og hún orðaði það svo spennandi.
í usa er planið að heimsækja herra jó-l. mun ég því eyða nokkrum dögum í boston, síðan ætla ég að reyna að draga hann e-ð ud på landet í netta road trip. mig langar náttúrulega brjálæðislega mikið til ny, en er ekki með gistingu, ef ég get reddaði því á patent hátt mun ég ekki hika við að fara þangað líka!
í stórum dráttum er planið því:
boston-road trip- montreal-helst ny líka.
stefnt er að því að fara út 14.ágúst og vera í svona 2 vikur.
eina vandamálið eru stórkostlega há flugfargjöld, ég finn ekki fargjald undir 60.000 kallinum, og þá á ég eftir að koma mér til kanada.
svo ef þið vitið um hagkvæma leið, endilega látið mig vita. og ef flugfreyjur eru að lesa og langar að taka mig sem vin með og vera með og leika í usa, be welcome!
Gleðilegt sumar mín kæru


loksins, loksins, loksins...
sumarið opinberlega komið, þó mer finnist það í raun enn í felum.
hér bíður maður 9 mánuði eftir sumrinu sem er síðan oft farið áður en maður fattar að njóta þess.
er það merki um óstjórnlega útþrá og eirðarleysi að finnast maður alltaf vera að bíða eftir því að lífið byrji á íslandi en að maður sé að lifa því í útlöndum. því grasið er í raun miklu lengur grænna þar en hérlendis.
eða er það bara ég?
skál fyrir sumrinu!
er það ég eða??
er ógéðslega þunn og enn með linsurnar síðan í gær en ég sé ekki alveg í gegnum þessa frétt:
Innlent mbl.is 17.4.2006 19:11
Höfðu komið sér fyrir í húsi í leyfisleysi
Tveir menn voru handteknir í húsi í Fossvoginum í Reykjavík nú síðdegis en þeir höfðu komið sér fyrir í húsinu í óþökk eiganda þess. Fram kom í fréttum sjónvarpsins að meint hass og hvítt duft hefði fundist í húsinu auk raftækja, sem talin eru stolin, og andarunga, sem fluttir voru í Fjölskyldu- og húsdýragarðinn.
er þetta endir á annarri frétt eða stálu mennirnir andarunga??
lazy bitch

eins og sjá má er ég orðin (eða hef alltaf verið??) svo mikil sófakartafla að sófinn og ég erum orðin samlit. það eina sem "skemmir" hið fullkomna letilíf mitt er ofvirkni rúnu rokk og gunna game. þau eru um þessar mundir að missa sig í innanhús málun og sparsli, og fullkomnun leti minnar næst ekki vegna samviskubits sem blossar upp að ég skuli hjálpa, ekki að ég hafi stigið það skref til fulls að bjóða í raun fram hjálp mína!
ég hef hins vegar gengið svo langt að leita mér skjóls annars staðar þ.s. leti mín mun ná að blómstra hvað mest hún má. er þetta eðlilegt, or is it just me?
í öðrum fréttum var tvöfalt djamm um síðustu helgi, sem ég er enn að jafna mig á. þar varð á vegi mínum mesta SÆKÓBITCHFROMHELL sem ég hef á ævi minni kynnst. enduðu kynni þau á því að ásgerður arna mr-vinkona lenti upp á spítala með sýklalyf í æð eftir að sækóbitchfromhell réðst á hana og beit hana nokkrum sinnum til blóðs. óða tíkin er í líki lítillar druslu sem gengur um í gæru (mjög við hæfi). ég bið lesendur um að vara sig á henni þ.s. ég býst við að hún sé strokusjúklingur af geðdeild lhs og til alls vís. hún virðist ráðast að fólki algjörlega að ástæðulausu og er því best að halda heim á leið er hún verður á vegi ykkar því hún heldur bara áfram og áfram og áfram. til að mynda kom athugasemdin "ég vona að puttinn á þér drepist, og þú líka" frá þessum geðsjúklingi eftir að hafa bitið ásgerði til blóðs.
mesta kaldhæðnin er nú samt að hún vinnur á leikskóla!! ef þetta er ekki manneskjan sem þú vilt að hugsi um börnin þín veit ég ei hvar hana er að finna!
í sófakartöflustemmaranum í dag hef ég náð að horfa á fullt af myndböndum á skjá einum sem ég hef ekki séð áður. sá til að mynda jeff who myndband sem mér fannst rosa flott (maren ert þú að dansa þarna e-s staðar?). maren sem hljómsveitarmakapía fór með í tónleikaferð bandsins til new york, það var víst ekkert rosalega leiðinlegt;)
fyrir þá sem ætla að taka smá chill á letinni á morgun og kíkja út, mæli ég eindregið með 80's fatasölubasar veddarans í kolaportinu, sjá
hér. gæði auglýsingarinnar einnar gera ferðina þess virði, þetta hlýtur að vera bomba.
ég stefni ótrauð að áframhaldandi letipáskum, utan þess að maður kíkir kannski út á sunnudaginn, ef maður nennir að eiga í hættu á að lenda í alvarlega geðsjúkum vistmönnum klepps.
og síðast en ekki síst: ÁSTA BERIT ÉG ELSKA ÞIG!!
gaman gaman

detti mér allar dauðar, haldiði að maður hafi ekki skellt sér í sund í vikunni. e-ð sem ég hélt ég myndi ekki fást til að gera í mínu líkamlega ástandi, en viti menn. það var líka svona gaman og náðist þessi skemmtilega mynd af mér í smá sprelli!
naah, þeir sem vel til þekkja að ég myndi aldrei fara í sund og því er þetta óskilgetin tvíburasystir mín á myndinni!
nú er komin smá krísa fyrir helgina, ekki vond krísa per se, bara þessi klassíska "ég verð alltaf svo þunn að ég get ekki djammað 2 kvöld í röð" krísa. e-ð vinnugigg á föstudaginn, gæti reyndar verið frekar rólegt, sé nú ekki marga drykkju-jafnoka þarna í deildinni. á laugardaginn er löngu lofað djamm með hafdísi, maren og ásgerði. við áttum ófáar ölvaðar stundir saman í menntaskóla en síðast þegar átti að sletta úr klauf enduðum við standandi edrú í grenjandi rigningu á laugaveginum án þess að fara inn á nokkurn stað, og héldum bara heim á leið. nú eigum við harma að hefna og hefur kvöldið verið ítarlega skipulagt með það fyrir augum að ná megi upp sem allra mestri ölvun og djammið verði sem tryllst, fróðlegt verður að sjá hvernig til tekst.
þá er bara að vera "dönnuð" á föstudaginn. það getur varla verið mikið mál, nema fyrir manneskju sem hefur aldrei náð skilningi á því orði!
ó hve glöð er vor æska

hvað haldiði að maður hafi gert um helgina? þegar nanny.is á í hlut kemur auðvitað aðeins eitt til greina, já, passa! annars skemmti ég mér mjög vel, enda ekki annað hægt þegar um schnillingana hér á vinstri hönd er að ræða. vala, aron og fúsi mús. verst að það er lítið hægt að athafna sig úti við sökum frystistemmningarinnar sem ríkir um þessar mundir.
þessi mynd er tekin fyrir utan hjá lindberg í gær er ég og mitt gengi gerðum innrás á nývaknaðann lindann sem var gríðar "ferskur". til þess að fullkomna fjölskyldupakkann fór ég í mína aðra fermingu í röð í dag. þar var forseti vor (ekki single sko) viðstaddur en mér til mikilla vonbrigða engin dorrit! fékk því ekki að bera tískudrottningu íslands augum.
ektakona föður míns var í frosti og snjó á akureyri á föstudaginn og sneri sig í hálku með þeim afleiðingum að hún braut og sleit öll bein og liðamót sem hugsast gat í öklanum, verður bumbult við tilhugsunina. fór beint í aðgerð og er high on morfín fyrir norðan núna.
fólk á náttúrulega ekki að hætta sér norðar en reykjavík!
talandi um reykjavík, mig langar svoooooooooo í íbúð í 101 en hef ekki efni á neinu á þessum okurtímum, góðar hugmyndir að húsnæðiseignavæðingu minni eru vel þegnar, mega helst snúast um annað en að selja sálu og líkama (myndi nú einnig líklegast hafa lítið upp úr því ef miðað er við eftirspurn eftir þeim "afurðum").
og um næstu helgi ætla ég að drekka mikið, mikið áfengi, allir velkomnir með í ósunda.