ljótar tær og stinn typpi

jæja, hálfvitar geta greinilega skráð sig á google eftir allt saman!
er búin að engjast um vegna löngunar minnar að tjá mig um ógéðslegustu auglýsingu mbl.is frá upphafi. þar er verið að auglýsa e-t meðal við tásveppum og birtist manni algjörlega að óvörum viðurstyggileg mynd af tá með hálf-afvisnaðri tánögl nánast efst á forsíðu mbl.
ég fyrir mitt leyti er sjúklega viðkvæm fyrir tám og skítugar, illa klipptar og annars ógéðslegar tær geta fengið mig til að kúgast mjög auðveldlega. ég ætlaði meira að segja að setja mynd af ógéðistám hérna fyrir ofan, en þær myndir sem birtust mér er ég googl-aði "ugly toes" fengu mig til að kúgast.
stinningarvandamál karlmanna virðist líka mikið auglýst núna. þar má sjá mann stíga inn í bíl með einkanúmerinu "stinnur". er ekki alveg að sjá tilganginn með einkanúmerinu, en þetta er kannski of djúpt fyrir mig.
ég vann því tvöfalt í síðustu viku er visnaða nöglin og herra stinnur birtust mér samtundis efst á mbl einn morguninn. nú bíð ég spennt eftir vitundarvakningarherferð frá húð-og kyn, þar er að finna gott stöff í góða byrjun á góðum degi!
Labels: ljótar tær
fólk er að missa sig
árshátíð single 2000 er á morgun...
25 hressar snótir...eru nefndarmenn að missa sig og ber þessi tilkynning sem prýðir forsíðu mbl.is þess glögglega merki
http://www.mbl.is/mm/folk/sos/event.html?event_id=378158megi guð vera með oss!!
Gleðileg jól!

gleðileg jól allir saman:)
frá lasna nördanum sem sofnar jafn alein og wilson muuga á aðfangadagskvöld, en það er náttúrulega bara allt í key, betra er autt rúm en illa skipað;)
hætt að drekka update
"I fell of the wagon", líkt og kanarnir segja, síðasta laugardag. eða hætti í smá stund við að hætta að drekka. í stuttu máli sagt er ég hætt við að hætta við að hætta að drekka, eða enn á því að láta þennan óþarfa eiga sig. þessi gullni meðalvegur er svo sannarlega ekki úr skíragulli, og ekki glampar miki á hann, eða það glampar svo mikið að ég fæ ofbirtu í augun, í öllu falli er ég ekki að finna kauða!
að drekka eða ekki drekka...það er spurningin

ég er svona að velta því fyrir mér, á sunnudegi í prófum, hvort það væri kannski bara sniðugt að hætta að drekka áfengi yfir höfuð. nú er þetta ekki þynnkudagur, svo þetta er ekki þetta dæmigerða daginn eftir "ég ætla aldrei að drekka aftur" syndrome.
var að lesa síðu hjá ungri stelpu sem drekkur ekki og er að gera svo mikið og margt sniðugt. fór svo að heimfæra þetta yfir á mig, og ég er svo ófrumleg að ég veit eiginlega ekki hvaða uppbyggilegu athæfi ég ætti að nýta þynnkutímann í. mér finnst líka leiðinlegt að fara edrú á skemmtistaði, því þar eru allir svo fullir.
held kannski að þetta væri betri hugmynd af ég byggi í bænum, þá gæti maður verið svo social, kíkt út á kaffihús og fengið sér snarl og verið svona á farti án þess að drekka og farið heim þegar allt stefnir í vitleysu.
annars er þetta bara hugmynd, sem fer nú kannski ekki strax í framkvæmd, kannski á nýju ári?
þetta er samt svona svart/hvítt dæmi, því það er hægt að koma með endalausar ástæður fyrir undantekningum, en að sama skapi kannski auðvelt að verða fanatískur...
og maður nennir því ekki...
þetta gengur ekki upp

nú fer senn að líða að 2 efnismestu prófunum mínum. ég er ekki að sjá mig komast yfir nema brot af efninu fyrir hvorugt þeirra, hvað þá að kunna, skilja og geta gert því einhver skil. er því skapi næst að setjast á gólfið, rífa í hárið á mér um leið og ég hlæ og græt til skiptis...
þið kannist kannski við þessa vonleysistilfinningu sem grípur mann þegar maður sér ekki fram á að geta svo mikið sem eina spurningu í prófunum, sama hvað maður lærir...
hún er í heimsókn hjá mér núna:(