2.12.06

þetta gengur ekki upp


nú fer senn að líða að 2 efnismestu prófunum mínum. ég er ekki að sjá mig komast yfir nema brot af efninu fyrir hvorugt þeirra, hvað þá að kunna, skilja og geta gert því einhver skil. er því skapi næst að setjast á gólfið, rífa í hárið á mér um leið og ég hlæ og græt til skiptis...
þið kannist kannski við þessa vonleysistilfinningu sem grípur mann þegar maður sér ekki fram á að geta svo mikið sem eina spurningu í prófunum, sama hvað maður lærir...

hún er í heimsókn hjá mér núna:(

3 Comments:

At 2:34 PM, Anonymous Anonymous said...

Hæ Heiður mín, þetta verður allt í lagi, þú ferð bara í prófið og gerir þitt besta og þá er þetta búið. Ég kíki alltaf annað slagið, reyni að kíkja ekki of oft því að það er miklu skemmtilegra að geta lesið nokkrar færslur í einu heldur en að vera alltaf að kíkja og bíða og bíða eftir að þú skrifir. Ég kem heim 18. des og er að deyja úr tilhlökkun. Engin lokapróf hér, bara verkefni sem er fínt. Ættum endilega að skipuleggja hitting um jólin.

 
At 8:55 PM, Anonymous Anonymous said...

Þú átt eftir að rúlla þessu upp, verður ekkert mál ;-) Kveðja Dúddinn

 
At 9:15 PM, Blogger il onore said...

til að fyrirbyggja ALLAN misskilning að eitthvað krassandi...eða eittvað yfir höfuð sé að gerast í ástarlífi mínu finnst mér vert að taka það fram að dúddinn heitir öðru nafni hafdís!!!

 

Post a Comment

<< Home