dvergaletur og risaleti

í dag fór ég í stærðfræðipróf. var gefinn sá kostur sem ég hef ekki kynnst áður að hafa með sér formúlublað. þetta má s.s. vera 1 A4 blað sem einungis má skrifa framan á. ég sá fyrir mér að maður páraði þarna nokkrar almennar formúlur sem maður hefði mér sér...þangað til ég kom að strákunum að rita microdvergaskrift á blað...mátti ég auðvitað ekki vera minni kona og tók að gera mitt eigið dvergskriftarblað...árangurinn má sjá hér að ofan...þetta tók heilan dag!!
kom það að einhverju gagni, var samt að klúðra nokkrum dæmum. en maður þarf bara að ná prófinu og þá gilda einungis verkefnin sem við skiluðum...undarlegt fyrirkomulag...
strákarnir með mér í náminu eru annars algjörir lærdómsnaglar. ég er vonlaus að byrja að læra sama dag og ég var í prófi. naglarnir mættu hins vegar vopnaðir bókum í skólann og höfðust handa strax að hinu prófinu loknu. ég fór hins vegar heim og lagði mig í 5 tíma, var svo að koma úr sturtu og svona núna. er síðan að fara að hitta hagfræðikrakkana á eftir...fékk líflátshótanir frá lerta latínó ef ég svo mikið sem myndaði þá hugsun að mæta ekki...lertinn líklega enn hyper (hyper, hyper) eftir new york maraþonið, en eftir það öðlaðist hann indíananafnið "blæðandi geirvarta". áhugamenn um maraþon og new york, eða lerta og jó-l, geta litið á geðsýkina hérna (jó-l var þarna for moral support og almennan spassaskap). þarna er reyndar ekki að finna myndir af lertanum með blæðandi geirvörtuna, en set link inn ef ég finn hann, enda algjört möst sí!
yfir ógéðis kjúklingaborgaranum sem ég fór með strákunum að fá mér í vikunni hélt einn þeirra því fram að franskar kartöflur rotnuðu inn í manni og meltust ekki. get alveg skilið að franskarnar séu tormeltar, en varla verða þær bara þarna eftir. hvað með ef þú borðar 1 kíló af frönskum á dag, þyngist þú þá um 30 kíló á einum mánuði?
er samt mjög skeptísk á svona djúpsteikt fitudót, enda gallblöðrulaus manneskja. finnst samt nett eins og kjúklingaborgarinn sé bara að rotna þarna inni núna, og það er ekki lekkert tilfinning!!!


