24.3.06

baby shower


á dauða mínum átti ég von en að ég yrði lélegur bloggari!! ástæðan er einföld, það er klikkun í vinnunni og ég er dauðuppgefin þegar ég kem heim. ég er allt í einu farin að skilja enn betur hvernig það er mögulegt að vakna einn daginn og vera orðin fimmtug og átta sig engan veginn á því í hvað síðastliðin 20 ár fóru.
ég er algert grænmeti, kem ógéðslega þreytt heim úr vinnunni, næ hvorki að elda mat, þvo eða þrífa, hvað þá að tala við nokkurn mann. hangi fyrir framan sjónvarpið og er svo komin upp í rúm fyrir miðnætti og sef síðan of lengi svo að ég kem of seint í vinnuna...en er alltaf þreytt!! rosalega spennand líf maður!
fór loksins í klippingu í gær, fór síðast í september, og það eina sem ég gat horft á í speglinum voru neonbláu, bólgnu baugarnir mínir sem öskruðu á mig!! eeeeewwwww!

fékk nú samt nettan púka og var að fara að peppa í djamm í kvöld þegar ég var beðin um að vinna á morgun, allt brjálað að gera.
svo get ég ei djammaði annað kvöld þ.s. ég er löngu búin að lofa að eyða kvöldinu með minni ástkæru litlu, litlu systur.

er e-ð að?? (syngist à la anna hera). er nýorðin 27 ára og geri ekki annað en að passa! kemst ekki á djammið því ég er að annast börn fólks sem er að djamma...er meira að segja bókuð næstu helgi líka...og dílemman er að mig langar mjög mikið að eyða tíma mínum með þessum litlu einstaklingum, ég verð bara að fórna tíma með stærri einstaklingum í staðinn!!
fyrr má nú rigna en að hellirigna börnum!
fór til hörpu mr-vinkonu í vikunni að sjá hennar afkvæmi, lilla pétursson, afar lekker. svo eru 2 alveg að fara að eiga úr þessum 7 manna hópi...was ist los!?
og frakklands arndís er ólétt!
the babies are taking over!

ég er með innri púka sem þarf að rækta, hann þarf á ykkar hjálp að halda!

p.s. í barnaregningu sem stendur um þessar mundir fæddist lítil stelpa malmquist sem á beriti sem föðursystur...ef þú ert að lesa elsku berit, innilega til hamingju:)

5 Comments:

At 11:57 PM, Anonymous Anonymous said...

Vá og ég sem var þvílíkt að reyna að hjálpa þér með púkann þinn þessa helgina en bara algert afsvar frá þér... bíddu þangað til ég bíð þér næst ;)

 
At 1:27 PM, Anonymous Anonymous said...

takk fyrir heiður mín:) hún verður sú fyrsta sem ég mun heimsækja þegar ég kem heim 7unda apríl.. en svo heimta ég eiginlega að e-r ykkar haldi lekkert partý laugardaginn 8unda apríl!!??
beritin

 
At 1:44 PM, Anonymous Anonymous said...

ER EITTHAVÐ AÐ DUDUDURURU DU DU DURURRURU....já elskan. Kannast við grænmetisstemmarann. Er núna límd vð skjáinn, enda Superstar Saturday á MTV. Jebs allt slúðrið um celebin í hollywood:-) Varðandi kraftleysi, mæli ég með jóga (er sjálf reyndar of löt í jóga, svo ég hef eiginlega ekkert efni á að segja neitt hér:-z en ég veit það virkar samt!)

 
At 11:41 PM, Anonymous Anonymous said...

.....ohhh hvað ég er að fíla þetta lag... og Önnu Heru...hahaha bara fyndið. Annars verður einkar hressandi að sjá Ástuna og taka gott Reykjavíkurdjamm með henni... og Heiði sem vonandi skilur tennurnar eftir heima og bítur engan... Áttunda segiði... hver er klár... það er enn ein ímynduð fríhelgi hjá mér svo ég ætti að vera klár í glens.... jaba daba dúúúú

 
At 10:17 AM, Blogger il onore said...

ahahah...stína, þetta mun vera í fyrsta og eina skiptið sem þú hefur verið að peppa mig til djamms síðan árið 2000, og það eru EKKI ýkjur!!

og spaní...skilja tennurnar eftir heima...ég hef nú ekkert verið að narta upp á síðkastip!!!...

maður er svo saklaus...enn að taka tennur og svona.

 

Post a Comment

<< Home