2 með öllu

bletzy, bletzy. ég hef gríðargóða afsökun fyrir bloggleysi. við skötuhjúin (blindi and I) höfum verið að gæta gríslinganna hennar þóreyjar síðan á lördag. mama mia, frábær getnaðarvörn. fór í dag og keypti skírlífsbelti, setti það á mig og ók síðan beinustu leið niður að sjó þangað sem ég kastaði lyklinum eins langt og ég gat!
þau eru náttúrulega algerar dúllur, en ég er bara ekki ready sjáiði til, fyrr en í fyrsta lagi eftir svona 10 ár!! við gistum hérna í næsta húsi við sveitasetrið, við hjúin. ég skal seg'ykkur það að það gefst nú ekki mikill tími fyrir rómans eftir að ungað hefur verið út, marr er bara alveg uppgefinn! svo er ekki hægt að panta svefntíma! á sunnudagsmorguninn vaknaði allt hollið fyrir sólarupprás en svo þurfti að draga það framúr á mánudagsmorgninum! ég grét næstum því í vinnunni í morgun vegna þreytu. fyrstu nóttina vorum við nefninlega með viggu víking upp í hjá okkur og hún gat með engu móti verið kyrr, gaf frá sér undarleg hljóð (à la aní, sjaldan fellur eplið...) og við báðar á olnbogunum yfir henni að samræma aðgerðir eftir hverja byltu hennar. með alls 2 pela, 3 snuddur og bleyju á kantinum. lindinn meira að segja með 1 pela stöðugt í hendinni sem reynt var að troða upp í greyið við minnsta tilefni. heildarsvefn okkar þá nóttina var því hálftími. reyndar vöknuðum við, fórum framúr með skarann og gáfum að borða, en þá var anna maría mey vöknuð (ég veit það er margrét) og við sögðumst "aðeins ætla að leggjast upp í rúm". að 20 sekúndnum liðnum var ég komin undir sæng með eina barnasæng vafða sem túrban um höfuð mér til þess að hljóðeinangra..."aðeins" 2 klst síðar rumskuðum við og stukkum framúr vegna samviskubits. síðan skunduðum við hjúin ásamt 2 yngstu ams á þingvelli og heimsóttum spaní. löbbuðum almannagjá og lekkerheit. núna var vigga víkingur loks að sofna, e-ð ósátt og búin að orga "smá" (lesist 2 klst). en hún er náttúrulega alveg sætust (sérstaklega þegar hún er sofandi, grín!).
jæja, nú er klukkan að verða 22, best að fara að koma sér í háttinn!!
p.s. smellti einni mynd af okkur við gott tækifæri í gær, hún fylgir hér með! hvað er betra en samstæðir bolir handa hele familien?


4 Comments:
Thid erud óge heppnar ad passa Viggu víkingastelpu, hversu mikill goggi getur eitt barn verid!
Gangi ykkur vel snúllurnar mínar:)
Vigga er fagggggglegust í heimi.. líka þegar hún öskrar....
Áfram vigga og víkingasveitin
Very nice site! Free bridal bingo cards Voip shop
Post a Comment
<< Home