vísindaleg drykkja
fyrsta drykkja vetrarins í þágu vísinda fór fram síðasta föstudag. var það hið síkáta kpmg sem styrkti þessa vísindadrykkju. var allt eins og best verður á kosið, og miðað við aldur og fyrri störf unirritaðrar var þetta einna best útbúna vísindatilraun drykkjumanna sem ég hef orðið vitni að.held reyndar að þessi magnaði og uppbyggilegi vísindaferðakúltúr sé séríslenskt fyrirbæri, allavega var einn samnemandi minn ferlega svekktur er hann komst að því eftir helgina að þetta væri dulbúið fyllerí, en hann tók allt sitt fyrra nám erlendis, bömmer fyrir hann, meira vín fyrir okkur.
eftir að hafa numið reiðinnar býsn af búsi hjá kpmg, og hafa fengið sérlega skemmtileg ferðastaup að gjöf, var haldið á veitingastaðinn rauða tómatinn á laugaveginum. þar var snætt og drukkið meira. það vildi svo heppilega til að einn samnemandinn á íbúð fyrir ofan veitingastaðinn og var haldið þangað í partý að loknum snæðingi og maríneringu. var ég samt félagsskítur og hélt ásamt 3 stelpum á ólíver þ.s. haldið var áfram að drekka í boði kb-banka.
um miðnætti var vel sponseruð ölvun orðin þó nokkur. náði ég þó að þrauka áfram á "uppáhalds" (kaldhæðni, kaldhæðni, kaldhæðni) skemmitstaðnum mínum ólíver þ.s. ég steig meira að segja ófá dansspor með fyrrverandi og núverandi samnemendum.
eftir á að hyggja hefði ég átt að halda heim á leið fyrir 2. því samkvæmt dorrit áttum við í mis-símhringingum sem ég tel skýra þá ákvörðun mína að halda ein á sirkús.
þar var hins vegar engin dorrit og enginn sem ég þekkti, og rámar mig í sketcha af fyrrverandi skólafélaga að dansa ber að ofan upp á borði, landsfrægri fyrirsætu að ræða e-ð við mig og pirringi út í gelgjur á barnum. vona að ekkert að þessu hafi haft neitt slæmt í för með sér.
man enn óljósar eftir að hafa tekið hring á barnum, og nánast ekkert eftir því að hafa reynt að hössla leigubíl á skólavörðustígnum. en leigubílanótan segir 4:02, og aldrei lýgur hún!!
já, ég hef OFT lesið 10 einkenni róna og veit þetta með "minnisleysið"...
enda er ég orðin svo rólega
BARA næsti laugardagur og svo pása framyfir jólapróf...
en engir skandalar (svo ég muni eftir)...
enda siðprúð með eindæmum


3 Comments:
Bíddu hvað er að gerast??? Er Heiður bara farin að stunda Óliver??? Muhahahahahaaa
Greinilegt að fólk geri ýmisslegt fyrir fríkeypis veigar :-)
gvöð farðu að blogga
Post a Comment
<< Home