eat me

þakka frábærar matarhugmyndir. okkur fannst við búnar að covera flest þetta klassíska, en farið var á mcdonald's í dag. á morgun er síðan pizza og svo koma foreldrarnir heim og við erum frjálsar sem fuglinn að nýju. það er ágætt, ég er ekki tilbúin undir þessa frelsissviptingu, þó að gríslingarnir séu algert æði!
mcdonald's matur er annars alger viðbjóður (ok.hver vissi það ekki). ams2 borðaði 3 ostborgara (hann er 5 ára) og var enn svangur að þeim loknum og þurfti að fá skyr. reyndar var enginn saddur að matnum loknum en samt var ákveðin viðbjóðstilfinning sem fylgdi í kjölfarið, og er ekkert að fara!!
við heldri stöllur á heimilinu stefnum fast að því marki að slá íslandsmet í nammi og súkkulaðiáti á meðan á þessari vikusamvist okkar stendur, eeeeewwwwwwwww...ég finn fitulag magans taka reglulega vaxtarkippi. lindberg segir þetta allt mér að kenna, en mér finnst það nú frekar ódýr átylla, enda er ég annáluð fyrir heilsusamlegt líferni og sjálfsaga. og ég er sko EKKI búin að kaupa allt nammið.
annars bjargaði anna maría mey deginum, hún hélt að við værum bara svona 22-23 ára!!! þegar ég sagði henni að ég væri 27 og spaní væri að verða hið sama kom stórt .....wwwwwwóóóóóówwwwwwww...ég delete-a því samt og hugsa bara um að ég sé 22!! ekki að ég sé með neina aldurskomplexa!!
minni þá sem ætla í byen på lördag að melda sig, hlakka til að sjá spaní í "operation getting a husband", enda mikil kappsmanneskja á ferð.


7 Comments:
Heibs, ef einhver er rétta manneskjan í thetta thá ert thad thú:
Viltu segja Anítu ad drulla sér til ad fá sér nettengingu í sveitina!!!!
Gengur ekki ad thad séu tvø partý, eitt í køben og eitt í Dalsgardi og ekki sé hægt ad sameina thau med msn/skype og webcam??????
Anna mín .. ég mun fara í málið sem allra fyrst... en þangað til verðum við að láta símann duga..
Hvernig væri að Annan drullaði sér bara til landsins....
er ég e-r milligönguliður hér...
ANÍ...drullastu til að fá þér þráðlaust net
ANNA...drullaðu þér á klakann
æjji... veistu þú mátt alveg koma í heimsókn til mín og við getum farið saman í ógó tremma mikið átak og bara eitthvað ógó mjóar næstum með anó á danska maður!!!
verðum bara eins og Santo minn! haha!!
Hva segiru?? ert' ekki til ?
það er svooo alveg að fara að gerast þórdís...
mér finnst þessi danski bara svo óspennandi e-ð...
fórstu á fss vs.plebbó í gettu betur??
Nah.. ég bara studdi strákana andlega... góður stuðningur... enda völtuðum við yfir Selfoss11
ég vona að helgin hafi ekki farið svo illa með þig að þú sért ófær um að blogga? ha? Eða ertu í sjokki yfir Glitni og er gapandi orðlaus kannski? Hmmm ...
Post a Comment
<< Home