je suis malade :(

ég er búin að vera með gubbupest og er alein heima og enginn til þess að stjana við mig og vorkenna mér. þakka samt linda fyrir að koma með veigar til mín í gær, og þakka henni jafnframt fyrir að éta allt súkkulaðið sjálf svo að ég myndi ekki borða það;)
þetta var herfilegt, upp-og niðurkomur án pásu í heila nótt, og biðlund bununnar engin!
fyrir þá sem ekki vita er ég komin með nýja vinnu, mjög vinsælt að vera veikur eftir 3 daga, gott að mæta sterkur til leiks.
er búin að horfa gríðarlega mikið á sjónvarpið. vissu þið af spænsku sápuóperunni á stöð 2 um hádegisbilið? var að horfa á gray´s anatomy núna, þetta eru virkilega skemmtilegir þættir. horfði síðan á legally blond í fyrsta skipti í dag og er á því að þetta sé vanmetin mynd, fannst hún bara góð og fílaði "ef þú smælar framan í heiminn..." attítúd elle woods í tætlur. svo var nýr gelgjuþáttur á rúv í kvöld, mjög skemmtilegur. einn vinurinn þorði ekki að vera með "feitu gellunni" sem leikin var af kelly osborne því hann skammaðist sín svo fyrir það. ok, það er atriði út af fyrir sig, en svo er það að kelly greyið er heldur ekki með smetti upp á marga aura, því skondið að setja fitulögin sem einu fyrirstöðuna en hunsa algerlega miður laglegt andlitslag hennar. ætli það hefði líka verið gert ef pabbi hennar væri ekki frægur rokkari?
og er ég kannski búin að horfa of mikið á sjónvarp?
ahaha...er núna að horfa á heimildarmynd um fræbblana, pönkhljómsveit sem rokkaði í reykjavík. ég fór einu sinni á bekkjarskemmtun til völu litlu, litlu systur þegar hún var í svona 7-8 ára bekk. þar var viðstaddur maður sem mér fannst ég kannast svo ógurlega við, er ég var búin að velta því fyrir mér fram og til baka hvaðan ég kannaðist við hann labbaði ég upp að honum og spurði "ekki getur verið að þú eigir bróður sem heitir knútur hafsteinsson og er íslenskukennari í mr". ég var ekkert að grínast, hann var eins og snýttur úr nös knúts (-ar?? sorry) kennara. hann brást hins vegar ekkert sérlega glaðlegur við og ég fékk einungis mjög þurrlegt "ég hef aldrei heyrt þann mann nefndan" til baka. maðurinn var s.s. pabbi bekkjarsystur völu. svona ári síðar sá ég hann síðan í fyrsta skipti í popppunkti og er hann einmitt meðlimur fyrrnefndra fræbbla. fannst þurrlegt viðmót hans kannski getað skýrst af því að hann hafi þarna verið að vonast eftir sjaldgæfri viðurkenningu á "frægð" sinni en þess í stað var samlíking hans við forláta íslenskukennara eina sem vakti á honum athygli.
ég vil þakka ÁSDÍSI YNDINU mínu fyrir að vera jafn yndisleg og hún er. allir sem hafa svo mikið sem einu sinni hitt hana verða ástfangnir af henni og var ég svo heppin að fá að búa með henni einu sinni, í næsta herbergi við hana, með hurð á milli sem ekki var hægt að loka.
póstkortið sem hún sendi mér frá parís gat ekki borist á betri tíma en í gær þegar ég var ein heima lasin. þegar ég heimsótti hana í nóvember urðu allar áætluðu safnferðirnar óvart að h&m ferðum að einni undanskilinni. við fórum á yndislega ljósmyndasýningu með myndum willy ronis. ein frægasta mynd hans er einmitt myndin hér við hlið og kallast "lovers at the bastille". mig langaði svo í myndina en fann hvergi. síðan hefur ásdís nú rekist á hana og sent mér hana sem póstkort. fólk er orðið alltof latt við að senda póstkort, og er ég þar ekki undanskilin, mun taka mig á.
takk æðilsega fyrir ásdís mín og ég öfunda stínu óendanlega mikið fyrir að vera að fara til parísar um næstu helgi. og ég veit jafnframt að ace og co verður í grínum þar sem ég hef heyrt af e-u sameiginlegu djammi. gerið skandala fyrir mig og deilið!!


7 Comments:
aumingja þú með gubbið... en ný vinna??? hvar?
ég virðist alltaf enda á sama stað...íslandsbanka!
Mér finnst myndirnar hans Willy Roni mjög svo lekkerar...er einmitt með eitt stykki hér upp á vegg hjá mér á Mathurin Régnier:)Láttu þér annars batna og til lukku með vinnuna. Það er annars planið að halda smá födselsfestival um helgina í tilefni af 25 árum Sigrúnar...allir velkominir!!
Láttu þér batna, og til hsmingju með vinnuna en er hún eitthvað leyndó?segðu frá kona...gubbaðu því út úr þér
jæja verður gaman að fylgjast með hvort þú náir að halda þér "þurrrrrriiiii" um helgina ;)
til hamingju med nyju vinnuna!! og lattu ter batna.. hvernig væri ad senda mer postkort fra sveitninni:)
beritin
Very cool design! Useful information. Go on! » » »
Post a Comment
<< Home