28.2.07

ljótar tær og stinn typpi


jæja, hálfvitar geta greinilega skráð sig á google eftir allt saman!
er búin að engjast um vegna löngunar minnar að tjá mig um ógéðslegustu auglýsingu mbl.is frá upphafi. þar er verið að auglýsa e-t meðal við tásveppum og birtist manni algjörlega að óvörum viðurstyggileg mynd af tá með hálf-afvisnaðri tánögl nánast efst á forsíðu mbl.
ég fyrir mitt leyti er sjúklega viðkvæm fyrir tám og skítugar, illa klipptar og annars ógéðslegar tær geta fengið mig til að kúgast mjög auðveldlega. ég ætlaði meira að segja að setja mynd af ógéðistám hérna fyrir ofan, en þær myndir sem birtust mér er ég googl-aði "ugly toes" fengu mig til að kúgast.
stinningarvandamál karlmanna virðist líka mikið auglýst núna. þar má sjá mann stíga inn í bíl með einkanúmerinu "stinnur". er ekki alveg að sjá tilganginn með einkanúmerinu, en þetta er kannski of djúpt fyrir mig.
ég vann því tvöfalt í síðustu viku er visnaða nöglin og herra stinnur birtust mér samtundis efst á mbl einn morguninn. nú bíð ég spennt eftir vitundarvakningarherferð frá húð-og kyn, þar er að finna gott stöff í góða byrjun á góðum degi!

Labels:

4 Comments:

At 2:44 PM, Anonymous Anonymous said...

Viss um að hún Móna hafi ljómandi fallegar tær :-)

 
At 10:37 AM, Anonymous Anonymous said...

Heidi... er ekki kominn tími á eina færslu... tja maður bara spyr.

 
At 12:08 PM, Anonymous Anonymous said...

koddu nú með einn góðan af GARCH :-) fresh my memory hony

 
At 6:39 PM, Anonymous Anonymous said...

Bledzuð!
Ég er í smá heimsókn on the Klake og hef ekkert rekist á þig á djamminu! Hvar helduru þig stelpa???

Knús & kossar,
Dúddi Dúdd

 

Post a Comment

<< Home