101 reykjavík
já, best að skrifa e-ð fyrir minn eina dygga lesanda, arndísi;)hefðbundinni dagskrá hefur verið haldið undanfarið. drykkja um helgar og vinna á virkum dögum, hið dásamlega íslenska sumar!
2 vikur í brottför til usa og road trip með jó-l...ekki leiðinlegt það!
gæsaði helgu vinkonu síðustu helgi, fékk meira að segja að gista í rúminu hennar um nóttina (makinn tilvonandi fjarverandi...meira svona helga;)). þ.s. kyndingarklefi er samnefni yfir svefnherbergi hennar helgu vaknaði ég í svitakófi eftir þriggja tíma svefn. upp úr hádegi var haldið á vegamót í brunch. á heimleiðinni varð eftirfarandi á vegi okkar á grundarstígnum...hver getur hafnað svona ástarjátningu:

og þegar nánar er að gáð má sjá:

býst við að þetta sé glens, en finnst þetta nokkuð gott glens. "þú ert fallegri systirin" opnar leið að hinum ýmsu túlkunum. þetta var alveg í takt við hálfétinn hlölla og botnfylli af bjór í plastglasi sem stóðu mjög virðulega hlið við hlið á stigapalli nokkrum húsum á austar.
aldrei lognmolla í miðbænum.
já, manneskjan sem kann ekki að segja nei er að passa hund í viku. frábært!!
