28.11.06

OMG ÉG KANN EKKI NEITT



sæl arndís (og þú hinn lesandinn sem slysaðist hingað inn). ég er ekki dáinn, bara búin að vera löt, en núna er ég í prófum svo það fer allt að gerast(eða u know, allt annað en að læra).

meira að segja farin að blogga á single, er þar undir hinu mikla dulnefni x-pre. rosalega skemmtileg síðasta færslan mín sem segir meðal annars frá hægðum samnemenda minna, eins gott að þeir séu ekki að lesa! annars sit ég að frjósa við gluggann upp í skóla (var að koma af kjúkklinga/salmóbúllu dauðans og er að kafna úr djúpsteikingarsvækju), ekki búin að læra staf síðan klukkan sex, klukkan núna rúmlega 8. ætli ég reyni ekki að drattast til að gera eitthvað áður en ég fer heim.

annars á ég í mínum árlegu vandræðum með jólagjafalistann minn. það er allt svo dýrt sem mig langar í að ég get ekki sett það á listann. rúna rokk fór hins vegar og keypti fyrstu jólagjöfina handa mér um helgina. fór mjög leynt með það (not, hringdi í mig úr búðinni til þess að fá staðfestingu á hvað ég vildi). nema hvað þetta voru 2 kertastjakar sem hún náði síðan að brjóta báða áður en hún kom heim???...kennir konunni í búðinni um að hafa pakkað þeim illa inn og skellt þeim saman. var ekki sátt og fór síðan og skilaði þeim og fékk endurgreitt. því búið að kaupa og skila fyrstu jólagjöfinni minni og ekki kominn desember...

4 Comments:

At 2:03 PM, Anonymous Anonymous said...

Hey! ég les líka... :o)gott að þessi blogghátíð er að ganga í garð...en verra með þessa prófatörn! Við mössum þetta!!

 
At 7:56 PM, Blogger il onore said...

vúhú...
og ég elska ykkur alla:)

nú ætla ég að vera ýkt ýkt duglega að skrifa...

um leið og ég verð náttúrulega ýkt ýkt dugleg að læra...

maður þarf náttúrulega að passa sig ef þórdís systir er að lesa og svona...

maður verður að halda áfram að vera svona holl og góð fyrirmynd...!!

finnst þórdís reyndar farin að sveigja örlítið mikið í átt að menntaskólalíferni mínu...svo lengi sem hún hættir því um tvítugt ætti að vera von fyrir hana...
og ef hún nær að aflétta laugavegsbölvuninni!!

 
At 4:26 PM, Anonymous Anonymous said...

Ég kíki stundum líka..

 
At 5:28 PM, Blogger Ólöf said...

Ég les líka og er rosalega ánægð með að þú ætlar að vera dugleg að skrifa.
Það er ekkert betra í próflestri en að skella sér á netið og lesa blogg. Það er svo hrikalega auðvelt og það er beint fyrir framan mann svo áður en maður veit af er maður búin að eyða hellings tíma og maður ætlaði bara rétt að kíkja.

 

Post a Comment

<< Home