GAME OVER
nú skal drykkju snarlega hætt...

þeir sem geta veitt upplýsingar um ferðir mínar eftir kl 3 í nótt eru vinsamlegast beðnir um að láta undirritaða vita.
Kosningar...enn ein ástæðan til þess að rækta hugann

með áfengisneyslu. á í smá bloggaratilvistarkreppu, finnst ég verða að klára barce frásögn, sem er ekki svo erfitt nema ég er komin yfir mánaðarlegan kvóta á myndasíðunni, og ætlaði meira að segja að kaupa aukinn kvóta, nema það virðist ekki einfalt mál!
síðasta helgi var euro helgi. tók fullt af myndum sem eru enn í myndavélinni minni á glyðrugrandanum. gaman í partýi þó að bærinn hafi ekki verið neitt sérstakur.
næstu helgi eru svo kosningar, ómissandi djamm fyrir pólitískt meðvitaðar sálir eins og mig sjálfa (right).
ég er samt að melta með mér þá kenningu að kosningarvökur séu tilvalinn staður til þess að rekast á einhleypa, efnilega og unga karlmenn, hvað segið þið um það? eða er það kannski bara fjarlægur draumur?
ég er á leiðinni...

shiturinn hvað ég er léleg! ég er ekki búin að bæta neinum myndum inn. myndin hér að ofan, af okkur stöllum á klósetinu á ginger, er hins vegar næsta mynd á dagskrá (tímamótaverk í ljósmyndasögunni).
ég er bara búin að vera svo svakalega upptekin af því að horfa á ALLT sem er til sýnis í sjónvarpinu um þessar mundir að ég hef barasta ekki séð mér fært að bæta við myndum.
er ég eina gagnkynhneigða STELPAN (ekki konan!) á á íslandi sem horfir á the L word? og er það e-ð til þess að íhuga betur?
svo sofnaði ég klukkan hálfátta í gærkveldi, sem ég virðist gera 1-2 sinnum í viku nú á dögum, er það kannski líka e-ð til þess að hafa áhyggjur af??
hmmm...
HELP!
Barcelona, 1.þáttur

jæja, þá er fyrsti þáttur Barcelona ferðarinnar kominn inn á myndasíðuna, sem sjá má
hér. þetta mun líklegast vera sérlega vel metið af þeim sem eru í prófum! það er reyndar slatti af e-m húsamyndum og svona, en þið hoppið bara yfir þær ef þið viljið. endilega kommentið!
ferðin var alveg frábær. frábært hótel, frábær matur, frábær ferðafélagi, bara getur ekki klikkað!
ég er annars að spá í að læsa myndunum mínum, og segja þeim sem vilja skoða lykilorðið, finnst smá asnó að hafa þær opnar. hvað finnst ykkur um það, ef þið hafið þá skoðun um það yfir höfuð?
strandaglopur
eg vard eftir i barþe!!
aetla aldrei ad koma aftur heim!
grin,
update innan skamms!