the bank formerly known as islandsbanki

já, þá er búið að breyta um nafn á litla bankanum, í svona hundraðasta skiptið. leitaði að myndum í yahoo undir "glitnir" og fann bara myndir af hestum, læt þá fyrstu fylgja hér. kannski í takt við nafnið. ætla nú ekki að vera að tjá mig mikið um það hér en fólk virðist almennt lítt hrifið. það var nú samt ljóst að nafninu þurfti að breyta, útlendingarnir lásu þetta sem "islandbank" eða "eyjabanki" og svo var þessu iðulega ruglað saman við landsbankann, sem ku vera "the national bank of iceland" á ensku. en ég var nú reyndar alveg viss um að isb-bank yrði fyrir valinu og hið nýja nafn hvarflaði aldrei að mér.
en ég tók samt þátt í því að fagna hinu nýja nafni og naut vel, fullvel, af endalaust opna barnum á nasa. hefði kannski mátt sleppa 2-3-4 síðustu fríkeypis glösunum. þá hefði ég kannski munað að ég hitti stelpurnar ekki fyrir tilviljun inni á thorvaldsen heldur römbuðu þær á mig eina hangandi fyrir utan póstbarinn, alls óviss um hvað ég var að gera þar...
fór svo víst í skamma stund á thorvaldsen, en þökk sé engri sjálfstjórn og opnum bar var ég komin heim metsnemma, eða klukkan 3...
annars er ég í RÓLEGU kvöldi heima sem felst í því að vera heilalaus og horfa á sjónvarpið...vildi nú bara láta vita að ég næði enn andanum...
meira seinna...


6 Comments:
hér sit ég bara í rolighed á medan íslandsbanki skiptir um nafn! heibba hvar vaeri ég án vitleysunnar thinnar?? jú sennilega ad laera... en hvad laerir madur á thví??
einmitt thad
Ég hef einhvernvegin á tilfinningunni að flestir fíli ekki nýja nafnið? Ég kann nefnilega bara vel við það! Mér finnst bara fínt að breyta í e-d hip&cool. Er reyndar ekki sjálf viðskiptavinur en meina hey!
hehe...
held einmitt af flestum hafi þótt þetta breyting í e-ð mjög unhip og uncool...
Róleg í að nenna EKKERT að blogga - maður kemur hér inn daglega í leit að nýjum skandölum en ekkert gerist... *hnuss*
Wow, that's my horse! On your blog. haha, it's a small world, wish I understood more of icelandic, something about a bank with a new name i guess.
Well, good fun! Take care!
Very nice site! » » »
Post a Comment
<< Home