7.3.06

flensa á suðurvígstöðvum


jæja, er ekki flensulíus mættur á suðurvígstöðvarnar. eiginkona mín, lindberg, er smituð af flensu. sækja þurfti ams2 í skólann í dag sökum slappleika og vigga er búin að vera vígreif af pirringi. vona svo sannarlega að heimilismeðlimir sæki í sig veðrið og að ég sleppi (þar sem ég sat nú af mér heila 3 daga í síðustu viku!). sóttvarnarlæknir hélt því fram að flensan myndi ná hámarki í þessari viku!
annars gengur "operation singles (og svikari) babysitt" bara ágætlega. við erum helst til andlausar hvað skal gefa börnunum að snæða. búnar með kjötbollur, pítu, grjónagraut og fiskibollur. hugmyndir að mat handa 3-5 ára vel þegnar (það er ekki pizza fyrr en á föstudaginn).

er aðgerðinni lýkur á laugardaginn mun ég halda beint á vinnustaðaskemmtun mikla og veglega. þeir sem hyggjast einnig láta illa mega gjarnan vera í sambandi við undirritaða! nú er eins gott að verða flensa ekki að bráð!

4 Comments:

At 7:20 PM, Anonymous Anonymous said...

Ég hef eldað medisterpulsu (svona sem maður sneiðir niður og steikir á pönnu) með pakkakartöflustöppu, tómatsósu og gulrótum úr dós handa frændum mínum og það gekk bara mjög vel ofan í þá. Svo er náttúrulega hakk og spagettí sígilt eða spagettí með tilbúnum kjötbollum og campbell´s súpu (a la ex hans Pésa). Gangi ykkur vel!

 
At 7:27 PM, Anonymous Anonymous said...

stöppuð ýsa með kartöflum og tómatsósu mun hitta beint í mark...

Lasagna a la Aní frænka er líka mjög ofarlega á
vinsældarlistanum .. og þá er gjarnan sungi la la la la lasagna (eins og la bamba... ógeð fyndið)

Hamborgarar eru lika gríðarvinsælir hjá AMS2 og AMS1 er meiri nagga týpa....

Spagettí er líka vinsælt og meddarinn hennar Dóru

 
At 11:46 AM, Anonymous Anonymous said...

Ég mæli með stafasúpu sem hefur alltaf verið vinsæl.
Bjúgu hafa nú einnig hlotið vinsælda hjá sumum börnum:-/..... var semsagt að passa um daginn og við héldum pizzupartý. Frændi minn sem er 4 ára vildi ekki sjá ljúffenga flatböku frá Dominos og heimtaði bjúgu og uppstúf. Hann grætur stundum á kvöldin sökum þess að hann vill bjúgu í matinn :)

 
At 1:25 PM, Blogger Elva Dögg said...

hakk og spaghetti er náttúrlega alveg klassískt sem og allt pasta, til dæmis til litað pasta úti í búð sem er sérlega vinsælt. og já fiskur, kartöflur og tómatsósa klikkar ekki. kjúlli líka ... ægilega vinsælt, þarf bara að passa litlu beinin ef þau fá legg í hendurnar.

 

Post a Comment

<< Home