22.6.06

tásubað

þá er spurningin hvort maður setji tærnar í örlitla sótthreinsun um helgina, og nái um leið að halda fullkominni siðfágun...er það mér fræðilega mögulegt?

þessi hefði nú seint sést draugfull um stræti borgarinnar...

12.6.06

barce búið

ég mun því miður seint verða fræg fyrir skjót vinnubrögð, en nú er restin af Barce myndunum loks komin inn. Þær má sjá hér.
helgan er nú líklegast sú sem spenntust er fyrir þessu, en hún er "því miður" í viku ferð á ítalíu...

11.6.06

önnur í edrú

önnur edrúhelgin í röð liðin. fékk mér reyndar smá hvítvín í útskriftinni í gær (jónas step-bró var að útskrifast) en var samt sem áður komin heim upp úr 9 og farin í háttinn upp úr miðnætti.
í dag hef ég ekki farið út úr húsi en hið stórkostlega að ég tók til átti sér hins vegar stað, sjáið hvað það er búið að raða drasli snyrtilega í hauga og troða hinu ofan í skúffur:
kertaljós og voða fínt...vantar bara...
naaaaaaaahhhh bara að grínast...
eða ekki!

7.6.06

af hverju ekki ég?


mig langar svo óendanlega mikið til þess að vera þessi ofur healthy, orkufulla heilsutýpa. en það gerist samt aldrei. ég er óþolandi mikill letihundur...

vitið þið e-r drastísk ráð til þess að sparka í feitan rassinn minn til að koma mér af stað??

edrúhelgin var vissulega góð fyrir geðheilsuna en ég veit ekki hvort að óhollustan og sælgætisátið hafi gert hana mikið hollari en drykkjuhelgi.

nú eru góð ráð dýr!