28.3.06

lýst er eftir heilsu og hreysti

óþolandi, óþolandi, óþolandi. aftur veik!! hvað er í gangi, hélt ég væri búin með minn skammt! svo gerir samviskubitið yfir því að vera ekki í vinnunni illt verra. kom heim úr vinnunni í gær um hálfsexleytið og stökk beint upp í rúm, óóó, vaknaði svo bara ekkert fyrr en í morgun, chilla á kómatæst ástandinu!
náði að vaka nokkra klukkutíma í dag og það var náttúrulega ekkert í sjónvarpinu, að undanskilinni hinni nýklassísku mynd "baywatch, hawaiian wedding", þ.s. pam og david fóru með aðalhlutverkin. heilsan hreinlega leyfði ekki slíkt áhorf. horfði loksins á mynd sem ég er búin að vera með í láni í marga mánuði en ekki horft á. the road home, eða wo de fu qin mu qin. kínversk mynd sem ég fékk lánaða frá stínu og binna (stína, ég játa mig seka, er með hana undir höndum). góð mynd með fallegustu konu á jarðríki, ziyi zhang úr memoirs of a geisha, í aðalhlutverki.
því hefur veirð haldið fram að tilvonandi eiginmaður minn, jakey poo, hafi verið að gera hosur sínar grænar fyrir henni en þ.s. hún talar litla ensku og hann enga kínversku hafi það ekki gengið. greyið litla, hann er ekki enn búinn að átta sig á því að við erum meant 2 b!! hann er þó nokkuð nálægt, því ziyi á afmæli 9. febrúar og er fædd sama ár og ég, hann færist því stöðugt nær!

svo gerðist ég jafn léleg og pabbi minn og gleymdi afmælinu hans, hringdi samt daginn eftir. hann og arna voru í amsterdam. ég var þó ekki ein því þórdís gleymdi því líka og hringdi einnig daginn eftir, gott að yngsta barnið var sú sem mundi það!

ég horfði á just like heaven um helgina. fyrir þá sem ekki vita kemur draugur þar við sögu. það er eitt sem böggar mig alltaf þegar draugar koma við sögu í myndum. þeir geta alltaf farið í gegnum hluti eins og hurðar, borð og bíla, en af hverju fara þeir ekki í gegnum gólf. þeir geta til dæmis labbað í gegnum alla veggi en síðan standa þeir á sömu steinsteypu á 15. hæð án þess að fara í gegnum gólfið. af hverju fara þeir bara í gegnum veggi en ekki gólf. í just like heaven fer reese í gegnum bílhurðina en getur svo setið í bílsætinu eins og ekkert sé. þetta fer óendanlega mikið í taugarnar á mér...
am i alone here??

5 Comments:

At 11:08 AM, Anonymous Anonymous said...

J-here! Þú ert s.s. ekki búin að fara í joga góða mín!!!!

 
At 11:50 AM, Blogger il onore said...

jógi smóki...
geri sem allra allra minnst þessa dagana...
er að drepast úr leti...

anna komdu á klakann og sparkaðu í minn risavaxna afturenda

 
At 12:45 PM, Anonymous Anonymous said...

AHAHHAHAHAH jebs, þarftekki bara soldið klapp á kvikindið:-) nei nei, ætla samt ekki vera með neinn sudda hér, mælist til þess að Kata taki þá allavega við.
Hef aldrei spáð í þessu með draugsana....er málið að þeir geti bara ferðast í gegnum allt lárétt en ekki lóðrétt? Ja sei sei

 
At 9:07 PM, Anonymous Anonymous said...

Ég hef aðallega spáð í hvernig draugar geta komið við annað fólk án þess að fara í gegnum það (ég geri ráð fyrir að aðalleikararnir knúsist allavega smá, þetta er nú einu sinni rómantísk gamanmynd)...

 
At 2:04 AM, Anonymous Anonymous said...

Þetta er líka búið að fara í taugarnar á mér þetta með draugana. Í þessari mynd getur hún þó ekki snert fólk.

 

Post a Comment

<< Home