fjörið er rétt að byrja
Kæru lesendur undir fimmtugu, ef sá grunur hefur læðst að ykkur að djamminu kunni að ljúka eftir þrítugt, fertugt, fimmtugt...þá get ég hér með sannfært ykkur að svo er nú alls, alls ekki!Á laugardagskveldið hélt ég ásamt rúnu rokk og gunna í teiti til kristínar, yngri dóttur gunnu mömmuvinkonu, a.k.a. patsy. Gárungar kunna að muna eftir þeim stöllum, rúnu rokk og patsy, síðan þær gerðu garðinn frægan í svaðilför sinni til mílanóborgar hér um árið. Ítalíubúar eru víst enn að jafna sig, svo og þær stöllur á annars glæstum húsakynnum þeim er ég bauð upp á.
Tilefni teitisins var innflutningur kristína og hennar unnusta í eigin hýbýli. Boðsgestir samanstóðu af fjölskyldu kærastans, fjölskyldu kristínar og vinkonur patsyar, móður kristínar.
Veitingar voru allar hinar glæsilegustu, alls kyns hrátt kjötmeti, ferskur parmesan og allt það sem hugur manns girnist. Svo ekki sé talað um áfengu veitingarnar. Allar tegundir léttvíns, bjór, sterkt vín og ég veit ekki hvað annað. Sem sagt fullkomnar veitingar. Þar sem maður kann nú ekki við að vera ókurteis og vanþakklátur gerði ég að sjálfsögðu mitt allra besta til þess að sýna þakklæti mitt á þessari miklu gestrisni. Í stuttu máli sagt þá var meira fjör en í nokkru því teiti er ég hef farið í svo lengi sem ég man eftir. 30 manns tættust og trylltust á dansgólfinu. Lögregland kom klukkan hálftvö, sem leiddi til þess eins að hækkað var enn frekar í hljómflutningstækjunum. “örlítið” bólaði á hífun af minni hálfu er ég gekk að gunnari hinum taktlausa og ætlaði að fá hann mér til mikillar skemmtunar út á “dansgólfið”. Ekki var áhugi hans meiri en svo að hann sneri samstundis við mér bakinu á bekk þeim er hann sat með þeim voveiflegu afleiðingum að ég skall beint á bak/rass/allan afturendann á gólfið og braut glas. Gott múv í fjölskyldupartýinu. Fannst ákveðnum lágpunkti náð er ég lá flöt á gólfinu með lappirnar sundurglenntar í flóðlýstri stofunni. Opnaðist þá fyrir flóðgáttir himnanna og barðist ég hvað mest ég mátti við tárin um leið og ég skreið á fjórum fótum á gólfinu að þrífa upp glerbrotin. Ekki var aftur snúið er gullfoss allra tárastrauma var virkjaður. Lagði ég leið mína á salernið, en ekkert fékk virkjanaframkvæmdir þær er heilinn var kominn í stöðvað. Reyndu rúna rokk og patsy báðar að taka að sér hlutverk “stopp”-hópsins en árangurslaust. Ef ég er ekki draumapartýgesturinn veit ég ekki hver hann ætti að vera!
Til að bæta gráu ofan á svart endaði ég með hinni dóttur patsy, kærustu hennar og fyrrverandi eiginmanni (náðu þið þessu?) á players! Einhverjar súrustu aðstæður lífs míns. Þetta var án nokkurs vafa mitt fyrsta og síðasta skipti inn á þessum afleita stað. Var fljót að láta mig hverfa, og í fyrsta skipti í lífinu var styttra að fara heim að sveitasetrinu en að gista e-s annars staðar.
Mínir nýju 3 cm hælaskór fengu því ekki að njóta sín (entist góðar 5 mínútúr á þeim í partýinu), ég týndi 3 armböndum og grenjaði, mér algerlega óaðvitandi, úr mér annarri nýju mánaðarlinsunni minni!
Hvað segiði, djamm um helgina??


6 Comments:
EN GAMAN! you know it baby. ég aetla ad herma eftir thér um helgina. thetta med manadarlinsurnar er tricky. ég hef oft átt dagslinsur til ad nota á djammid thví jú, mar er ekki alltaf i ástandi til ad ganga frá essu...
luv u
Vá, geggjuð partýsaga!
hressleiki og me´ði... keep up the good work;-)
Hahaha magnað og æjæj.. Ég ætla að kíkja á skrall um helgina, við kannski sjáumst ? :)
Heibba á Players.. hehehe!!!! jákv. punkturinn f. þig er ódýrari leigari heim;)
beritin
That's a great story. Waiting for more. Forex analyse Premiere nissan new orleans 4runner sport Student multitrip travel insurance program Adhd ritalin 6027s 7027s Geoff pridham manufacturer of refrigerated air dryers air bmw car picture Home depot security system
Post a Comment
<< Home