viltu koma út að leika?

hæææææjjjjjjjjjjjjjjjjjj, er víst voðalega out skv. fréttablaðinu í dag. maður á að segja "sæl" en ekki langt hæjjj. hvaða steik er það sem semur þessa dálka, alveg hallærislegt.
en að öðru uppbyggilegra, HVER ÆTLAR AÐ DJAMMA FRÁ SÉR ALLT VIT Í KVÖLD?? JÁ, EKKI ALLIR Í EINU! ok, ég átta mig á því að hugsanlegir djammfélagar mínir hérlendis eru í bráðri útrýmingarhættu, en ef það er e-r geirfugl þarna á sveimi, vinsamlegast látið náttúrufræðistofnun = mig vita. er að fara í partý hjá dóttur vinkonu mömmu, með rúnu rokk og gunna í farteskinu, getur ekki klikkað. var að vinna síðustu helgi og var vakin klukkan 5 aðfaranótt sunnudags, rúna rokk og gunni að banka á glugga. voru að koma af árshátíð, fóru síðan í EFTIRPARTÝ og gleymdu lyklum...
ég blikna svo skammarlega í samanburði við þessa ofurdjammara að ég á mér ekki viðreisnar von!
síðan er reyndar e-r hagfræðipungahittingur, en þar sem ég á eigi pung væri gaman að hitta e-r pjötlur. og já, síðustu fréttir herma að lerti latínó sé enn á lífi!
þið vitið djammnúmerið ef þið ætlið að láta illa!
luv


2 Comments:
BWAHAHAHAHA! Hélt þetta væri hún systir mín þarna dauð á picknick borðinu !! :D:D
hmmm...þakka þér fyrir!
þetta er síðan í frakklandi!
Post a Comment
<< Home