sante þórdís

öll vitum við hvað það eru margir sem eiga um sárt að binda víðs vegar um heim, en einhverra hluta vegna gerum við fæst eitthvað til að bæta ástandið. því gladdi það mitt litla hjarta mikið að fá enn frekari staðfestingu á því hversu góðhjörtuð stóra litla systir mín er. hún er 16 ára og hefur nú "tekið að sér" barn í gegnum abc-barnahjálp. þórdís borgar 2000 krónur á mánuði, úr eigin fjármunum (þar sem móðir hennar sagði víst "þetta fer allt í herinn") til þess að aðstoða santo litla til að eiga aukna möguleika á sómasamlegu lífi.
santo er 10 ára strákur sem býr í 12.000 manna flóttamannabúðum í úganda, einungis 100 km frá landamærum súdan (þar sem darfúr héraðið er einmitt). flestir í flóttamannabúðunum búa í kofum með stráþaki en margir hverjir þora ekki að gista í þeim þar sem uppreisnarmenn stunda það að kveikja í kofunum að nóttu til.
peningarnir hjálpa santo að sækja skóla og fær hann læknishjálp þar sem hann hefur þjáðst af malaraíu og er með orma í meltingarfærum. því miður er alnæmi enn að aukast á þessu svæði og vonum við að santo litli komist hjá því að smitast af þeim illræmda kvilla.
annars hafa þórdísi þegar borist 2 myndir af santo er hanga á ísskápnum á laugaveginum. hefur þórdís hafist hand við að skrifa bréf til þess að komast að áhugamál hans svo hægt sé að senda honum gjöf. hún er annars á því að santo eigi að koma til íslands í háskólanám þar sem henni virðist hann af myndunum að dæma vera svolítið "tölvutýpan". vonandi fær hann þó meiri mat þar sem hann er enn með bíafra-bumbu. í því samhengi kom kaldhæðnismeistari íslands, a.k.a. my father, með þá athugasemd að ekki væri úr vegi að senda santo litla uppskriftarbók að danska kúrnum til að vinna bug á bumbunni, það verður þó ekki gert!
ætla ég mér að taka litlu systur mína til fyrirmyndar og "taka einnig" að mér barn. ef dóra og pétur, eða e-r vel að sér í þessum málum, eru að lesa, eru e-r ein samtök betri en önnur? og eru börnin ekki örugglega að fá peninginn?
ég ætla meira að segja að reyna að fá líka e-n úr rockocka, eða hvað flóttamannabúðirnar hans santos litla heita nú. þá getum við systur fylgst spenntar með gangi mála í úganda, jafnvel litið í heimsókn við tækifæri, kaffi, brauð og bakkelsi, haldiði að santo sé ekki game??
ég held nefninlega að margir íslendingar hefðu gott að því að sleppa því bara að kaupa sér 5 bjóra og fróa sér síðan fyrir utan amalieborg og styrkja litlu börnin sem eru að deyja úr hungri!
(fyrir áhugasama er nafn- og myndbirting af kynóða drottningarsinnanum í dv í dag!).
p.s. þetta er þórdís sæta systir á myndinni, hún er 16 ára og á lausu, eins og sönnum laugavegskvennsniftum sæmir;)


6 Comments:
Uhu, var búin að skrifa eitt stykki comment í blogglengd og það hvarf! Allavega þá er ég ekki meiri sérfræðingur í þessum málum en svo að ég hef gert fleiri en eina misheppnaða tilraun til að styrkja SOS barnaþorpin í gegnum Plusinn á netinu en það er eins og þau vilji ekki þiggja aurana mína. Ég hef náttúrlega ekki þorað öðru en að taka þessum skilaboðum alvarlega og hef ekki gert fleiri tilraunir til að klína á þau peningunum mínum...
Ég myndi persónulega styrkja SOS eða Unicef og ég er alveg viss um að peningarnir fara til krakkanna. Kannki ég reyni að styrkja þá í gegnum kanadíska arminn, þeir taka hugsanlega við dollurunum mínum. Gangi þér vel Heiður, gott framtak!
Betra er að gefa en að þyggja.. munið það eigingjöru fyllibyttur..
já og Heiður ég þarf að fá reikningsnúmerið þitt fyrir flahhflahhplaffkrass...
eigingjörnu fyllibyttur...heyrðu litla mín...hvaðan hefuru fengið þessan kjaft??;)
Ég og Binni styrkjum Unicef - veit að Unnur Agnes styrkir það líka og hún sagðist hafa kannað þetta og það væru mjög áreiðanleg samtök. Hisnvegar þá ertu ekki að styrkja eitthvað ákveðið barn í þeim samtökum heldur renna peningarnir víst þangað sem mest þörf er á þeim í það og það skiptið.
Mæli með Unicef ég styrki það og hef heyrt gott af því
Við erum í Unicef líka en Berglind vinkona er í ABC þar er hún einmitt að styrkja eitt ákveðið barn og fær sendar myndir af henni.. og hún sendir henni afmælisgjafir og jólagjafir.. og þær skrifast á milli!
Post a Comment
<< Home