RUGLUM BULL
Eru einmitt orðin sem fá lýst síðastliðnu laugardagskveldi. Í enn eitt skiptið slaufaði ég fjölskylduboði með börnum hans gunna til þess að drekka til að gleyma með vinum og drykkjufélögum. Það er ekki einu sinni það að ég drekki þaaaaað oft, heldur virðist það fyrir einskæra tilviljun alltaf rekast á þau skipti sem þau eru í besög...í alvöru!!
Missti reyndar af Silvíu á leiðinni til löfunnar, en náði siguratriðinu. Mætti galvösk og tilbúin undir góða drykkju. Það sama átti nú hins vegar ekki við um alla single meðlimi sem voru með makalimi meðferðis og fóru síðan bara heim að limast saman fyrir miðnætti. Smánárblettur á fyrrum djammveldinu! Það voru hins vegar mjög traustir félagar til staðar er stóðu sig sko aldeilis í stykkinu og gerðu kvöldið að einu hinu skemmtilegasta í lengri tíma. Þá er ég reyndar ekki að tala um single meðpjásuna sem fannst ég ekki skemmtilegri en það hjá löfunni að mér var tilkynnt að héldi ég áfram með sama hætti (fannst ég nú bara í góðu stuði) myndi ég brátt bara sitja þarna eftir ein. Lét þetta að sjálfsögðu sem vind um eyru þjóta og hækkaði róminn enn meira. Glaumur og gleði gott fólk!
Missti reyndar af Silvíu á leiðinni til löfunnar, en náði siguratriðinu. Mætti galvösk og tilbúin undir góða drykkju. Það sama átti nú hins vegar ekki við um alla single meðlimi sem voru með makalimi meðferðis og fóru síðan bara heim að limast saman fyrir miðnætti. Smánárblettur á fyrrum djammveldinu! Það voru hins vegar mjög traustir félagar til staðar er stóðu sig sko aldeilis í stykkinu og gerðu kvöldið að einu hinu skemmtilegasta í lengri tíma. Þá er ég reyndar ekki að tala um single meðpjásuna sem fannst ég ekki skemmtilegri en það hjá löfunni að mér var tilkynnt að héldi ég áfram með sama hætti (fannst ég nú bara í góðu stuði) myndi ég brátt bara sitja þarna eftir ein. Lét þetta að sjálfsögðu sem vind um eyru þjóta og hækkaði róminn enn meira. Glaumur og gleði gott fólk!
Er útséð var með liðhlaup single-lima var ákveðið að kalla til atvinnumennina, fólkið sem lætur hvorki börn né fingurjárn aftra sér frá gleðinni. Mættu þar ingunn hin yndisfríða og írís íðilfagra. Tása og hennar limur fá þó prik fyrir að þrauka framyfir miðnætti (djísus, eru allar kröfur horfnar sem dögg fyrir sólu!?), en er leið á kveldið var ljóst á augnaráði og fingrasetningu tásunnar að lóðarísæði var senn að taka völdin og lá leiðin beint heim, því aðgát skal höfð í nærveru einhleypinga.
Þá tók ruglið völdin. Af öllum partýum, hjá öllum einstaklingum á öllu íslandi enduðum við í partýi hjá VALI Í BUTTERCUP!! Hversu kaldhæðnislegt er það í ljósi áralangrar “aðdáunar” okkar á þessum ágæta manni. Detti mér allar dauðar, hefur sjaldan átt betur við. Til að toppa þetta sat enginn annar en “gummi úr sálinni” að glamra á gítar er við komum inn. Ef við værum algerar andstæður við það sem við erum hefðum við líklegast verið í sjöunda himni, en sem betur fer vorum við frekar svona að pissa í buxurnar af hlátri. Held að “gumma” hafi verið aðdáunarleysi okkar nokkuð ljóst þar sem við vorum ekki að kikkna í hnjánum eða að veita þeim neina sérstaka athygli, var nú e-ð um prímadonnustæla sem var til þess að gleðja okkur enn frekar. Toppinum var síðan náð er lindinn bar kennsl á einn partýgestanna sem manninn er kynnti single meðlimi fyrir hjálpartækjum ástarlífsins á árshátíðinni hér um árið. Náðist síðan mynd af honum með opna buxnaklauf, klassíker!
Eftir partýið var haldið á ólíver (þar sem maður var hvort eð er kominn í skítinn) og þar kemur e-r smá móða. Man eftir að hafa verið á barnum á dansgólfinu, síðan var e-r útlendingur að kaupa fullt af tequila staupum, síðan var ég að drekka tequila staup ásamt mínum tvöfalda vodka í tonic. Síðan held ég hafi kysst e-n. Síðan var ég allt í einu kominn á ölstofuna í munnvatnsskipti við annan herramann og síðan allt í einu fyrir utan kaffibarinn sem búið var að loka var kominn sá þriðji....CHILLA Á ÞVÍ AÐ TAKA RYKSUGUNA 27 ÁRA!!!....já, bara svona 10 árum eftir á.
Kaffibarsskandallinn var reyndar gamall skandall, svo jafnan lítur nokkurn veginn svona út:
RYKSUGAN = ólíverskandall + ölstofuskandall + (gamall skandall) í 2.veld

Mér finnst sérstaklega skemmtilegt að á meðan ég var að safna munnvatnssýnum í vísindalegum tilgangi á ölstofunni hafi lindi blindi átt í alvarlegum samræðum um kynhneigð við Megas. Talandi um að fara úr öskunni í eldinn. Byrjaði hjá vali í buttercup og endaði kvöldið hjá megasi, þetta er e-r jákvæðasta og hraðasta þróun sem ég hef vitað til. Samkvæmt samræðunum hélt megas því fram að “bi” væri ekki málið, hann væri búinn að prófa sinn skerf og hann væri fyrir konur. Er maðurinn ekki “flayming”?? Kannski var hann bara að fá linda í bólið, eða kannski misminnir linda e-ð, hvað veit maður?
Ég var allavega komin einsömul heim korter yfir 6, átta mig ekki alveg á tímaröðinni og af hverju ég fór ekki til lindans, kannski vegna þess að mér var hent öfugri út síðast þegar ég endaði þar.
Sem er nú kannski eins gott því gubbimann og þynnkumaður dauðans neituðu að yfirgefa líkama minn í gær þrátt fyrir ýmsar særingar. Það verður kannski aðeins skiljanlegra ef litið er yfir það sem drukkið var þetta ágæta kvöld:
2 hvítvínsflöskur
2-3 rauðvínsglös
1 frozen strawberry dequiry (með dash af kókaíni)
½ frozen kiwi banana ógéð
1-2 glös af engiferjaöli með vodka (eða skv. ólöfu: aðallega vodki með smá gosi)
2 tvöfaldir vodka tonic
1 tequila staupa, allavega
kannski eitt hvítvínsglas eða meira vodka tonic
AF HVERJU STÓÐ ÉG Í LAPPIRNAR?
ERGO: gott og skemmtilegt kvöld, en skelfilegur þynnkudagur!



11 Comments:
Þetta er stórkostlegt lesning - hreint stórkostleg :)
Heiður, þú ert og verður alltaf mesti djammari sem ég veit um, svakaleg frammistaða mar! Ég tók reyndar líka hraustlega á því um helgina með vinnufélögunum, mikið asskoti er það gaman! Hlakka til að djamma með þér næst hvenær sem það verður.
Heiður þú ert æði ;-)
Ég ligg hérna í hláturskasti, við verðum að fara að hittast á djamminu, þetta gengur ekki lengur ;-)
Kv. Hafdís
það liggur við að maður þurfi að fara í meðferð bara við það eitt að lesa slíkar lýsingar...
Já, ef einhver er Bridget Jones Íslands þá ert það þú presi minn. Varðandi áfengismagnið er ég LENS!!!!!!!!!! Ég er eiginlega bara fegin að heyra að þú sért á lífi....! Ekki væri ég það, svo mikið er víst!
P.S þó ég sé ekki einhleyp vil ég fá plús í kladdann þinn fyrir eitt ananð:
Ég er kominí reyklausa liðið hjá Single:-)
sjæse;D þú ert svakalegust!!! ég hlakka líka til að ruglumbulla með ykkur um páskana, lofa að fara ekki heim fyrir miðnætti. hehe.. hver varð annars óbeint eða beint fyrir skoti hér? ég vil slúður. ég er reyndar með játningu: mér fannst gummi í sálinni sætur þegar ég var 12 ára og hlustaði á Garg þónokkuð mikið, alla vega kann ég flesta textana utanaf. Því aldrei að vita nema ég mundi kikna í hnjánum við að heilsa honum?
beritin
Eins og ég hef alltaf sagt, þú ert æði sæði.
En ég verð að játa það að byrja fyllerí með fyrrvernandi meðlimum Buttercup lofar ekki góðu. Vorum með létt forteiti fyrir þorrablótið í köben svona til að hita upp. Eftir að vera komin á blótið byrjar ég á því að ræna heilum bakka af brennivínsstaupum sem var ætlaður 5-6 borðum til að skála í með hákarlinum. Eitthvað sem ég og ex buttercup meðlimurinn sporrendum niður af bestu lyst, enda var ég að halda heiðri karlmannanna á borðinu eftir kommentið "ertu kerling?" kom frá ex meðlimnum. Síðan var tekinn heil flaska af fisherman svona til að taka óbragðið af hárkarlinum og ísl brennivínunu. Eins og þú bendir réttilega á þá fylgir góðum deadleika skemmtileg þynnka. Vaknaði eldsnemma morguninn eftir mjög flökurt. Stekk inn á klósett og það gekk ekki betur en svo að átökin voru svo mikil við æluna sérstaklega, þrýstingurinn á hausinn, að ég fæ aðsvif og það líður yfir mig inná klósettinu. Ranka við mig eins og heróin sjúklingur búin að æla yfir mig allan og búin að fara frá helvíti og tilbaka í hausnum.
En, stay black.
Kveðja
Geir "hættur að drekka" Olafsson
ps. Annars er ég að spá að safna aftur hári, vonandi verður Ísland meira tilbúið árið 2006 en 2004 fyrir mega töff hár.
ahahahahha....
þú þarft svooooooooo að fara að koma þér hingað aftur góði...
fór á ólíver í gær og ekkert rokk!!
og "eeeeeewwwwwwwwwwww" æla á sig og eftir aðsvif...
ég náði allavega á klósetið með mína ælu....
aðra helgina í röð...
og af hverju ældiru ekki um kvöldið eftir öll þessi staup...óskiljanlegt!!;)
best regards, nice info 1983 toyota supra checking account balance software encargar tramadol valtrex price Can you take valtrex for the mouth Travel by jen 2005 kia sportage bug guard 1997 mazda mx 5 miata How common is peanut allergy to humans allergy bracelet penicillin http://www.withdrawal-of-bextra.info/intermittent-asthma.html Allergic+skin+rash 2006 scholarship Depakote effets segondaire ale tramadol pay my electric bill Vintage eyewear
Excellent, love it! » »
What a great site honda civic parts honda cl vicodin online bluetooth wireless bluetooth headphones Louis vuitton handbags replicas fake Commercials american erectile dysfunction
Post a Comment
<< Home