1.2.06

fullnæging í formi



jæja, jæja, þá kemur loks það sem allir kærastar óttast og allar stúlkur elska, uppskriftin að frönsku súkkulaðikökunni hennar stínu sem garanterar fullnægingu við fyrstu snertingu kökunnar við tungu!
af prinsipástæðum vil ég þó taka það fram að þetta er og verður aldrei neinn helv. uppskriftasíða, heldur er þetta hugsað sem hjálpartæki ástarlífsins;)
njótið:

Frönsk súkkulaðiðkaka

Botn :
2 dl sykur
200 g smjör
200 g suðusúkkulaði
1 dl hveiti
4 stk egg

Súkkulaðibráð:
150 g suðusúkkulaði
70 g smjör
2 msk síróp


Botn:
Þeytið eggin og sykurinn vel saman. Bræðið smjörið og súkkulaðið saman við vægan hita í potti. Blandið hveitinu saman við eggin og sykurinn. Bætið bráðnu súkkulaðinu og smjörinu að lokum varlega út í deigið. Bakið í vel smurðu tertuformi (ath. ekki lau
sbotna) við 170°C í 30 mínútur.

Súkkulaðibráð :
Látið allt saman í pott og bræðið saman við vægan hita. Kælið bráðina svolítið og berið hana síðan á kökuna.

Ath: Kakan á að vera blaut í miðjunni. Bragðast einstaklega vel með rjóma eða ís og jafnvel niðursneiddum ávöxtum eða berjum.

hér má sjá ungar stúlkur í röð fá fullnægingu er kakan er smökkuð = raðfullnæging!

2 Comments:

At 5:06 PM, Anonymous Anonymous said...

Ertu ekkert spennt að vita hvaða gjöf ég keypti fyrir þig úti, ha ?

 
At 6:54 PM, Blogger il onore said...

hehe, jú er svo þreytt að ég hef ekki sofið af spenningi vegna þessa alla vikuna og því aðframkomin;)

svo er ég enn að jafna mig eftir síðustu helgi...og sú næsta bara komin!!

 

Post a Comment

<< Home