27.2.06

Hætta skal leik þá hæst hann stendur

Nú er komin drykkjarpása. Líkt og máltækið gamla segir þá skal hætta drykkju er gleðin stendur sem hæst. Reyndar er í mínu tilviki aðeins farið að halla undan fæti, og því leik hætt hið snarasta.
Líkt og þarsíðasta laugardagskvöld var viðburðarríkt var þetta viðburðarlítið. Byrjað var á því að fara í útskriftarveilsu til nýslegins hagfræðings, þar sem ég var nánast boðflenna, er yfirleitt illa við að koma mér í þær aðstæður og því ef til vill ekkert sérlega vel stemmd til að byrja með. Veislan var hin fínasta og síðan var farið á hinn agalega stað ólíver. Þetta mun vonandi vera eitt af mínum hinstu skiptum á þessum stað því ég er ekki að fíl’ann. Við bryndís komumst inn með þeirri aðferð að ég samdi ferskeytlu á staðnum fyrir hinn nýlega “made over” dyravörð. Það var alltof mikið af fólki þarna inni og mér fannst ég aftur vera orðin 18 ára og komin á hvebbann sem ég aldrei fílaði og var skapið eftir því. Dansaði nú e-ð og hitti e-ð af fólki.
Nánast samferða okkur inn á staðinn var skemmtilega ólíklegt tríó, þar voru samankomnir í einum hópi gilzeneiger, ásgeir kolbeins (þarf ég að segja meira um staðinn) og logi bergmann. Nýjasta gengið í bænum?
Ölvun var nokkur (þó ekkert í líkingu við þarsíðustu helgi), en ég man sterklega eftir því að hafa séð fyrrverandi manninn hennar ragnheiðar guðfinnu (x-bjútídrottning) á dansgólfinu. Þar voru einnig á sama tíma “ragga” sjálf og geiri kol. Gott ef ekki hafi verið e-r drama þarna, segjum það allavega, svona til að krydda þetta aðeins.
Ég endaði kvöldið síðan með því að ganga ein upp laugaveginn og að hringja stanslaust í mína 16 ára systur til þess að komast inn til pabba. Hún sá sér hins vegar ekki fært að svara mér, en það gerðu vinir mínir á devito’s í staðinn. Þeir svöruðu kallinu með einni glóðheitri pizzu. Ég get svo svarið fyrir það að þeir voru að hlæja að mér er ég sat ein með 16 tommuna að éta þarna. Hypjaði mig því á brott í leigubíl ein heim. Þar var gúffað því sem nemur ¾ hlutum 16” pizzu í sig áður en “sofnað” var í foreldrarúmi með málningu og linsur.
Það var því afar hressandi að vakna daginn eftir með málningu niður á kinnar, skrælnaðar linsur í augum og ómelta ¾ hluta 16” pizzu í maganum. Líkaminn sagði stop og upp kom devito’s ómelt og fín.
Gott að kasta upp á sunnudegi 2 helgar í röð í fyrsta skipti í lífinu 27 ára gömul, ég held ég sé búin að finna beinu brautina!!

LINDI BLINDI, Á HVAÐA MYNDIR EIGUM VIÐ AÐ FARA NÆSTU HELGI??

Ekkert sér hinn litli lindi
Því er sem sólin augun blindi
Ekkert bús og engir strákar
Engin reið og engir fákar

Þessi vísa selst á 7,98 aura.

3 Comments:

At 3:03 PM, Anonymous Anonymous said...

Vá, ég myndi alveg borga 8 krónur fyrir þessa, þú fengir 2 aura í tips. En í alvörunni talað Heiður, endilega haltu áfram að sletta úr klaufunum, það gerir þessa síðu svo asskoti skemmtilega :)

 
At 8:47 PM, Anonymous Anonymous said...

ég er sammála Dóru. Bömmerarnir lifa ekki svo lengi;) Haltu áfram að gleðja okkur lesendur,, hehe!!
luv
beritin

 
At 7:48 PM, Anonymous Anonymous said...

Best regards from NY! pancreatic cancer projectors Compressed air regulators and filters Temporary jobs in unite state Sex offenders in houlton maine Boating hovercraft Www commercial insurance Battery power aquarium airstone Buy cheap acne treatment accutane savaria wheelchair lift Gas scooter tire electric wheelchairs picnic backpacks Honda trx250ex rear rack Florida master card merchant account liposuction Zoloft diahrea Hari raya house decorations painting appliances

 

Post a Comment

<< Home