steik í haus
af því að ég er latari en andskotinn fór ég rétt í þessu út í banka með sjálfskuldaábyrgð sem rann út fyrir viku síðan, en ég fékk bréf dagsett þann 20.desember síðastliðinn þess efnis að hún myndi renna út á fyrrgreindri dagsetningu. það tók mig því 1,5 mánuð að koma þessu í verk, hafandi nákvæmlega ekkert betra að gera allan daginn. þvílík framtakssemi!!til að bæta gráu ofan á svart þá er ég með viðskipti við útibúið á kirkjusandi, en sökum fyrrnefndrar ótakmarkaðrar leti sá ég mér engan veginn fært að fara þangað og drattaðist þess í stað rétt fyrir fjögur á föstudegi "alla leið" út á garðatorg til þess að biðja þær um að "senda ábyrgðina í innanhúspósti" niður á kirkjusand.
ekki nóg með það, þá hef ég undanfarið verið í töluverðum e-mail skrifum við minn nýja þjónustufulltrúa sökum hroðalegrar fjárhagsstöðu. mætti ég því í vitlaust útibú áðan, viku of seint og bað um að senda ábyrgðina á þórdísi bjartmarz niður á kirkjusandi, kvaðst ekki alveg vera viss með nafnið en nokkuð viss um að það væri þórdís.
ákvað svo að dobble tékka þegar heim var komið hvort nafnið væri ekki rétt og komst þá að því, mér til lítillar ánægju að því að svo var nú aldeilis ekki! þjónustufulltrúinn heitir alls ekki þórdís bjartmarz heldur berglind þormar.
2 kvennmannsnöfn og eftirnafn voru mér greinilega ofviða!
(háskólanemar kannast kannski við þórdísar nafnið því hún starfar víst hjá aisec og hefur verið dugleg að senda mail á allan háskólann undanfarið. þar sem við erum því orðnar gríðarnánar er engin furða að ég hafi ruglast á nafni hennar og þjónustufulltrúa míns!).
en til þess að viðhalda letinni nennti ég náttúrulega ekki að hringja niður í banka, og klukkan þar að auki orðin 4 og neyddist ég því til að senda eftirfarandi mail á e-n þjónustufulltrúa í garðabæ þar sem ég man að sjálfsögðu ekki hvað konan sem ég talaði við heitir:
Sæl,
ASNI* heiti ég og var í útibúinu hjá ykkur rétt áðan. Ég rétti þjónustufulltrúa þeim er situr í miðjunni í röð þriggja þjónustufulltrúa, fjær innganginum, sjálfskuldaábyrgð á mínu nafni og bað um að senda hana niður á Kirkjusand, í útibúi 515.
Eitthvað var ég ekki skýr í kollinum þegar ég sagði að þjónustufulltrúinn sem ætti að fá bréfið héti Þórdís Bjartmarz, því það er alls ekki rétt nafn. Þjónustufulltrúinn sem á að fá fyrrnefnda ábyrgð heitir BERGLIND THORMAR.
Ég hef verið i samskiptum við þessa Þórdísi en á allt öðrum vettvangi og kemur hún hvergi nærri bankanum.
Það væri vel þegið ef hægt væri að leiðrétta þennan misskilning og koma bréfinu á réttan móttakanda.
Afsakið ónæðið,
Kærar kveðjur,
FÁVITI**
*og**, nöfnum breytt til að falla betur að frásögn.
nú var ég síðan að fá villumeldingu um að mailið hafi ekki komist til skila, haldið þið að guð vilji að ég lendi í fjárhagsvandræðum??
ég held að mér sé ei viðbjargandi!!
og ég var að byrja á túúúúúúúr:,(


3 Comments:
hæ, frænka tja tja þetta eru nú meiri vandræðin hjá þér. Það eina sem mér dettur í hug til þess að hjálpa þér út úr þessum hremmingum er að þú setjir höfuðið á þér í ískalt vatn og metir svo stöðuna upp á nýtt. Mér sýnist vera finnskt snið á þessu ráði hjá mér. Kveðja laula frænka í finnlandi.
Mér finnst þú nú bara nokkuð öflug að fara út í banka yfirhöfuð. Í þau skipti sem ég hef verið heima við í lengri tíma (t.d. með ungabörn) þá verð ég latari en allt sem latt er!
Hvað segirðu - er ekki kominn tími til að fara bara til útlanda og láta hlutina ráðast? Útlönd fá mitt atkvæði!
Ekki þá flytja til útlanda þar sem internetbanki er mjög svo takmarkaður, ávísanir eru algengari og taldar meira traustvekjandi en kreditkort o.s.frv. Þá hefur þú sem sagt úr öllum Norðurlöndunum að velja og hugsanlega einhverjum öðrum Evrópulöndum (ekki einu sinni láta þig dreyma um Ameríku!!!).
Annað, varstu að byrja á TÚR??? Til hamingju, Heiður, ég hélt að allar stelpur vissu að það kallast PRE-menstruation tension og svei mér þá ef það er ekki að gera mig vitlausa akkúrat NÚNA!!!
Post a Comment
<< Home