ó hve glöð er vor æska

hvað haldiði að maður hafi gert um helgina? þegar nanny.is á í hlut kemur auðvitað aðeins eitt til greina, já, passa! annars skemmti ég mér mjög vel, enda ekki annað hægt þegar um schnillingana hér á vinstri hönd er að ræða. vala, aron og fúsi mús. verst að það er lítið hægt að athafna sig úti við sökum frystistemmningarinnar sem ríkir um þessar mundir.
þessi mynd er tekin fyrir utan hjá lindberg í gær er ég og mitt gengi gerðum innrás á nývaknaðann lindann sem var gríðar "ferskur". til þess að fullkomna fjölskyldupakkann fór ég í mína aðra fermingu í röð í dag. þar var forseti vor (ekki single sko) viðstaddur en mér til mikilla vonbrigða engin dorrit! fékk því ekki að bera tískudrottningu íslands augum.
ektakona föður míns var í frosti og snjó á akureyri á föstudaginn og sneri sig í hálku með þeim afleiðingum að hún braut og sleit öll bein og liðamót sem hugsast gat í öklanum, verður bumbult við tilhugsunina. fór beint í aðgerð og er high on morfín fyrir norðan núna.
fólk á náttúrulega ekki að hætta sér norðar en reykjavík!
talandi um reykjavík, mig langar svoooooooooo í íbúð í 101 en hef ekki efni á neinu á þessum okurtímum, góðar hugmyndir að húsnæðiseignavæðingu minni eru vel þegnar, mega helst snúast um annað en að selja sálu og líkama (myndi nú einnig líklegast hafa lítið upp úr því ef miðað er við eftirspurn eftir þeim "afurðum").
og um næstu helgi ætla ég að drekka mikið, mikið áfengi, allir velkomnir með í ósunda.


3 Comments:
ég er til í óskunda á laugsa. eins og þú veist kannski nú þegar:)
beritin
Er leigumarkaðurinn í 101 líka í okurskítnum? Because I also need a place too stay, in 101 please, in august. Heibs, við hefjum íbúðaleit!
Enjoyed a lot! States that will not ship didrex Camcast sprint cingular evectis mesh voip wireless Masontown dental insurance womens hair loss and remedies free tiny titties site Mega millions numbers for 4182006 Where to order tadalafil online Best hair removers for men Arkansas travel nursing
Post a Comment
<< Home