lazy bitch
eins og sjá má er ég orðin (eða hef alltaf verið??) svo mikil sófakartafla að sófinn og ég erum orðin samlit. það eina sem "skemmir" hið fullkomna letilíf mitt er ofvirkni rúnu rokk og gunna game. þau eru um þessar mundir að missa sig í innanhús málun og sparsli, og fullkomnun leti minnar næst ekki vegna samviskubits sem blossar upp að ég skuli hjálpa, ekki að ég hafi stigið það skref til fulls að bjóða í raun fram hjálp mína!ég hef hins vegar gengið svo langt að leita mér skjóls annars staðar þ.s. leti mín mun ná að blómstra hvað mest hún má. er þetta eðlilegt, or is it just me?
í öðrum fréttum var tvöfalt djamm um síðustu helgi, sem ég er enn að jafna mig á. þar varð á vegi mínum mesta SÆKÓBITCHFROMHELL sem ég hef á ævi minni kynnst. enduðu kynni þau á því að ásgerður arna mr-vinkona lenti upp á spítala með sýklalyf í æð eftir að sækóbitchfromhell réðst á hana og beit hana nokkrum sinnum til blóðs. óða tíkin er í líki lítillar druslu sem gengur um í gæru (mjög við hæfi). ég bið lesendur um að vara sig á henni þ.s. ég býst við að hún sé strokusjúklingur af geðdeild lhs og til alls vís. hún virðist ráðast að fólki algjörlega að ástæðulausu og er því best að halda heim á leið er hún verður á vegi ykkar því hún heldur bara áfram og áfram og áfram. til að mynda kom athugasemdin "ég vona að puttinn á þér drepist, og þú líka" frá þessum geðsjúklingi eftir að hafa bitið ásgerði til blóðs.
mesta kaldhæðnin er nú samt að hún vinnur á leikskóla!! ef þetta er ekki manneskjan sem þú vilt að hugsi um börnin þín veit ég ei hvar hana er að finna!
í sófakartöflustemmaranum í dag hef ég náð að horfa á fullt af myndböndum á skjá einum sem ég hef ekki séð áður. sá til að mynda jeff who myndband sem mér fannst rosa flott (maren ert þú að dansa þarna e-s staðar?). maren sem hljómsveitarmakapía fór með í tónleikaferð bandsins til new york, það var víst ekkert rosalega leiðinlegt;)
fyrir þá sem ætla að taka smá chill á letinni á morgun og kíkja út, mæli ég eindregið með 80's fatasölubasar veddarans í kolaportinu, sjá hér. gæði auglýsingarinnar einnar gera ferðina þess virði, þetta hlýtur að vera bomba.
ég stefni ótrauð að áframhaldandi letipáskum, utan þess að maður kíkir kannski út á sunnudaginn, ef maður nennir að eiga í hættu á að lenda í alvarlega geðsjúkum vistmönnum klepps.
og síðast en ekki síst: ÁSTA BERIT ÉG ELSKA ÞIG!!


8 Comments:
vá hvað þetta eru falleg orð til mín Heiður er alveg orðlaus:) en takk fyrir ljúfa kvöldstund í gær yndið mitt og mér þykir líka ofboðslega vænt um þig. ég mun hafa augun opin fyrir lekkerum íbúðum í 101 fyrir þig. Og ég ýtreka kolaportahitting á morgun!!
beritin
vá hvað þetta eru falleg orð til mín Heiður er alveg orðlaus:) en takk fyrir ljúfa kvöldstund í gær yndið mitt og mér þykir líka ofboðslega vænt um þig. ég mun hafa augun opin fyrir lekkerum íbúðum í 101 fyrir þig. Og ég ýtreka kolaportahitting á morgun!!
beritin
Mon dieu hvaða ruglumbull er þetta sem þið stöllur lentuð í...ég er nú bara sérdeilis lens!!! Og þessi kvensa gengur bara laus eins og ekkert sé...
já ég er einnig lens yfir bitkvendinu og fáránlega forvitin að vita hvort maður þekki snótina. hélt að maður slyppi við svona árásir svo lengi sem maður tæki ekki að sér dyravörslu á skemmtistöðum bæjarins!
Ég hlakka sko mikið til að fara í verknám í geðhjúkrun!! Á örugglega eftir að rekast á þessa sækóbitch þar hihihi!
En takk samt fyrir skemmtilegt kvöld.
Tökum annað gott game þegar prófin eru búin:o)
P.s. Puttinn er á góðri leið með að gróa
Kveðja
Ása
Um síðustu helgi var stelpa þvílíkt klóruð í framan en svaraði fyrir sig með biti (frásögn má sjá hér http://
totatrukkur.blogspot.com/2006/04/snarklikkaar-gellur.html)
Ætli hún hafi komist upp á bragðið og sé nú alveg óð að bíta alla?
hehe...hvernig í djöflinum fannstu þetta ólöf??
Ég þekki bloggaran
Post a Comment
<< Home