gaman gaman
detti mér allar dauðar, haldiði að maður hafi ekki skellt sér í sund í vikunni. e-ð sem ég hélt ég myndi ekki fást til að gera í mínu líkamlega ástandi, en viti menn. það var líka svona gaman og náðist þessi skemmtilega mynd af mér í smá sprelli!naah, þeir sem vel til þekkja að ég myndi aldrei fara í sund og því er þetta óskilgetin tvíburasystir mín á myndinni!
nú er komin smá krísa fyrir helgina, ekki vond krísa per se, bara þessi klassíska "ég verð alltaf svo þunn að ég get ekki djammað 2 kvöld í röð" krísa. e-ð vinnugigg á föstudaginn, gæti reyndar verið frekar rólegt, sé nú ekki marga drykkju-jafnoka þarna í deildinni. á laugardaginn er löngu lofað djamm með hafdísi, maren og ásgerði. við áttum ófáar ölvaðar stundir saman í menntaskóla en síðast þegar átti að sletta úr klauf enduðum við standandi edrú í grenjandi rigningu á laugaveginum án þess að fara inn á nokkurn stað, og héldum bara heim á leið. nú eigum við harma að hefna og hefur kvöldið verið ítarlega skipulagt með það fyrir augum að ná megi upp sem allra mestri ölvun og djammið verði sem tryllst, fróðlegt verður að sjá hvernig til tekst.
þá er bara að vera "dönnuð" á föstudaginn. það getur varla verið mikið mál, nema fyrir manneskju sem hefur aldrei náð skilningi á því orði!


7 Comments:
OH já, ég er í nákvæmlega sömu stöðu. Tónleikar með meistara Morrisey á fös í Svíaríki= Drykkja MUST, og allsherjar partý með öllum skólafélögunum á laugardaginn = Drykkja MUST????? Við höfum tvo daga til að finna okkur ráð Heiður...
djofull er ég ánaegd med sundprumpid! ég er einmitt farin ad aefa flot-pí**prump hér í spanien. ekki kaupa íbúd. komdu á fyllerí í madrid!!
hehe...ég er nú líklegri til þess að gera það kæri bryddi!
sérstaklega þar sem ég kemst ekki upp úr yfirdráttarhelvítinu fyrr en eftir svona 2 ár...
verð líka að sjá þetta prump þitt, hljómar mjöööög metnaðarfullt;)
og anna: MORRISEY...úff, á ekki til orð til þess að lýsa honum. hvernig í hell fékkstu miða?
Það var ekki svo erfitt að fá miða skal ég segja þér, bara keypt á netinu og fengið í pósti nokkrum dögum síðar:-) Blundar líka soldið í mér að fara á Hróaskeldu...kauði verður líka að spila þar! Ertu með? Getur Glitnir ekki orðið okkur útum auka yfirdrátt;-)
það væri kannski hægt að redda því;)
ég er til ef ég þarf ekki að sofa í tjaldi! húsbílahugmynd veddarans fannst mér mjög kúl!
Excellent, love it! »
Enjoyed a lot! Freezer frigidaire uf21 Asian indian clothes Pda hp 6515 amortyzatory fiat punto Halfpricehosting.com webhosting spotlightsavings index.asp stetler model mazda 1987 xr-7 car subwoofers boxes Discounted sectional sofas ldl cholesterol 121 Information on drugtopamax Honda motorbike dealers new zealand prevent car cd player theft
Post a Comment
<< Home