25.4.06

Tra, la la la la la, viva Espania., tra, la la la la, viiiiiiiiva, Espania....

Ég elska helgu vinkonu, ég elska ingva manninn hennar*, ég elska frjálsa lýðræðisþjóð líkt og ísland er, þar sem hver og einn getur látið til sín taka. ég elska alþingi íslendinga og ég elska björn bjarnason. svo ég tali ekki um hugbúnaðarfyrirtækið hug**!!

Af hverju, af því að eftirfarandi atburðarrás er ólíkleg til þess að eiga sér stað:

Ingvi er varavaravaraþingmaður sjálfstæðisflokksins á alþingi
Allir geta farið í framboð til Alþingis.
Fólk hefur mikið og margt að gera og vara- og varavaraþingmennirnir fara í önnur störf.
Síðan fer Björn Bjarnason erlendis í embættisferð í 2 vikur og þar sem vara- og varavaraþingmennirnir eru vant viðlátnir er kallað á varavaravaraþingmanninn og honum skellt inn á þing.
5 dögum síðar var áætluð árshátíðarferð vinnu unnustu varavaravaraþingmannsins sem var löngu ákveðin og búið að greiða fyrir.
Ljóst er að þingmaðurinn kemst ekki í ferðina...

OG ÞVÍ BÍÐUR ELSKULEGA UNNUSTAN VINKONU SINNI Í STAÐINN!!!

ÉG ER AÐ FARA TIL BARCELONA Á FIMMTUDAGINN OG KEM HEIM Á MÁNUDAGINN ÞAR SEM ÉG GISTI HELT GRATIS Á 4 STJÖRNU HÓTELI RÉTT HJÁ RÖMBLUNNI...

Við helga málum bæinn rauðan!!!!!!!!!!


Tra, la la la la la....VIVA ESPANIA

ESPANIA POR FAVOR!!!

*þynnkubíllinn hér um árið sem sótti hverja single snótina á fætur annarri skraufþunna á helstu götuhornum borgarinnar og hélt síðan með þær að kjósa í valhöll hefur sko heldur betur skilað sér...allir í næsta prófkjör
** hér mun stína vinkona tryllast. binni, hennar ektamaður vinnur sko hjá hugi og er að fara í ferðina. en stína situr ein heima með sveitt ennið í próflestri í lagadeild með 2 lítil börn þeirra og mamma hennar búin að þurfa að taka frí í vinnunni til þess að passa, en ég held hún væri alveg til í að fara með og verður örugglega ógéðslega ánægð að lesa þetta;)

15 Comments:

At 12:59 PM, Anonymous Anonymous said...

Ekki gleyma því að ég verð þarna líka! hahahahahha

 
At 1:09 PM, Anonymous Anonymous said...

Geggjað - svo getið þið sent mér sms reglulega um hvað það er gaman hjá ykkur og svona. Frábært :Þ

 
At 1:58 PM, Blogger il onore said...

þú ert einn af tveimur sem ég þekki þarna binni minn;)

ég er smá hrædd um að helga óttist að ég taki fullu týpuna á þetta...þú nippar því í mig ef ég er farin að tala hærra en allir aðrir og komin upp á borð og er við það að fara úr brjóstahaldaranum mínum...
grrrrrrín;)

annars er kona þín farin að panta föt sem ég á að velja með ÞÉR í h&m!!

og stína:
við lofum að senda sms annaðs lagið...ef við munum...
múahahahahah

 
At 3:07 PM, Anonymous Anonymous said...

Eigum við nú að fara í H&M saman? :P

Ég lofa að segja ekkert ef 'fulla vinkonan' lætur sjá sig enda þarf örugglega að hrista upp í þessu þarna úti ;)

 
At 5:12 PM, Anonymous Anonymous said...

geðveikt!! góða ferð lambið mitt og vertu bara fulla týpan ef þig lystir;)
beritin

 
At 10:12 PM, Anonymous Anonymous said...

æðislegt alveg hreint! ekki slæmur tími til að fá smá hita í líkama og sál, bráðnauðsynlegt....ahhhh gott rauðvín,góður matur og fínn félagsskapur gerist ekki betra, góða ferð og bið kærlega að heilsa Helgu.

Varðandi Tigi! hvaða Tigi vörur notarðu? fer á fimmtudag
kv,KEG

 
At 10:16 PM, Blogger il onore said...

takk fyrir það.
ég hef átt "dumb blond" shampoo og næringu. annars bara e-ð sem er voða nærandi og gott fyrir hárið;)

 
At 8:58 AM, Anonymous Anonymous said...

C´est merveilleux ma chérie:) Skemmtu þér eins og vindurinn og tek undir með beritinni...vertu bara fulla týpan ef þig lystir;)

 
At 11:40 AM, Anonymous Anonymous said...

sniiiiiiiiiiiiilld góda ferd gullid mitt!!!

mundu bara ad nota ordid Katalúnía thegar thú talar vid Börsunga. their gaetu annars grenjad í koddann sinn... mongó

 
At 2:02 PM, Blogger Védís said...

ú la la..eilítil öfund hér á kanti. en ekkert sem ég kemst ekki yfir. þannig séð.

 
At 2:02 PM, Blogger Védís said...

ú la la..eilítil öfund hér á kanti. en ekkert sem ég kemst ekki yfir. þannig séð.

 
At 4:29 PM, Blogger il onore said...

hehe...védís, þú ert ALLTAF í útlöndum!

ég sletti nú kannski e-ð úr minni klauf!
búin að tékka á barstöðunni í borginni og svona þetta helsta (gera stærðarsamanburðargreiningu á öllum h&m búðum í barce og prenta einungis út heimilisföng 4ra stærstu, maður verður að hafa hnitmiðuð markmið;))

 
At 9:56 PM, Anonymous Anonymous said...

einhvern veginn get ég ekki annað en brosað við tilhugsunina um þegar við vorum saman í barcelona heiður mín. heldurðu að þú náir að kíkja í sagrada familia í þetta sinn ;)

 
At 8:43 AM, Anonymous Anonymous said...

Where did you find it? Interesting read » »

 
At 7:24 AM, Anonymous Anonymous said...

Wonderful and informative web site. I used information from that site its great. »

 

Post a Comment

<< Home