22.4.06

sumarfríið í ár



þrátt fyrir að sjá ekki fram á að komast á þessu ári réttu megin við núllið á yfirdrættinum mínum hef ég ákveðið að fara í sumarfrí í haust.
ég ætla að halda til lands tækifæranna, þar sem allir eru frjálsir, hamingjusamir og fullkomnir!
sjáiði bara..

þarna á ég greinilega heima!!



auk þess að kíkja til lands nýfasistans bush ætla ég að fara norður yfir landamærin til kanada, á slóðir vestur íslendinga, eða næstum því! í montreal ætla ég að heimsækja dóru og eiginstrákinn hennar pétur. dóra verður einmitt hætt í vinnunni þegar ég kem þ.s. hún er að fara að byrja í skóla og við getum því látið öllum illum látum saman!! hún segir montreal vera geðveika borg, alltaf e-ð að gerast þarna, eða "new york norðursins" eins og hún orðaði það svo spennandi.
í usa er planið að heimsækja herra jó-l. mun ég því eyða nokkrum dögum í boston, síðan ætla ég að reyna að draga hann e-ð ud på landet í netta road trip. mig langar náttúrulega brjálæðislega mikið til ny, en er ekki með gistingu, ef ég get reddaði því á patent hátt mun ég ekki hika við að fara þangað líka!
í stórum dráttum er planið því:
boston-road trip- montreal-helst ny líka.
stefnt er að því að fara út 14.ágúst og vera í svona 2 vikur.

eina vandamálið eru stórkostlega há flugfargjöld, ég finn ekki fargjald undir 60.000 kallinum, og þá á ég eftir að koma mér til kanada.
svo ef þið vitið um hagkvæma leið, endilega látið mig vita. og ef flugfreyjur eru að lesa og langar að taka mig sem vin með og vera með og leika í usa, be welcome!

5 Comments:

At 6:22 PM, Anonymous Anonymous said...

gaman! gaman! gott hjá þér að láta slag standa skvís:)
ég held að það ætti nú að vera mögulegt að finna e-r ódýrari fargjöld, það eru alltaf e-r tilboð finnst mér til usa hjá icelandair.
beritin

 
At 12:16 AM, Anonymous Anonymous said...

Til hamingju með væntanlegt sumarfrí! Þetta verður örugglega geðveikt:-)

 
At 8:43 PM, Anonymous Anonymous said...

Mega ad fara til USA, verst ad dollarinn hefur verid ad hækka. En odyrast er orugglega ad reyna ad komast sem odyrast til Evropu og sidan profa www.dohop.com from Evropu til USA. Einnig er gott ad lata einhvern sem er i evropu ad athuga flug fyrir tig tvi oft er odyrara ad panta flug med IAIR fra Evropu en fra Islandi. T.d fra Dk kostar lucky fares i sept 3.949 DKK.

Geir Oddur

 
At 7:16 PM, Anonymous Anonymous said...

Best regards from NY! Portable dvd players japan

 
At 12:20 PM, Anonymous Anonymous said...

Excellent, love it! Japanese car part auto insurance quote How long does it take prozac to work volvo personvagnar Vitamin+b1 After-school fitness program Furniture for sale in fort worth texas Oxycontin2c vicodin addiction 2002 2003 Were can i find german vitamins Nhs stop smoking birmingham Moonlight golf tour Transvestite alter ego vitamin c for women aventura concerta Best baby humidifier stationery stores retail Jeffrey alan hirsh bookkeeping service Lift kit for isuzu amigo Find research look for boating supply structure of vitamin a myoplex low carb bars. vitamin d. poison oak

 

Post a Comment

<< Home