Gleðilegt sumar mín kæru


loksins, loksins, loksins...
sumarið opinberlega komið, þó mer finnist það í raun enn í felum.
hér bíður maður 9 mánuði eftir sumrinu sem er síðan oft farið áður en maður fattar að njóta þess.
er það merki um óstjórnlega útþrá og eirðarleysi að finnast maður alltaf vera að bíða eftir því að lífið byrji á íslandi en að maður sé að lifa því í útlöndum. því grasið er í raun miklu lengur grænna þar en hérlendis.
eða er það bara ég?
skál fyrir sumrinu!


5 Comments:
Jabs, getur verið merki um útþrá. Hins vegar getur þetta mjög vel snúist upp í andhverfu sína þegar til útlanda er komið, sérstaklega þegar þú ert búin að vera þar í ár eða svo.
Gleðilegt sumar mín kæra...var samt að spá hvort að íslendingar eru þeir einu sem að fangna sumardeginum fyrsta??allavegana fannst frökkunum það með eindæmum fyndið og kaldhæðnislegt að við skyldum fagna sumrinu...en mér finnst það hipp og kúl;)Það er kannski vegna þess að við fögnum ekki lokum fyrri og seinni heimsstyrj... við þurfum náttlega okkar frídaga líka...
hehe segðu frökkunum að svíar hafa meira að segja annan í sumri líka....tveir frídagar þar! þetta heyrði ég um daginn
Já, danirnir soldið í þessu líka. Frídagur á fimmtudegi, þá náttlea bara tekur því ekki að hafa opið á föstudegi!!!!
margrét snappólfur biður að heilsa.
Post a Comment
<< Home