20.1.06

someone is getting married


well, ok, mayb not me,but someone is.
á morgun er ég að fara að gera nokkuð sem ég hef aldrei gert áður, ég er að fara með helgu að máta BRÚÐARKJÓLA! þ.e. helga mátar kjóla og ég skoða, ekki máta. ákvað nú að veita henni stuðning, greyinu, þar sem hún þarf líklega á honum að halda á stundum sem þessum;)
spurning hvort þess gerist nokkuð þörf ef ég sýni henni þennan líka lekkera kjól sem ég fann á netinu og má sjá hér til hliðar, hvað segiði, ekki "ekta" helga?
annars hefur mér þegar verið boðið í 2 brúðkaup næsta sumar og hef ég strengt þess heit að mæta ekki ein! því er örvæntingarfull leit að date-um fyrir bryllupin á næsta leyti! helgu brúðkaup er eftir versló og get ég því sameinað 2 heiti. annars vegar áramótaheitið metnaðarfulla að fara á þjóðhátíð og þar get ég síðan fundið date-ið fyrir seinna bryllupið...
alveg eins og í sögu, ég er að segja ykkur það!

annars er smá krísa:
það er partý með skólafélögum á morgun sem ég sé mér ekki fært að mæta í þ.s. ég meika ekki að vera spurð 334 sinnum að því hvað ég er að gera og þurfa að segja 334 sinnum frá því að ég sé "í fríi" = prumpa undir sængina
er það ekki algerlega skiljanlegt?

9 Comments:

At 9:29 PM, Anonymous Anonymous said...

du bist ein snappolf...ja ja ich bin deutch....

 
At 4:36 PM, Anonymous Anonymous said...

nononoooo!! bara bryllup... kannski jóel bjóði sig fram sem deitið ;)
asta

 
At 5:44 PM, Anonymous Anonymous said...

Má ekki bara koma með vinkonu í bryllupin?

Varðandi partý sem þessi, þá get ég gefið þér eitt ráð: Gefa alltaf loðin svör, t.d ef einhver spyr "og hvað segiru hvað ert þú að gera núna" þá svarar þú sporsk "jah oft er hey í harðindum og því alltaf e-ð úr að moða" eða hreinlega "þegar stórt er spurt er oft lítið um svör" nú eða bara "bjössi tekur sinn tíma".

 
At 8:27 PM, Blogger Elva Dögg said...

ekta helga þessi kjóll ;) hvernig gekk á leigunum - jeminn það er svo mikið stuð á svona leigum! eða þannig. eða hvað? eða eða eða ... deit í brúðkaup verður ekki málið. annars segja sumir að brúðkaup sé í sjálfu sér besti pikkuppstaðurinn. þekki það svo sem ekki sjálf. byrjaði held ég enginn saman né svaf saman eftir mitt brúðkaup - svo ég viti.

 
At 1:49 PM, Blogger il onore said...

þakka góð ráð!
það var geðveikt stöð á leigunni;)
fundum nú reyndar ekki neitt sem "við", eða helga, vorum að falla fyrir.
date-ið, já, verð að redda því, annars komum við bara út úr skápnum anna mín!;)

hef einmitt heyrt af þessu með brúðkaupin, að það sé staðurinn til að hössla. held það eigi við útlönd þar sem hér eru allir þegar gengnir út og ekki einhleypan mann að hafa!!

 
At 11:46 PM, Anonymous Anonymous said...

haha, veit einmitt um stelpu sem fékk á sig lesbíu-stimpil í fjölskyldunni eftir að hafa mætt með vinkonu sína sem deit í brúðkaup. mér finnst annars bara að þið helga ættuð að leggja land undir fót og heimsækja veru wang :-)
halldóra

 
At 6:41 PM, Blogger il onore said...

ahah, mamma hennar helgu hafði einmitt horft á sex and the city þáttin þar sem charlotte gifti sig í veru wang og var alveg frá sér numin af kjólunum.
verst að þeir kosta margar margar milljónir! annars væri ég alveg til í að skella mér til ny í mátun;)

já, kannski ekki á það bætandi að fá lessustimpil á sig í fjölskyldunni, kannski maður þurfi að hugsa sinn gang!

annars kemur þetta allt á þjóðhátíð, ég er alveg viss um það;)

 
At 7:40 AM, Anonymous Anonymous said...

This is very interesting site... Foam mattress top pebblecrete driveways in australia 1-800 phone number for proactiv florida law on driveway easements driveway alarm lid ribbon driveways Health supplements malaysia Malpractice cape coral flint driveway paving Personal health desk 1.0 medical plans

 
At 4:46 AM, Anonymous Anonymous said...

Where did you find it? Interesting read Money debt life insurance payments budget loans christian cheap web hosting clean sport sport trac truck Marine battery charging http://www.loss-hair-5.info/Sports-il.html Bontril diet home theater projectors http://www.buy-buspirone-online.info/latest-cosmetics-procedures.html pornstar flick shagwell Online marketing tools online direct marketing home based

 

Post a Comment

<< Home