16.1.06

nú er sumar, gleðjist gumar, gaman er í dag...not


shit hvað það er mikið skítaveður hérna. chilla á frostinu, láréttu snjókomunni, 20 metrunum á sekúndu og 3 klst af sólarljósi á dag, öllu í einu! give us a chance here god!

ég er að íhuga lögsókn á hendur volkswagen verksmiðjunum. lásakerfi VW golf bíla þeirra hefur reynst mér hreinasta helvíti og blóðmjólkað budduna. í fyrsta lagi kostar 6000 krónur að fá nýjan lykil. svo hafa báðir lásarnir brotnað og hefur kostað 10.000 krónur að laga hvorn þeirra. reyndar skrifast annar þeirra á fyrrverandi hjásvæfu þar sem ég var í 5 km radíus frá heimili hennar og hefði hún verið með röntgenkíki út í glugga væru góðar 0,033% líkur á því að hún hefði náð að sjá mig. því var ég gríðarlega stressuð og braut lásinn:( hinn brotnað síðan í e-i óþolinmæði.
að ónefndri þeirri miklu skemmtun sem það var að láta nonna frænda draga mig upp í heklu er eina lyklinum var stolið með STOLNU TÖSKUNNI í október. ég vil hér með þakka túristunum sem ýttu mér þegar ég var stopp á barónsstígnum og nonni frændi líkt og eldhnöttur í framan að öskra á mig af bræði vegna lélegra aksturshæfileika.
nú ætlaði gunni að vera rosalega góður í gær og setja svona frostvara í lásinn....óóó, eins og ogguponsustundum þegar gunni ætlar að laga virðast hlutirnir ekki gera það sem þeim var ætlað. í stað þess að afþýðast hefur hurðaopnarinn farið í verkfall.
núna er ég því með tveggja dyra bíl þar sem bara er hægt að aflæsa bílstjóramegin og opna hurðina farðegamegin, en hvergi bæði í einu!
var því rosalega grand á mínum fjallabíl með SKÍÐAGRINDINA vinsælu í viðtali áðan, skríðandi inn og út úr bílnum, classy!!!

4 Comments:

At 8:00 PM, Anonymous Anonymous said...

Gaman að þú ert komin með blogg Heiður, ég skal vera dugleg að lesa og kommenta ef þú lofar að gera það sama fyrir mig. Gangi þér vel!

 
At 5:57 PM, Anonymous Anonymous said...

Engar áhyggjur Heibs, ég plana að mæta með strætó og í rónaúlpunni minni í öll viðtöl framtíðarinnar...NIÐUR MEÐ SNOBBIÐ (OG UPP MEÐ GEIRA;-)!!!

 
At 9:57 PM, Anonymous Anonymous said...

Heiður ég elska þig

 
At 11:26 PM, Anonymous Anonymous said...

That's a great story. Waiting for more. »

 

Post a Comment

<< Home