14.1.06

sumir eru bara aðeins seinni en aðrir...
þetta er nú ætlað þeim er ég þekki sem ekkert hafa að gera, og einnig þeim sem umhugað er um mig til að sparka í rassinn á mér þegar hann hreyfist ekki neitt!...
sem er reyndar frekar algengt þessa dagana...

þegar koma dagar sem eins og:
vaknaði klukkan tvö og horfði á opruh
lagði mig síðan til 17 og horfði á nágranna
borðaði kvöldmat og lagði mig
vakti svo og horfði á sjónvarpið til klukkan 7

megið þið hlaða hagglarann og mæta með hann í sveitina, því þá er ég réttdræp!!!

annars er það stórkostlega í fréttum að ég er búin að vera með vinsælustu pest dagsins í dag, enga aðra en gubbupestina, always in fashion!
ég mun ekki geta borðað fajitas næstu árin, rétt eins og jóa fel brauð með pestói fór á bannlistann eftir eina pestina fyrir nokkrum árum. þegar maturinn kemur medium ómeltur upp úr manni aftur og maður finnur enn bragðið af honum, í bland við ælubragðið, líður yfirleitt að löngu áður en mann langar í hann aftur!

í kvöld er ég búin að vera að basla með þessa síðu. get ekki lagað fokkings "rjómann" hérna á kantinum, hann vill ekki vera þar sem hann á að vera!! ef e-r kann að laga látið vita.

setti líka inn nokkra linka sem mér finnst skemmtilegir, bara ef ykkur leiðist eða nennið ekki að gera það sem þið eigið að vera að gera.

jæja, best að slútta þessu áður en boston leagal byrjar. slaaaaka, ekki búin að horfa á neitt í sjónvarpinu í dag, þ.e. fyrir utan e-a klappstýrumynd á rúv í dag, algerlega lífsnauðsynleg! það er hins vegar bót á helsta vankanti sjónvarpsgláps míns á næstunni, nýr sófi, gamli blái bryddarans, verður prufukeyrður í stað bleika flikkisins, sem ber þann vafasama heiður að vera óþægilegasti sófi í heimi!!

vinsamlegast deilið sögum sem hafa orðið á vegi ykkar, sama hversu ómerkilegar ykkur kann að þykja þær þá eru þær allavega meira spennandi en mitt snauða líf!

ég mæli annars með:
almost famous
syngja tiny dancer þangað til lungun næstum springa, stundum betra í bíl
vanillu ilmkertum (eitt slíkt var einmitt í stolnu töskunni, passið ykkur, fólk er tjúllað í þau)
chet baker
low

p.s. þið verðið að kommenta annars nenni ég þessu ekki!

á presto
il onore

5 Comments:

At 10:13 PM, Anonymous Anonymous said...

Jess - það hlaut að koma að því :Þ Djöll er ég ánægð með þig núna - hingað mun ég koma oft á dag í tilraun til að fela mig fyrir námsbókunum :)

 
At 10:30 PM, Anonymous Anonymous said...

Frábært.....enn meiri tími sem fer í blogglestur...:o) Tek þennan tíma af eftirmiðdagslúr nr 2...Hehe!! oooo er í sama pakka og þú nema skelli mér landshorna á milli öðru hvoru á milli lúra!!

 
At 10:32 PM, Anonymous Anonymous said...

gott framtak hjá þér laxi:)

 
At 6:44 PM, Anonymous Anonymous said...

What a great site us saving bond future value calculator 125mg depakote er http://www.hornymilfs.info/fat-girls-sex.html What does tenuate do Shawnee timeshare sales herpes prescription http://www.powdercoatwheels.info effexor xr and weight loss 2006 acura rsx lease

 
At 7:47 PM, Anonymous Anonymous said...

Best regards from NY! chrysler neon Patent drawings for gas mask

 

Post a Comment

<< Home