nu skal vi alle sammen gå i biografen

já, ekkert lát virðist vera á frumsýningum mynda sem vert er að sjá þessa dagana. kominn tími til, verst að þeir koma með svo mikið af myndum á sama tíma að maður nær ekki að sjá þær allar.
næstu 2 daga hyggst ég sjá framhaldið af l'appartament espagnol og ekki má gleyma tilvonandi eiginmanni mínum, jakey poo, í brokeback montain. þar sem ég á engan pening mun ég ekki djamma um helgina.
neyðin er slík að ég hef þurft að grátbiðja rúnu rokk (a.k.a. mia madre) um pening svo að ég geti farið í bíó. já, ef þið eruð búin að gleyma því þá ER ÉG AÐ VERÐA 27 ÁRA EFTIR 9 DAGA! og þar sem allir vita að það er nú ekki góðs viti að betla peninga af foreldrum sínum þegar maður hefur náð "the big 27" er nú eins gott að nýta tímann núna!
(eða er ég kannski bara 10 árum á eftir?)
p.s. er william shatner að missa ´ða??


9 Comments:
hey laxi...fór að sjá Brokeback mountain í gær...hún var óge góð...tveir mjög lekkerir kauðar í henni;)Samt rosa sorgleg, er búin að vera hálf miður mín í dag yfir henni!!!
eins og ég er lélegur "blessari" og sukkari yfir golden globe og óskarsræðum þá táraðist ég ekki á þessari annars ágætu mynd...skil ekki ... kannski þær lýsingar að jo-l hafi grenjað í koddann heilan dag eftir að hafa séð myndina hafi haft einhver áhrif á að væntingar mínar til táraflóðs hafi verið í anda syndaflóðsins mikla :o)
ég átti nú bágt með mig undir lokin, augnkrókarnir yfirfullir af vökva, en ég greip til gamla, góða "horfa upp í loftið og blása að augunum" bragðsins.
kom þar í veg fyrir hugsanlegan "leka".
leit á lindberg og var alveg viss um að hún væri um það bil að drukkna í eigin táraflóði, sem ekkert bar á!
kaldlynda gyðjan felldi ekki svo mikið sem nanótár;)
er samt mikið búin að vera að hugsa um boðskapinn, ok, ekki mikið, en smá...
maður verður víst að grípa gæsina...áður en hún verður skotin niður og borðuð af e-m öðrum!
BUT I LURVE U JAKEY POO...
MY FUTURE HUSBAND
hola heibbs! sakna thín ýkt! ef ég sé gogga gillenhal á ferdinni, seni ég hann beint til thín :)
gerðu það bryndamos...ég bíð og bíð!!!
þín er einnig sárt saknað!
jake gyllinaed
What a great site Eczema vitamin c cures lexus locklear Tucson center free antidepressants Ww ii veteran scholarships Outlook express free stationery apple case dlo ipod jacket jam nano Can antidepressants make anxiety worse Hartford car loan affiliate association industry marketing florida fitness clubs Babe dirkson Extreme anal sm
I have been looking for sites like this for a long time. Thank you! »
Very cool design! Useful information. Go on! porsche part on ebay
Post a Comment
<< Home