27.1.06

Halló Akureyri!


haldiði að maður hafi ekki skellt sér til akureyrar í gær. þar sem spússinn var að fara til akureyrar og þurfti að gista vissi ég ekki í hvorn fótinn átti að stíga og spurði "en, hvað á ég þá að gera"?? og uppskar hið innilega svar "hva, þú getur þá svosem kannski bara komið með". ég stökk hæð mín af gleði. fór því í eftirdragi með síðustu vél norður í gær. ég var "sörpræs" fyrir löfuna. nema hvað, það tekur ekki nema svona 5 mínútur að keyra á milli bæjarmarkanna, en e-a fáránlegra hluta vegna náði lafan að vera tæpan hálftíma á leiðinni. sörpræs-djókið sem fólst í því að ég faldi mig á bakvið risavaxinn bækling og stóð 5 metra frá lindanum fyrir utan flugstöðina var því orðið jafn kalt og fingurnir mínir þegar lafan loks mætt á grænu þrumunni og skutlaði okkur upp á hótel kea. þaðan fórum við síðan og fengum okkur að borða á nýja staðnum "strikinu" (en barinn við hliðina á heitir parken, strikið, parken...get it??). þar var gómsætur matur en að honum loknum kíktum við í 2 mínútur á hýbýli löfunnar, en hlupum því næst til dittu, fyrrverandi sambýlings linda fyrir norðan, að horfa á house. að því loknu var haldið á odd-vitann að hlusta á trúbator sem er "kærasti stelpu sem býr með dittu". að því loknu keyrði lafan okkur upp á hótel og leiðir skildu. nú getur lafan ekki sagt að ég hafi aldrei heimsótt hana á meðan eins og hálfs árs dvöl hennar fyrir norðan stóð, en hún flytur aftur í bæinn á þriðjudaginn!
nú áttum við lindinn að leggjast til rekkju þar sem klukkan var að verða eitt og við þurftum að vakna klukkan 6. en sú varð ekki raunin. við fundum þátt úr fyrstu syrpu hinnar stórkostlegu þáttaraðar "baywatch" á e-i stöðinni og pissuðum næstum á okkur úr hlátri. djöfull eru þetta skelfilega lélegir þættir. samansafn af verstu leikurum, verstu kvikmyndatökumönnum, klippurum og sviðshönnuðum koma þarna saman til þess að búa til e-a verstu þáttaröð sem framleidd hefur verið. og þessu beið maður eftir á hverju einasta laugardagskvelid, óskiljanlegt!!!
hver man ekki eftir miss unibrow, shauny, og litla kærastanum hennar? að ógleymdum konungi ape-cuttanna, mister david hasselhoff, sem rölti um á skýlunni og rauða jakkanum með bringuhárin í fullum skrúða hvert sem landið lá. hvað þá þegar strandverðirnir hlaupa alvarlega grettir með flotholtin sín og "stökkva" yfir öldurnar, stinga sér því næst til sunds þegar vatnið nær upp að ökkla á sama tíma og allir strandargestir í kring eru ofurchillaðir að njóta lífsins í frisbí. síðan synda þeir út í e-a sundlaug og þar hefjast stirðustu og fáránlegustu björgunaratriði sögunnar!
óborganlegt! við lindinn erum að spá í að redda okkur syrpunum og hafa sérstök "baywatch" kvöld!
en þarna var galsa komið af stað sem ekki varð stöðvaður. hótel kea var e-ð að misskilja sig og var benestemmning í loftinu, bókstaflega. það var svona 50 stiga hiti inni á herberginu. þrátt fyrir að slökka á öllum ofnum og opna gluggann var óbærilega heitt. hótelglugginn okkar var auk þess hér um bil á miðjum kirkjutröppunum og þar sem við neyddumst til þess að hafa gardínurnar frá og opinn glugga, til þess eins að halda lífi, gátu saklausir göngumenn notið fagurbrúns og stinns bossa lindans sem skartaði g-streng einum saman í beinni sjónlínu frá krikjutröppunum. í kaupbætið fengu þeir "notið" náhvíts sellóhúðaðs afturenda míns!
galsinn virtist óendanlegur og náði fullkomlega að endurskapa "við erum 10 ára að gista saman og getum ekki hætt að hlæja því allt sem við segjum er svo fyndið, en megum ekki hafa of hátt því þá vaknar mamma og kemur og skipar okkur að fara að sofa"-stemmninguna. þegar klukkutími var í vöknun skipaði lindberg ró!
e-r sviptivindar voru í loftinu yfir eyjafirði og hélt ég að þessi flugferð yrði mín síðasta og kreisti höndina á lindanum hvað ég gat þar til ég óttaðist að brjóta eina gelnögglina hennar. þetta ku víst vera fastir liðir eins og venjulega, en ég er nú ekki alveg sannfærð!
eftir heimkomu braust lindinn síðan inn á nirðinum þar sem hún var læst úti. hvernig hún fór að því að troða annarri löppinni og búknum samtímis inn um þennan litla glugga flokka ég sem eitt af undrum veraldar, fólk getur ekki svona!!

kæri lindi, takk kærlega fyrir frábærlega skemmtilega ferð og gera mér kleift að verða tíu ára aftur!!

p.s. djammarar íslands, rúna rokk og gunni voru víst í þættinum "sirkús reykjavík" áðan! þar voru þau svellköld á avion group ballinu, ekki partý nema ljónin séu á staðnum;)

p.p.s. hvert er málið með sviptingu herra íslands? í fyrsta lagi er þessi gaur örugglega fínn, en hann er bara ekkert sérlega fallegur og átti ekki að vera herra ísland í fyrsta lagi. nema það var e-r símakosning og keflvíkingar hafa tryllst af æsingi og kosið sinn mann. einn vinur dawsons, bróður löfunnar, var til dæmis á æðra fegurðastigi en þessi maður. í öðru lagi var hann með e-n þátt áður en keppnin byrjaði, sem keppnishaldarar hafa átt að vita um. og í þriðja lagi heyrði ég að hann ætti 16 ára kærustu, eeeeeeeeeewwwwwww!

7 Comments:

At 11:49 PM, Anonymous Anonymous said...

ggeeeeeeeett ooooouuuuuuutt oooofff ttthhheeeee wwwwaaaatttteeeerrrr....ahahaha

 
At 12:02 AM, Anonymous Anonymous said...

ómetanlegt ....gjörsamlega....lykilsetning í þessum snilldarþáttum! Annars hef ég ekki hlegið svona mikið í lengri tíma...held að það sé ekki spurning með að finna þessa þáttaraðir ásamt beverly hills 90210 og melrose place...jake? jane? kimberly? kelly? steve? og allir hinir snilldarkarakterarnir....! við bara verðum að rifja þetta upp :o)

 
At 8:30 AM, Anonymous Anonymous said...

ahhh snilld! Djöfulli gott hjá þér að skella þér með Linda, alltaf svo gaman að gera e-ð óvænt í myrkasta skammdeginu og hlæja soldið mikið.

 
At 1:38 AM, Anonymous Anonymous said...

Takk fyrir komuna það var ekkert smá gaman að fá ykkur í heimsókn. Betra seint en aldrei Heiður mín.

 
At 1:30 PM, Anonymous Anonymous said...

ummmm góður stinnur rass.... Ummmm.

 
At 8:50 AM, Anonymous Anonymous said...

Very nice site! » » »

 
At 10:28 PM, Anonymous Anonymous said...

Keep up the good work One cup coffee maker supplies Portable dvd vhs player botulinum spastik Narbonne cosmetics bmw e39 roof racks Mens fitted black bikini swimwear San diego boating regulations lexapro isn t working Venlafaxine hydrochloride versus duloxetine hydrochloride Hypertension herbs lower blood pressure Ambridge rhinoplasty

 

Post a Comment

<< Home