7.6.06

af hverju ekki ég?


mig langar svo óendanlega mikið til þess að vera þessi ofur healthy, orkufulla heilsutýpa. en það gerist samt aldrei. ég er óþolandi mikill letihundur...

vitið þið e-r drastísk ráð til þess að sparka í feitan rassinn minn til að koma mér af stað??

edrúhelgin var vissulega góð fyrir geðheilsuna en ég veit ekki hvort að óhollustan og sælgætisátið hafi gert hana mikið hollari en drykkjuhelgi.

nú eru góð ráð dýr!

7 Comments:

At 1:52 AM, Anonymous Anonymous said...

hei ég veit! byrja á göngutúrum, taka svo esjuna og svo fimmvörðuháls með s2000....það verður gott og gaman! Getur alveg ef þú byrjar strax.... :o)

 
At 12:58 PM, Anonymous Anonymous said...

Já Heiður, það er alveg geggjað að ganga Fimmvörðuháls og það er svo gaman að enda í Þórsmörk og tralla aðeins þar. Mér líst vel á þetta plan :)

 
At 6:03 PM, Blogger il onore said...

hömm...
dóra "mont" man mætavel eftir nákvæmum lýsingum þínum af raununum að labba yfir hálsinn...
hvort það var ekki blóðbragð í hálsi og tár í augum sökum erfiða...

óskar þú vinkonu þinni slíkra rauna;)

 
At 11:14 PM, Anonymous Anonymous said...

Það er alltaf gott að setja sér markmið...byrja rólega eins og til dæmis á góðum göngutúrum. Fínt að setja svo stefnuna á Esjuna og hálsinn. Nú svo er hægt að stefna á hnjúkinn næsta sumar og maraþon eftir tvö ár. Ég er ekki að grínast .. það er allt hægt ef viljinn er fyrir hendi.

 
At 10:28 AM, Anonymous Anonymous said...

Ég skal lána þér hlaupaplanið mitt - þarft bara að biðja :P Ég setti mér það markmið að klára það og sjá svo til eftir það. Mæli alveg með þessu - þetta var auðveldara en ég hélt!

 
At 12:20 PM, Anonymous Anonymous said...

Sko, það var erfitt í fyrsta skipti þar sem að ég fór beint eftir vinnu á föstudegi og gisti á miðri leið og þurfti þar af leiðandi að bera þungan bakpoka. Í seinna skiptið labbaði ég þetta í einum rykk og það var miklu betra, mæli með því.

 
At 11:58 AM, Anonymous Anonymous said...

Gott fyrir spark í rass: www.sparkpeople.com

 

Post a Comment

<< Home